„Óforsvaranleg afskipti“ af störfum bankaráðs

Afskipti af störfum banka­ráðs, af hálfu Seðla­bank­ans, eru harð­lega gagn­rýnd í bók­unum banka­ráðs­manna.

„Viðbrögð Seðla­bank­ans, fyrst með frétta­til­kynn­ingu í kjöl­far dóms Hæsta­réttar í máli bank­ans gegn Samherja, hinn 13. nóv­em­ber 2018, og síðan með yfir­lýs­ingu í til­efni af álíti umboðs­manns Alþingi, hinn 19. febr­úar 2019, eru ekki til merkis um að stjórn­endur bank­ans taki til sín þá alvar­legu gagn­rýni á starf­semi og stjórn­sýslu bank­ans sem þar kom fram. Þá eru þau afskipti bank­ans af störfum banka­ráðs, sem að framan eru rakin, í kjöl­far þess að því bár­ust fyr­ir­spurnir frá for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far þess að dómur Hæsta­réttar gekk í máli Samherja hf., ófor­svar­an­leg.“

Þetta segir í loka­orðum bók­unar Þórunnar Guð­munds­dóttur og Sigurðar Kára Krist­jáns­sonar, banka­ráðs­manna Seðla­banka Íslands, en í bók­un­inni gagn­rýna þau Seðla­banka Íslands harð­lega.

Sér­stak­lega er minnst á við­brögð bank­ans við því, að banka­ráð tæki saman grein­ar­gerð, sem fjallað var um á vef Kjarnans fyrr í dag, fyrir Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, vegna Sam­herj­a­máls­ins svo­nefnda.

Segja þau í bók­un­inni að lög­fræði­ráð­gjöf Seðla­banka Íslands hafi reynt að hafa afskipti af vinnu banka­ráðs­ins, og við það eru gerðar alvar­legar athuga­semdir.

„Við und­ir­rituð teljum nauð­syn­legt að að gera alvar­legar athuga­semdir við fram­göngu
Seðla­bank­ans í kjöl­far þess að banka­ráð hóf vinnu sína við að svara erindi for­sæt­is­ráð­herra frá
12. nóv­em­ber 2018. Þær athuga­semdir lúta að því að hinn 7. des­em­ber 2018 barst banka­ráði minn­is­blað frá lög­fræði­ráð­gjöf Seðla­banka íslands með yfir­skrift­inni "Athuga­semdir varð­andi ósk for­sæt­is­ráð­herra um grein­ar­gerð banka­ráðs vegna dóms Hæsta­réttar íslands í máli Seðla­banka íslands­gegn Samherja.

Segir í minn­is­blað­inu að banka­ráðið hafi hafið vinnu við skrif grein­ar­gerðar en að lög­fræði­ráð­gjöf Seðla­bank­ans geri veru­legar athuga­semdir við­fyr­ir­huguð efn­is­tök, sem kunna að valda því að lög­boð­inn trún­aður verði brot­inn .... 1/

Vart þarf að taka fram að lögum sam­kvæmt er ekki ráð fyrir því gert að Seðla­banki íslands hafi
eft­ir­lit með eigin emb­ætt­is­færslum og stjórn­valds­á­kvörð­unum. Er það því ekki hlut­verk bank­ans að gera athuga­semdir við eða að reyna að hafa áhrif á efn­is­tök svara banka­ráðs við fyr­ir­spurn for­sæt­is­ráð­herra þegar banka­ráðið sinnir lög­bundnu eft­ir­lits­hlut­verki sínu.
Enn síður getur talist eðli­legt, hvað þá lögum sam­kvæmt, að Seðla­bank­inn geri til­raun til þess að
hindra að banka­ráðið svari fyr­ir­spurnum þess ráð­herra sem mál­efni bank­ans heyra undir með
þeim hætti sem gert var í minn­is­blaði lög­fræði­ráð­gjafar hans,“ segir í bókun Þórunnar og Sigurðar Kára.

Í bókun þeirra segir enn fremur að Alþingi þurfi að taka sam­skipti yfir­stjórnar Seðla­bank­ans við Umboðs­mann Alþingis, Tryggva Gunn­ars­son, til skoð­unar. „Und­ir­rituð telja að Alþingi hljóti, í ljósi þeirra lýs­inga sem fram koma í áður­nefndu áliti umboðs­manns Alþingis á sam­skiptum hans við Seðla­bank­ann, að taka fram­göngu yfir­stjórnar bank­ans í sam­skiptum sínum við umboðs­mann til sér­stakrar umfjöll­unar og skoð­unar,“ segir í bók­un­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár