Tístin um að hlutabréfaverð sé í hæstu hæðum á Wall Street sjást ekki lengur

Banda­ríkja­for­seti fór mik­inn á Twitter á fyrsta árinu í emb­ætti þegar kom að umfjöllun efna­hags­mál, og vitn­aði oft til þess að hluta­bréfa­verð væri í hæstu hæðum. Þetta sést ekki lengur.

„Hluta­bréfa­verð hefur aldrei verið hærra (stocks are all time high)“. Þetta var algeng setn­ing í tístum Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta á fyrst ári hans í emb­ætti, eftir að hann tók við valda­þráðunum í Hvíta hús­inu í jan­úar 2017.

Þá hækk­aði hluta­bréfa­verð jafnt og þétt, og mikil stemmn­ing virt­ist ríkja á Wall Street yfir komu við­skipta­jöf­urs­ins í for­seta­stól­inn.

Þessi tíst for­set­ans sjást ekki lengur, enda ekki til­efni til að setja þau fram.

Óhætt er að segja að árið 2018 hafi ekki verið gott ár á Wall Street. Sér­stak­lega hafa síð­ustu þrír mán­uðir verið mikil rús­sí­ban­areið.

Verðhrun hefur verið á hluta­bréfa­mark­aði, og lækk­aði S&P 500 vísi­talan um meira en fjórð­ung frá sept­em­ber mán­uði og fram til dags­ins í dag. Heild­ar­á­vöxtun fyrir árið er nei­kvæð, og horfur um fram­haldið inn í byrjun næsta árs þykja óljósar.

Hækkun við opnun mark­aða í dag, er sára­bót eftir mikla lækk­una­hr­inu, segir í umfjöllun Wall Street Journal. S&P 500 vísi­talan hækk­aði um 1,64 pró­sent við opnun mark­aða.

Spjót Banda­ríkja­for­seta hafa beinst að Seðla­banka Banda­ríkj­anna, þegar kemur að verð­hrun­inu, en hann hefur fjórum sinnum hækkað vexti á þessu ári. Stýri­vextir eru nú 2,5 pró­sent, og bendir spá bank­ans til þess að þeir muni halda áfram að hækka á næsta ári, en þó minna og hraðar en fyrri spár bank­ans höfðu gert ráð fyrir.

Tímibili ódýrs fjár­magns virð­ist lokið, en vöxtum í Banda­ríkj­unum var haldið í kringum núllið í meira en átta ár, frá því að alþjóða­kreppan náði hámarki á árunum 2007 til 2009.

Helstu hag­tölur frá Banda­ríkj­unum eru þó jákvæðar, á flesta mæli­kvarða. Atvinnu­leysi er lítið, eða í kringum fjögur pró­sent, og hag­vaxt­ar­horfur fyrir næsta ár þykja nokkuð góðar, en seðla­bank­inn býst við hag­vexti upp á 2 til 3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár