Eins og „ÁTVR væri að selja grænar baunir og Cocoa Puffs“

Fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda segir að opin­ber hluta­fé­lög á borð við RÚV, Isavia og Íslands­póst hegði sér í raun eins og ríki í rík­inu.

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, segir að ohf-væð­ing fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins hafi verið stór­gölluð.

[links]Fyr­ir­tæki á borð við Íslands­póst, RÚV og Isavia hegði sér í raun eins og ríki í rík­inu. „Það er hægt að halda því fram að stjórn hluta­fé­lags sem fær engar leið­bein­ingar eigi að passa upp á að hluta­fé­lagið þrí­fist sem best. Þá vantar upp á eig­end­stefn­una, að stjórn­mála­menn setji ein­hvern ramma. Það getur bara ekki verið að ríkið eigi að setja upp fyr­ir­tæki sem keppa við allt sem hreyf­ist.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í við­tali Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, við Ólaf í þætt­inum 21 á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í vik­unni. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Ólafur segir að það sé hægt að sjá dæmi um þessa hegðun hjá öllum opin­berum hluta­fé­lög­unum. „Hjá Rík­is­út­varp­inu eru menn í sam­keppni við einka­fram­takið í ein­hverjum bis­ness sem kemur því sem við héldum að væri hlut­verk Rík­is­út­varps­ins ekk­ert við, eins og útleiga á stúd­íói og eitt­hvað svo­leiðis. Isavia er á ótal sviðum í sam­keppni við einka­fram­takið. Þar er reyndar for­stjóri Íslands­pósts stjórn­ar­for­maður. Ríkið er orðið stærsti nær­fata- og snyrti­vöru­sali lands­ins og fyr­ir­tækið reynir að leggja steina í götu þeirra sem reyna að keppa við það til dæmis í bíla­stæða­stæða­þjón­ustu í Keflavík og svo fram­vegis.“

[adspot]Mikil umræða hefur verið um stöðu Íslands­pósts sem hefur farið fram á 1,5 millj­arða króna lán frá rík­inu vegna rekstr­ar­vanda síns. Félag atvinnu­rek­enda hefur kraf­ist þess að fram fari óháð úttekt á starf­sem­inni. Ólafur segir til­gang hennar ekki síst þann að læra af reynsl­unni og koma í veg fyrir að þjóðin sitji uppi með sömu stöðu vegna ann­arra ohf-a sem hafa farið offari í sam­keppn­is­rekstri og röngum ákvörð­unum þar af lút­andi.

For­stjóri Íslands­pósts, Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, sagði í við­tali við Kast­ljósi nýverið, þar sem hann var spurður út í sölu fyr­ir­tæk­is­ins á gjafa­vöru og sæl­gæti. Ingi­mundur sagði að það væri þakk­lát þjón­usta fyrir þá sem þyrftu að fylla upp í pakka sem þeir ætl­uðu að senda. Ólafur segir þann mál­flutn­ing vera kostu­legan. „Þetta er nátt­úru­lega eins og bara að ÁTVR væri að selja grænar baunir og Cocoa Puffs á útsölu­stöðum sínum úti á landi.“

Hægt er að horfa á við­talið við Ólaf í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár