Eðlilegt að Seðlabankinn taki haftasöguna til „gaumgæfilegrar skoðunar“

Í sér­stakri bókun tveggja hæsta­rétt­ar­lög­manna í Banka­ráði Seðla­banka Íslands er bank­inn harð­lega gagn­rýndur fyrir hvernig hann tók á málum sem tengj­ast Samherja.

Bankaráð Seðla­banka Íslands segir í grein­ar­gerð sinni til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra að eðli­legt sé að bank­inn taki sögu fjár­magns­haft­anna, sem sett voru á í nóv­em­ber 2008 í kjöl­far hruns bank­anna, til gaum­gæfi­legrar skoð­unar.

Grein­ar­gerðin er ítar­leg en í henni farið yfir for­sendur fjár­magns­haft­anna, þó til­efni hennar séu mál sem tengj­ast Samherja.

Segir í grein­ar­gerð­inni að brýnt sé að bank­inn taki til sín gagn­rýni frá Umboðs­manni Alþingis. Bankinn hefur nú þegar sagt að hann muni end­ur­greiða allar sektir og sátta­greiðslur, vegna rann­sókna og kæru­með­ferða, þar sem stað­fest hafi verið að engin laga­stoð hafi verið fyrir aðgerðum.

„Seðla­bank­inn þarf að fara yfir Sam­herj­a­málið og einnig önnur mál sem lauk með sáttum eða
sektum til að tryggja að með­ferð bank­ans í þessum málum hafi verið sam­kvæmt lögum og fyllsta jafn­ræðis verði gætt. Brýnt er að bank­inn taki þá gagn­rýni sem fram hefur komið af hálfu umboðs­manns Alþingis til ítar­legrar skoð­unar. Hið sama gildir um nið­ur­stöður dóm­stóla og sak­sókn­ara sem fengið hafa mál vegna meintra brota á fjár­magns­höftum til afgreiðslu. Það er bæði mik­il­vægt til að gera upp þessa for­tíð með til­hlýði­legum hætti og til að draga af henni eðli­legan lær­dóm inn í fram­tíð­ina.

Hér skiptir máli að það er erfið reynsla fyrir hvort heldur ein­stak­linga eða for­svars­menn fyr­ir­tækja að verj­ast þungum ásök­unum eft­ir­lits­stofn­unar eins og Seðla­bank­ans jafn­vel þótt þeim tak­ist að hnekkja mála­til­bún­aði stofn­un­ar­innar á end­anum. Þeir sem borið hafa kostnað eða tjón vegna mis­taka í stjórn­sýslu Seðla­bank­ans kunna að eiga rétt á skaða­bótum úr hendi Seðla­bank­ans,“ segir í umfjöllun banka­ráðs.

Garðar Gíslason, lög­maður Samherja, segir grein­ar­gerð­ina mik­inn áfell­is­dóm yfir stjórn­endum Seðla­banka Íslands. „Í grein­ar­gerð­inni kemur fram að seðla­bank­inn hefur ekki ein­ungis beitt fyr­ir­tæki og ein­stak­linga for­dæma­lausri og til­efn­is­lausri vald­níðslu heldur einnig freistað þess að beita sömu fram­göngu gagn­vart öðrum stjórn­völdum, Umboðs­manni Alþingis og nú síð­ast sjálfum for­sæt­is­ráð­herra. Þannig gerði bank­inn til­raun til þess að koma í veg fyrir að banka­ráðið svar­aði bréfi for­sæt­is­ráð­herra með yfir­lýs­ingum og hót­unum um að þar væri um brot á trún­aði að ræða. Banka­ráðið og ein­stakir banka­ráðs­menn sem skila sér­stökum bók­unum, for­dæma harð­lega með marg­vís­legum hætti og orða­lagi fram­göngu seðla­bank­ans í mál­efnum Samherja og ann­arra sem urðu fyrir barð­inu á bank­anum. Fjallað er um lítt dulda mis­beit­ingu valds af hálfu stjórn­enda seðla­bank­ans og hversu langt þeir hafa gengið til að freista þess að við­halda ólög­mætum ákvörð­unum sínum,“ segir Garðar.

Í grein­ar­gerð banka­ráðs­ins segir að þó höftin hafi verið neyð­ar­úr­ræði þá hvíli skylda á stjórn­sýsl­unni að fara að settum lögum og reglum, og gæta að rétt­látri máls­með­ferð.

„Hér skiptir máli að jafn­vel þótt höftin hafi verið neyð­ar­úr­ræði og brýn sem slík þá hvílir jafn­vel við slíkar aðstæður rík skylda á opin­berri stofnun sem falið er hlut­verk við eft­ir­lit og refs­ingar að full­nægja ítr­ustu kröfum um gæði og rétt­læti máls­með­ferðar. Þá þarf vinnan ætíð að byggja á
traustum refsi­heim­ildum.

Á svip­aðan hátt urðu margir inn­lendir aðilar, þeir sem stund­uðu inn- eða útflutn­ing og fleiri, að setja sig inn í ný og flókin hlut­verk sem þeir höfðu engan veg­inn búið sig undir.

Þeir urðu að fara eftir glæ­nýju og að mörgu leyti flóknu og síbreyti­legu reglu­verki í við­skiptum sem sjálf voru oft flókin. Sér­stak­lega var þetta erfitt fyrir inn­lend fyr­ir­tæki sem voru hlutar af fyr­ir­tækja­sam­stæðum sem fluttu tekjur, gjöld, hagnað og fjár­mögnun yfir landa­mæri,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Gylfi Magn­ús­son, for­maður, Bolli Héð­ins­son, Frosti Sig­ur­jóns­son, Jacqueline Clare Mallett, Sigurður Kári Krist­jáns­son, Una María Ósk­ars­dóttir og Þórunn Guð­munds­dóttir eru í banka­ráð­inu.

Harðorð bókun frá Þórunni og Sigurði Kára

Í grein­ar­gerð­inni birt­ast sér­stakar bók­anir, meðal ann­ars frá Unu Maríu Ósk­ars­dóttur, Frosta Sig­ur­jóns­syni og síðan sam­eig­in­lega frá Bolla Héð­ins­syni og Jacqueline Clare Mallett, og Þórunni Guð­munds­dóttur og Sigurði Kára Krist­jáns­syni.

Í bókun Þórunnar og Sigurðar Kára er Seðla­bank­inn, og lög­fræði­ráð­gjöf bank­ans, gagn­rýnd harð­lega.

Í bókun þeirra segir meðal ann­ars: „Þær álykt­anir sem meðal ann­ars má draga af áliti umboðs­manns eru þær að Seðla­bank­inn hafi tekið ákvörðun um að leggja stjórn­valds­sekt á /.../ þrátt fyrir að hafa vitað eða mátt vita að sú ákvörðun skorti við­hlít­andi laga­stoð og að Seðla­bank­inn hefði síðar rétt­lætt þá ákvörðun sína með því að gera umboðs­manni Alþingis upp afstöðu til rétt­læt­ingar á gerðum bank­ans án þess að rétt væri með farið. Í ljósi þess að sömu upp­lýs­ingar lágu fyrir þegar bank­inn tók ákvörðun um að leggja sekt á Samherja hf., sama dag, hlýtur gagn­rýni umboðs­manns einnig að eiga við um þá sekt­ar­gerð og lög­mæti hennar.“

Þá segir enn fremur, að þrátt fyrir að við­fangs­efni haft­anna hafi verið flókin og aðstæður erf­iðar, þá þurfi að fara að lögum. „Sú stað­reynd breytir því hins vegar ekki að ef stjórn­vald mis­fer með vald sitt þá er rétt­mætt að það sæti ábyrgð og mis­tökin séu leið­rétt. Umboðs­maður Alþingis hefur sýnt fram á í áliti sínu frá 22. jan­úar 2019 að Seðla­bank­inn lagði stjórn­valds­sekt á Samherja hf., þrátt fyrir að þá þegar hafi legið fyrr rök­studdar ábend­ingar rík­is­sak­sókn­ara um að laga­heim­ild um slíka stjórn­valds­sekt skorti. Að mínu mati eru það ekki hald­bær rök hjá Seðla­banka að vísa þar til jafn­ræð­is­reglu, að ef eitt fyr­ir­tæki væri sektað þá ætti það sama að ganga yfir þau öll, því í milli­tíð­inni hafði bank­inn upp­lýs­ingar um að sú sekt­ar­gerð stæð­ist ekki lög. Það liggur í hlut­ar­ins eðli að ef stjórn­vald mis­fer með vald sitt og beitir íþyngj­andi refs­ingum þá þarf það stjórn­vald að sæta ábyrgð vegna þess og um leið að rétta hlut þess sem brotið er á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár