Forsætisnefnd segir Ásmund ekki hafa brotið reglur með akstri sínum

End­ur­greiðslur vegna akst­urs þing­manna verður ekki rann­sak­aður og engar upp­lýs­ingar né gögn eru til staðar sem sýni að refsi­verð hátt­semi, sem eigi að kæra til lög­reglu, hafi átt sé stað.

For­sætis­nefnd Alþingis telur ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­sókn á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði þing­manna. Þá hefur for­sætis­nefnd kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sú athugun sem þegar hefur farið fram á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ásamt skýr­ingum Ásmundar á akstr­inum, „leiði til þess að ekk­ert hafi komi fram sem gefi til kynna að hátt­erni hans hafi verið and­stætt siða­reglum fyrir alþing­is­menn“.

[links]Nefndin telur einnig að ekki hafi komið fram neinar upp­lýs­ingar eða gögn sem sýni að til staðar sé grunur um að refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað við fram settar kröfur um end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem kæra beri sem meint brot til lög­reglu. Þetta kemur fram í svari for­sætis­nefndar við erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Undir það skrifar Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis.

Björn Leví skil­aði inn end­ur­teknu erindi til for­sætis­nefndar í lok októ­ber þar sem kom fram að teldi að rann­saka þurfi allar end­ur­greiðslu­færslur á akst­urs­kostn­aði þing­manna. Í þetta skipt­ið bað hann sér­stak­lega um að end­ur­greiðslur á akst­urs­kostn­aði Ásmundar Frið­riks­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verði rann­sak­að­ar.

[adspot]Tölu­verð umræða var um málið fyrr á árinu í fjöl­miðlum en Ás­mundur fékk 4,6 millj­­ónir króna end­­ur­greiddar vegna akst­­­ur­s­­­kostn­aðar í fyrra. Það þýðir að hann fékk um 385 þús­und krónur á mán­uði í end­­­ur­greiðslu úr rík­­­is­­­sjóði vegna keyrslu sinn­­­ar. Alls keyrði Ásmundur 47.644 kíló­­metra í fyrra, og fékk end­­ur­greitt frá rík­­inu vegna kostn­aðar fyrir þann akst­­ur.

For­sætis­nefnd sendi Ásmundi Frið­riks­syni bréf vegna máls­ins sem hann svar­aði 23. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar hafnar hann því sem hann kallar aðdrótt­anir Björns Levís. Ásmundur hafnar því einnig með öllu að hann hafi mis­notað aðstöðu sína með því að leggja fram mis­vísandi reikn­inga eða reikn­inga vegna per­sónu­legs akst­urs. „Ásakanir um fjár­svik eru rangar. Ég hef gert grein fyrir ferðum mínum í hvert sinn eins og fylgt þar í einu og öllu reglum um þing­far­ar­kostnað, vinnu­reglum skrif­stofu Alþingis og leið­bein­ingum um end­ur­greiðslu ferða­kostn­aðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár