Bankastjórum Seðlabankans verði fjölgað í fjóra

Lagt er til að banka­stjórum Seðla­banka Íslands verði fjölgað í fjóra í nýjum frum­varps­drögum um bank­ann. Gert er ráð fyrir einum seðla­banka­stjóra og þremur vara­banka­stjórum sem skipta með sér verkum.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Kjarninn.

Seðla­banki Íslands verður skip­aður fjórum banka­stjórum, einum seðla­banka­stjóra og þremur vara­banka­stjórum, sam­kvæmt drögum að frum­varpi um breyt­ingar á lögum um Seðla­bank­ann. Í stað núver­andi fyr­ir­komu­lags Seðla­bank­ans, þar sem það er einn aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra, þá er gert ráð fyrir þremur vara­banka­stjórum sem munu skipta með sér verkum. Einn vara­banka­stjór­inn fari með pen­inga­mál, annar beri ábyrgð á fjár­mála­stöðu­leiga og þriðji verði yfir fjár­mála­eft­ir­liti innan sam­eig­in­legar stofn­unar Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Frá þessu er greint í Mark­að­inum í dag.

Skila drögum að lagafrumvarpi á morgun

[links]Tilkynnt var í októ­ber í fyrra að hafin væri vinna við að sam­eina Seðla­bank­ann og Fjár­mála­eft­ir­litið. Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins ákvað að hefja end­ur­skoðun lagaum­gjarðar um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit. Á vegum ráð­herra­nefnd­ar­innar var skipuð verk­efn­is­stjórn um pen­inga­stefnu, þjóð­hags­varúð og fjár­mála­eft­ir­lit. Hún er skipuð full­trúum for­sæt­is­ráðu­neytis og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis auk tengiliða frá Seðla­bank­anum og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Verk­efn­is­stjórnin á að skila drögum að laga­frum­vörpum til ráð­herra­nefndar eigi síðar en á morgun, 28. febr­úar.

Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins eru lagðar til breyt­ingar um að fjölga skuli banka­stjórum Seðla­bank­ans í fjóra í frum­varps­drögum verk­efn­is­stjórn­ar­innar, sem rædd verða á fundi ráð­herra­nefndar á morgun. Líkt og greint var frá hér að ofan er lagt til að áfram verði einn seðla­banka­stjóri en auk hans verða þrír vara­banka­stjórar sem skipti með sér ólíkum verkum. Verði frum­varpið sam­þykkt á Alþingi þá er áætlað að breyt­ing­arnar munu taka gildi þann 1. jan­úar næst­kom­andi.

Greint var frá því að meg­in­leið­ar­ljós verk­efn­is­stjórn­ar­innar væri að efla traust, gagn­sæi og skil­virkni við yfir­stjórn efna­hags­mála. Miðað skuli við end­ur­skoð­un­ina að við­halda verð­bólgu­mark­miði sem meg­in­mark­miði pen­inga­stefn­unnar og sjálf­stæði Seðla­bank­ans og pen­inga­stefnu­nefndar hans til að beita stjórn­tækjum til að ná því, en jafn­framt gera við­eig­andi breyt­ingar sem efla traust og auka gagn­sæi. Enn fremur átti vinnan að miða við að sam­eina Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið með þeim hætti sem eflir traust og tryggir skil­virkni við fram­kvæmd þjóð­hags­var­úðar og fjár­mála­eft­ir­lits.

Nýr Seðlabankastjóri í ágúst

Skip­un­ar­tími Más Guð­munds­sonar, núver­andi Seðla­banka­stjóra, rennur út þann 20. ágúst næst­kom­andi. Búið að aug­lýsa stöðu banka­stjóra lausa til umsóknar en umsókn­ar­frestur er til 25. mars næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár