Laun bankastjóra lækkuð - Bankastjóri stærsta bankans með lægstu launin

Bankaráð Lands­bank­ans og stjórn Íslands­banka hafa ákveðið að lækka laun banka­stjóra Íslands­banka og Lands­bank­ans, í sam­ræmi við óskir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í bréfi Lárusar Blöndal, for­manns Banka­sýslu rík­is­ins, og Jóns Gunnars Gunn­ars­sonar, for­stjóra stofn­un­ar­innar, til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að laun banka­stjóra rík­is­bank­anna, Íslands­banka og Lands­bank­ans, verði lækkuð.

Eftir breyt­ing­una verða mán­að­ar­laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Lands­bank­ans, áfram tölu­vert lægri en laun Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka.

Ríkið á Íslands­banka 100 pró­sent og 98,2 pró­sent af hlutafé Lands­bank­ans. Bankinn sjálfur á 1,6 pró­sent og aðrir hlut­hafar, aðal­lega fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn bank­ans, 0,2 pró­sent.

Bréfið hefur verið birt á vef Banka­sýslu rík­is­ins.

Í því er meðal ann­ars vitnað til bréfa frá Friðriki Soph­us­syni, for­manni stjórnar Íslands­banka, og Helgu B. Eiríks­dóttur, for­manni banka­ráðs Lands­bank­ans.

Í bréf­inu segir að „frá og með 1. apríl n.k. verða laun Birnu Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Íslands­banka 3.650.000 kr. á mán­uði án hlunn­inda. Í þessu sam­bandi er vert að benda á að laun banka­stjóra án hlunn­inda, sem eru nú 4.200.000 kr. á mán­uði námu 3.850.000 kr. á mán­uði þegar rík­is­sjóður eign­að­ist allt hluta­fé í bank­an­um árið 2016.“

Í bréfi Helgu til Banka­sýsl­unnar segir að banka­ráðið hafi ákveðið að launa­hækk­un Lilju Bjark­ar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans frá 1. apríl 2018 hafi verið tek­in til baka, og þannig komið til móts við þau sjón­ar­mið sem Bjarni Bendikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði komið á fram­færi.

Á móti komi hins veg­ar vísi­tölu­hækk­un frá 1. júlí 2017 til 1. janú­ar 2019 sem nemi 7,81%. „Grunn­laun banka­stjóra eft­ir lækk­un verða 3.297 þús­und krón­ur og bif­reiða­hlunn­indi 206 þús­und krón­ur. Heild­ar­laun banka­stjóra verða því 3.503 þús­und krón­ur,“ segir í bréf­inu.

Lands­bank­inn er stærstur íslenskra banka, og var rek­inn með með mestri arð­semi á eigin fé í fyrra, eins og fjallað var um að vef Kjarnans 14. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Laun banka­stjóra Lands­bank­ans eru nú lang­sam­lega lægst, eins og þau voru reyndar í fyrra einnig. Birna Ein­ars­dóttir var með 5,3 millj­ónir á mán­uði í fyrra og Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka, var með 6,2 millj­ónir á mán­uði.

Sé horft til eig­in­fjár­stöðu bank­anna er Lands­bank­inn tölu­vert mikið stærri en bæðí Íslands­banki og Arion banki. Eigið fé Lands­bank­ans var 239,6 millj­arðar í lok árs í fyrra en hjá Íslands­banka, hinum rík­is­bank­anum, var eigið féð 176,3 millj­arðar króna, og munar þar 63,3 millj­örðum króna.

Hjá Arion banka var eigið féð 200,9 millj­arðar í lok árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár