Austur-Evrópa og Evrópusambandið

Staða efna­hags­mála er marg­slungin í Evrópu um þessar mundir. Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, skrif­aði ítar­lega grein um stöðu mála í álf­unni í Vís­bend­ingu sem kom til áskrif­enda 2. nóv­em­ber, síð­ast­lið­inn.

Í frétta­flutn­ingi og opin­berri umræðu er yfir­leitt lögð áhersla á það sem miður fer. Á und­an­förnum árum hefur umræðan um ríki Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) verið í þessum anda. Flestar fréttir hafa verið af efna­hags­vand­ræðum Grikk­lands og nú síð­ustu mán­uði Ítalíu. Í þess­ari grein verður hins vegar varpað ljósi á sumt sem betur hefur gengið.

Aðild að Evr­ópu­sam­band­inu hefur í för með sér ýmis konar hag­ræði fyrir aðild­ar­ríkin. Í fyrsta lagi fær aðild­ar­ríki aðgang að sam­eig­in­legum mark­aði með vörur, þjón­ustu, fjár­magn og vinnu­afl. Í öðru lagi fær það reglur og lög um þessa mark­aði sem hvert ríki verður að inn­leiða. Og með sam­eig­in­legu reglu­verki og lög­gjöf öðl­ast ríkið auk­inn trú­verð­ug­leika í augum þeirra sem vilja fjár­festa í rekstri fyr­ir­tækja. Upptaka evru sem gjald­mið­ils eyðir síðan gjald­mið­ils­á­hættu og eykur þannig sam­þætt­ingu á innri mark­aði.

Ísland nýtur þess að vera á innri mark­aði ESB og að hafa sam­eig­in­legt reglu­verk og lög­gjöf um þessa fjóra mark­aði; markað með þjón­ustu, vörur, fjár­magn og vinnu­afl, þótt landið sé ekki fullur aðili að ESB og geti þess vegna ekki tekið upp evru sem mynt þótt vilji væri til þess.

Hagstæð þróun í Austur-Evrópu

Á síð­ustu ára­tugum hefur orðið stöðugt meiri sam­ein­ing og sam­runi í Evrópu. Evr­ópu­banda­lagið var stofnað árið 1957 en síðan var sam­bandið dýpkað með ákvörðun af frum­kvæði Breta um sam­eig­in­legan markað í Maastricht árið 1992. Ný aðild­ar­ríki bætt­ust við; Aust­ur­ríki, Finnland og Svíþjóð árið 1995 og svo, aftur að frum­kvæði Breta, mörg Austur Evr­ópu­ríki; Rúmenía, Búlgaría og Króatía árið 2000 og síðan fjöldi ann­arra árið 2004. Evran var svo tekin upp árið 1999 en nokkur aðild­ar­ríki ákveðu að halda í eigin gjald­miðli, m.a. Bretland, Svíþjóð og Danmörk. Góðu frétt­irnar eru þær að þótt sam­eig­in­legur gjald­mið­ill hafi haft ýmsar ófyr­ir­séðar afleið­ingar sem ekki sér fyrir enda á að ríkjum Austur Evrópu hefur vegnað vel á árunum frá því að þau gengu í sam­bandið.

Í töfl­unni hér að neðan er sýndur hlut­falls­legur munur á vergri lands­fram­leiðslu (VLF) á mann í hverju landi og í Þýska­landi árið 1999 (mis­munur sem hlut­fall af VLF hvers lands) og svo árið 2014. Árið 1999 voru Austur Evr­ópu­ríkin þau fátæk­ustu í Evrópu og mörg þeirra eru það enn árið 2014. En ýmis­legt hefur breyst. Bilið á milli Þýska­lands og hvers þess­ara ríkja hefur minnkað, því meira sem löndin voru lengra á eftir til að byrja með og einnig kemur í ljós að þau þess­ara landa sem urðu aðild­ar­ríki að ESB hafa einnig vaxið hraðar en þau sem stóðu utan sam­bands­ins.

VLF á mann í Þýska­landi var 152% hærri en í Rúmeníu árið 1999, 141% hærri í Búlgaríu, 118% hærri í Lett­landi, 113% hærri í Litháen og 108% í Eist­landi en bilið hefur minnkað og er nú 79% í Rúmeníu, 97% í Búlgaríu, 66% í Lett­landi, 49% í Litháen og 48% í Eist­landi. Litlu munar nú á sumum Austur- og Mið-Evr­ópu­ríkjum og mörgum ríkjum Vestur Evrópu, mun­ur­inn er ein­ungis 37% á Þýska­landi og Tékk­landi, svo dæmi sé tekið, sem er minni munur en á milli Þýslands og Portú­gals, Grikk­lands, Kýpur og sá sami og Möltu. Þannig er VLF á mann í rík­ustu Austur Evr­ópu­lönd­unum að taka fram úr VLF á mann í fátæk­ari ríkjum Vestur Evrópu.

Greinin er aðeins birt hér að litlum hluta. Greinin í heild sinni birt­ist Vís­bend­ingu síð­ast­lið­inn föstu­dag, 2. nóv­em­ber. Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár