Magnús Már Guðmundsson nýr framkvæmdastjóri BSRB

Nýr fram­kvæmda­stjóri hefur verið ráð­inn hjá BSRB. Hann tekur við starf­inu af Helgu Jóns­dóttur, sem lét af störfum um ára­mótin.

Magnús Már Guðmundsson
Magnús Már Guð­munds­son Mynd: BSRB

Magnús Már Guð­munds­son hefur verið ráð­inn nýr fram­kvæmda­stjóri BSRB. Hann tekur við starf­inu af Helgu Jóns­dóttur, sem lét af störfum um ára­mótin. Magnús hefur verið borg­ar­full­trúi og vara­borg­ar­full­trúi fyrir Sam­fylk­ing­una frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi frá störfum á fundi borg­ar­stjórnar í næstu viku.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB í dag.

Magnús Már segir þetta vera spenn­andi tíma hjá BSRB eins og ann­ars staðar í verka­lýðs­hreyf­ing­unni og seg­ist hann hlakka til að starfa með öfl­ugu fólki innan banda­lags­ins og í aðild­ar­fé­lögum þess. „Barátta verka­lýðs­fé­laga er bar­átta fyrir bættu sam­fé­lagi sem rímar vel við þær hug­sjónir sem ég hef beitt mér fyrir á öðrum vett­vangi á und­an­förnum árum,“ segir hann.

Magnús er með B.A. próf í sagn­fræði frá Háskóla Íslands með stjórn­mála­fræði sem auka­grein. Hann er með kennslu­rétt­indi sem grunn- og fram­halds­skóla­kenn­ari og hóf nýlega meist­ara­nám í opin­berri stjórn­sýslu. Magnús starf­aði með fötl­uðum börnum og ung­mennum hjá Íþrótta- og tóm­stunda­sviði Reykja­vík­ur­borgar með námi á árunum 2002 til 2008. Hann var frétta­maður á frétta­stofu Vísis.is og Bylgj­unnar að námi loknu en hóf störf sem kenn­ari í Mennta­skól­anum í Kópavogi árið 2011. Hann var kjör­inn vara­borg­ar­full­trúi í Reykja­vík­ur­borg árið 2014, varð tíma­bundið borg­ar­full­trúi árið 2016, en hefur verið vara­borg­ar­full­trúi aftur frá árinu 2017.

„Það er mik­ill fengur fyrir okkur hjá BSRB að fá Magnús Má til liðs við okkur,“ segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB. „Magnús kemur með mikla reynslu með sér til starfa, til að mynda hefur hann stýrt til­rauna­verk­efni um stytt­ingu vinnu­vik­unnar hjá Reykja­vík­ur­borg síð­ustu árin og þekkir því vel til þessa stóra stefnu­máls banda­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár