Segja hækkun á leigu vera grimmd, taumlausa græðgi og mannvonsku

VR gefur Kviku banka 4 daga frest til þess að láta Almenna leigu­fé­lagið hætta því sem VR kallar grimmd­ar­verk. VR mun taka allt sitt fé úr eigna­stýr­ingu hjá þeim ef leiga félags­ins hækkar umfram verð­lag og ef leigj­endum verður ekki tryggt hús­næð­is­ör­yggi.

Stjórn VR hefur birt opið bréf til Kviku banka á vef­síðu sinni. Í því kemur fram að í ljósi þess að fjár­mála­fyr­ir­tækið Gamma sé í eigu Kviku banka – og stýri Almenna leigu­fé­lag­inu – beina þau orðum sínum til stjórn­enda Kviku banka.

„VR hafa borist gögn með sam­skiptum Almenna leigu­fé­lags­ins við nokkra leigj­endur sína þar sem enn á ný er án fyr­ir­vara, eða nokk­urra hald­bærra raka, kraf­ist tug­þús­unda hækk­unar leigu og leigj­endum settir þeir afar­kostir að sam­þykkja hækk­un­ina ellegar vera hent á göt­una án húsa­skjóls. Umhugs­un­ar­frestur sem leigj­endum er gef­inn til að sam­þykkja eða hafna til­boð­inu er ein­ungis fjórir dagar. Ljóst er að tug­þús­unda hækkun á leigu gerir væntar hækk­anir sem VR er nú að semja um við Samtök atvinnu­lífs­ins að engu,“ segir í bréf­inu.

Stjórnin telur að varla sé hægt að lýsa þessu með öðrum orðum en sem grimmd, taum­lausri græðgi og mann­vonsku.

Sætta sig ekki við ástandið

„Stjórn VR sættir sig ekki við þetta. Við kjósum að láta ekki bendla okkur við aðila sem beita slíkum með­ulum og höfum tekið þá ákvörðun að veita Kviku banka fjög­urra daga frest til þess að láta Almenna leigu­fé­lagið hætta þessum grimmd­ar­verkum og koma því þannig fyrir að leiga félags­ins hækki ekki umfram verð­lag og að leigj­endum verði tryggt hús­næð­is­ör­yggi. Hafi það ekki verið gert innan fjögra daga mun VR taka allt sitt fé úr eigna­stýr­ingu hjá Kviku banka sem er um 4,2 millj­arðar króna,“ segir í opna bréf­inu.

Með bréf­inu er tekið dæmi um póst frá Almenna leigu­fé­lag­inu til leigj­anda sem sendur var fjórum dögum fyrir 5. febr­úar.

„Góðan dag, Nú líður að lokum leigu­samn­ings þíns um íbúð­ar­hús­næði við xxxxxx nr. xx, 108 - Reykja­vík og langar okkur því að bjóða þér að end­ur­nýja hann. Samn­ing­ur­inn rennur út þann 31.03.2019. Við getum boðið þér tveggja ára leigu­samn­ing á kr. xxx.xxx,- á mán­uði. Vin­sam­leg­ast stað­festu end­ur­nýjun fyrir þriðju­dag­inn 5. febr­úar með því að svara þessum pósti. Við biðjum þig jafn­framt um að láta okkur vita viljir þú ekki end­ur­nýja samn­ing­inn.

Endilega vertu í sam­bandi við okkur sem fyrst með hvað þú hyggst gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár