Þrettán nemendafélög gagnrýna niðurskurð til Rannsóknasjóðs

Þrettán nem­enda­fé­lög lýsa yfir áhyggjum af fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði til Rann­sókna­sjóðs í fjár­lögum 2019. Samkvæmt nem­enda­fé­lög­unum mun nið­ur­skurð­ur­inn hafa gríð­ar­leg áhrif á dokt­ors­nám í land­inu, snar­minnka mögu­leika til rann­sókna og veikja háskól­ana.

Þrettán nem­enda­fé­lög um land allt lýsa yfir alvar­legum áhyggjum vegna fyr­ir­hug­aðs nið­ur­skurðar til Rann­sókna­sjóðs í fjár­lögum 2019. Í fjár­lög­unum er fyr­ir­hugað að skera niður fjá­magn til Rann­sókna­sjóðs um 147 millj­ónir króna nið­ur­skurði. Í yfir­lýs­ingu frá nem­enda­fé­lög­unum segir að þetta sé mikið högg fyrir íslenskt fræða­sam­fé­lag sem reiðir sig í stórum stíl á þennan sjóð. Þau lýsa yfir sér­stökum áhyggjum af stöðu dokt­or­snema og nýrann­sak­anda, en sá hópur byggir afkomu sína nær algjör­lega á úthlut­unum úr sam­keppn­is­sjóðum.

„Í stóra sam­hengi fjár­laga hljómar þetta kannski ekki sem mikil fjár­hæð en fyrir þá sem reiða sig á sjóð­inn er um gríð­ar­legar fjár­hæðir að ræða. Sé talan sett í sam­hengi við árs­laun þá kemur í ljós að með þess­ari fjár­hæð væri hægt að fjár­magna tæp þrjá­tíu árs­laun dokt­or­snema eða tutt­ugu og ein árs­laun nýdokt­ora.“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Skora á þingmenn að leiðrétta framlög til menntamála

Nem­enda­fé­lögin taka undir það sem stendur í fjár­mála­áæltun rík­i­s­tjórn­ar­innar fyrir árin 2019 til 2023.„Fjár­mögnun dokt­or­snema er ótrygg og nýliðun akademískra starfs­manna víða ófull­nægj­andi. Þetta skapar hættu á að sú nýja þekk­ing sem gjarnan fylgir ungum vís­inda­mönnum skili sér illa inn í háskól­ana og að það dragi úr tengslum við erlent fræða­sam­fé­lag.“ segir í áætlun rík­i­s­tjórn­ar­innar.

Í yfir­lýs­ingu nem­enda­fé­lag­anna segir að á sein­ustu árum hefur árang­urs­hlut­fall úr Rann­sókna­sjóð lækkað veru­lega, úr 29,6 pró­sentum árið 2015 í 18,4 pró­sent í ár, jafn­vel þó að ekki hafi verið skorið niður til sjóðs­ins að ráði. Því fyll­yrða þau að ef af fyr­ir­hug­uðum nið­ur­skurði verði þá sé ljóst að árang­urs­hlut­fallið mun lækka veru­lega.

„Við teljum ljóst að fyr­ir­hug­aður nið­ur­skurður muni hafa gríð­ar­leg áhrif á dokt­ors­nám í land­inu þar sem brott­fall mun að öllum lík­indum aukast og nýliðun minnka. Mögu­leikar nýrann­sak­enda munu að sama skapi snar­minnka sem mun valda atgervis­flótta og veikja vís­inda­rann­sóknir og háskól­ana til lang­frama. Við skorum því á þing­menn að leið­rétta fram­lög til mennta­mála svo að unnt sé að veita nægi­leg fram­lögtil rann­sókna og vís­inda við háskóla og fræða­stofn­anir á Íslandi.“ segir að lokum í yfir­lýs­ingu.

Undir yfir­lýs­ing­una rita:

  • Fedon – félag dokt­or­snema og nýrann­sak­enda við Háskóla Íslands
  • Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands
  • LÍS – Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta
  • SÍNE – Samband íslenskra náms­manna erlendis
  • RUPA – félag dokt­or­snema við Háskól­ann í Reykja­vík
  • Arkímedes – félag dokt­or­snema við Verk­fræði- og nátt­úru­vís­inda­svið Háskóla Íslands
  • DNR/HVS – dokt­or­snema­ráð Heil­brigð­is­vís­inda­sviðs Háskóla Íslands
  • Félag dokt­or­snema á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands
  • Hugdok – félag dokt­or­snema og nýrann­sak­enda við Hug­vís­inda­svið Háskóla Íslands
  • Seigla: Félag dokt­or­snema á Félags­vís­inda­sviði Háskóla Íslands
  • Nem­enda­fé­lag Háskól­ans á Bifröst
  • Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans á Akureyri
  • Stúd­enta­fé­lag Háskól­ans í Reykja­vík
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár