Íbúðalánasjóður stofnar opinbert leigufélag

Nýtt leigu­fé­lag hefur fengið nafnið Bríet og mun það taka við flestum þeim fast­eignum sem eru á hendi Íbúða­lána­sjóðs í dag og reka hag­kvæma leigu­þjón­ustu með sér­staka áherslu á lands­byggð­ina.

Ákveðið var á stjórn­ar­fundi Íbúða­lána­sjóðs í morgun að sjóð­ur­inn stofni opin­bert leigu­fé­lag. Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra kynnti ákvörð­un­ina fundi um hús­næð­is­mál lands­byggð­ar­innar, sem hófst nú í hádeg­inu í Dala­byggð. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Í til­kynn­ing­unni segir að leigu­fé­lagið hafi fengið nafnið Bríet og muni það taka við flestum þeim fast­eignum sem eru á hendi sjóðs­ins í dag og reka hag­kvæma leigu­þjón­ustu með sér­staka áherslu á lands­byggð­ina.

Bríeti er ekki ætlað að fara í sam­keppni við einka­rekin leigu­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu. Soffía Guð­munds­dóttir, sem áður var fram­kvæmda­stjóri ráð­gjaf­ar­sviðs hjá Íbúða­lána­sjóði, mun stýra hinu nýja leigu­fé­lagi.

Ákvörð­unin um stofnun nýja leigu­fé­lags­ins hefur verið til skoð­unar um nokkra hríð en gengið var end­an­lega frá henni á stjórn­ar­fundi Íbúða­lána­sjóðs nú í morgun, segir í til­kynn­ing­unni. „Íbúða­lána­sjóður vill taka fram að eng­inn núver­andi leigu­taka þarf að ótt­ast um sinn hag vegna þess­ara breyt­inga. Nánari áherslur í rekstri leigu­fé­lags­ins verða kynntar á næst­unni.“

Ásmundur Einar segir stofnun Bríetar vera við­bragð við erf­iðri stöðu á hús­næð­is­mark­aði sem birt­ist ekki síst í háu verði og skorti á leigu­hús­næði á lands­byggð­inni. Hann seg­ist vilja fá sveit­ar­fé­lög til sam­starfs við nýja félagið en mörg þeirra reka nú þegar félags­legt leigu­hús­næði. Hann telur að hægt verði að bæta gæði, auka fram­boð og draga úr kostn­aði með því að sam­ein­ast um rekstur slíks hús­næðis í stærra félagi sem starfi í þessum til­gangi einum og hafi ekki hagnað að leið­ar­ljósi, umfram það sem þarf til að sinna við­haldi og end­ur­nýjun hús­næð­is­ins.

„Ég er mjög ánægður með þetta skref. Finnar fóru svip­aða leið í sinni hús­næð­iskrísu og þar voru áhrif spenn­unnar á hús­næð­is­mark­aði á almenn­ing mun minni en hér. Ég horfi ekki síst til þess að þverpóli­tísk sátt mynd­að­ist um aðgerð­irnar hjá þeim. Samstaða er mik­il­væg og að farið sé strax í aðgerðir sem nýt­ast fólki í hús­næð­iskröggum. Við þurfum fjöl­breyttar lausnir til að takast á við hús­næð­is­vand­ann. Sem betur fer hefur íbúðum í bygg­ingu farið fjölg­andi upp á síðkastið, þó það sé reyndar lang­mest á suð­vest­ur­horn­inu. Íbúar og atvinnu­rek­endur í sveit­ar­fé­lögum ann­ars staðar á land­inu geta ekki beðið lengur og það er því rök­rétt skref að leggja íbúðir sem ríkið á, í gegnum Íbúða­lána­sjóð, inn í þetta félag. Stór hluti þeirra íbúða er nú þegar í útleigu, en skort hefur á við­hald og lang­tíma­ör­yggi fyrir þá sem þær leigja,“ segir Ásmundur Einar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár