Segir Ísland einungis taka upp 13,4 prósent gerða frá ESB

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra segir mörgum mýtum vera haldið á lofti um EES-samn­ing­inn í ann­ar­legum til­gangi.

„Það eru margar mýtur um EES-samn­ing­inn sem menn hafa því miður haldið á lofti í ein­hverju ann­ar­legum til­gangi. T.d. um að við tökum upp 90 pró­sent af öllu sem ESB er með. Þetta er 13,4 pró­sent. Það er gríð­ar­lega stór munur þar á.“

Þetta sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut þegar þeir ræddu um mál­efni norð­ur­slóða. Guð­laugur Þór sagði að áhugi Kínverja og Rússa á mála­flokknum væri þekktur en auk þess væri mik­ill áhugi í Asíu í heild. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Verulega hefur dregið úr inn­leið­inga­halla Íslands, bæði hvað varðar EES-til­skip­anir og reglu­gerð­ir, á und­an­förnum árum. Hann er nú sá lægst sem verið hefur frá árinu 2010. Guð­laugur Þór segir þessa lækkun á inn­leið­ing­ar­halla ekki snú­ast um að Ísland sé að taka upp til­skip­anir frá Evr­ópu­sam­band­inu án gagn­rýni. „Full­trúar allra fagráðu­neyta voru í Brussel. Því var breytt þegar við sóttum um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sem ég held að hafi verið afskap­lega óskyn­sam­legt og við erum síðan að setja það upp aftur, það ferli. En við erum líka að skanna [reglu­gerðir og til­skip­anir] með skipu­legri hætti eins og þetta kemur á fyrstu stigum, sem er gríð­ar­lega mik­il­vægt.“

[adspot]Guð­laugur Þór segir að Ísland geti haft áhrif á hvernig inn­leið­ingu sé háttað á fyrstu stigum og að það geti verið mjög mik­il­vægt að gera það. „Ástæðan fyrir því að við erum að ná þessum árangri eins og með inn­leið­ing­ar­hall­ann er auð­vitað vegna þess að við höfum unnið skipu­lega að því. Það ger­ist ekki að sjálfu sér.“

Hann segir að Íslands sé farið að vekja athygli Evr­ópu­sam­bands­ins á því að það sé hagur Íslands að það séu sömu leik­reglur fyrir alla á innri mark­aðnum. „Þá má það ekki bara vera í orði, heldur þarf líka að vera á borði.“

Í þætt­inum ræddi utan­rík­is­mála­ráð­herra einnig meðal ann­ars norð­ur­slóða­mál, þriðja orku­pakk­ann og Brexit, svo fátt eitt sé nefnt.

Hægt er að sjá þátt­inn í heild sinn hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár