Búast má við hækkun á fargjöldum hjá Icelandair

Hluta­bréf í Icelandair Group hækk­uðu um 7,4 pró­sent í verði í Kaup­höll­inni í gær eftir að félagið birti upp­gjör fyrir þriðja árs­fjórð­ung. For­stjóri flug­fé­lags­ins segir að búast megi við að far­gjöld hækki í takt við hækk­anir á olíu­verði.

For­stjóri Icelandair Group seg­ist ekki trúa öðru en að far­gjöld muni hækka í takt við hækk­anir á olíu­verði. Samkvæmt Boga Nils Bogason, sem sett­ist tíma­bundið í for­stjóra­stól félags­ins í kjöl­far brott­hvarfs Björg­ólfs Jóhanns­sonar í ágúst, þurfa flug­fé­lög til lengri tíma litið að selja flug­æsti á hærra verði en það kostar að fram­leiða þau. Afkomu­horfur félags­ins munu ráð­ast að miklu leyti af þróun flug­far­gjalda á næstu mán­uðum. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og fjár­mál, í dag.

[links]Hagn­aður Icelandair eftir fjár­magnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) var 115 millj­ónir dala, um 14 millj­arðar króna, á þriðja árs­fjórð­ungi, sem er vana­lega sterkasti árs­fjórð­ung­ur­inn í rekstri félags­ins, enda nær hann yfir júlí, ágúst og sept­em­ber sem eru með stærstu mán­uðum árs­ins í ferða­þjón­ustu. Það eru umtals­vert lægri rekstr­ar­hagn­aður en Icelandair var með á sama árs­fjórð­ungi í fyrra, þegar hann var 156 millj­ónir dala, eða tæp­lega 19 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. Um er að ræða sam­drátt upp á 26 pró­sent.

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins var greint frá því að fjár­festar tóku vel í upp­gjör félags­ins fyrir þriðja árs­fjórð­ung, sem birt var eftir lokun mark­aða á þriðju­dag, en til marks um það ruku hluta­bréf í félag­inu upp um 7,4 pró­sent í verði í 530 millj­óna króna við­skiptum í gær. Samkvæmt Elvari Inga Möller, sér­fræð­ingi hjá grein­ing­ar­deild Arion banka, eru skila­boð félags­ins sú að þau hafi tek­ist að leið­rétta þann vanda í leiða­kerf­inu sem olli misvægi á milli flug­fram­boðs á til Evrópu ann­ars vegar og Norður- Ameríku hins vegar og að á næsta ári verði misvægið á bak og burt.

Félagið að ná tökum á innri vandamálum

Elvar Ingi segir félagið hafa glímt við eins konar innri vanda­mál. „Ytri þættir sem félagið hefur litla stjórn á, svo sem þróun á olíu­verði og flug­far­gjöldum, hafa lítið breyst til hins betra að und­an­förnu en hins vegar segir félagið að það sé að ná tökum á innri vanda­mál­unum og að þau ættu bráð­lega að vera úr sög­unni. Skila­boðin eru jákvæð og nú verður að sjá hvort þau raun­ger­ist.“ Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins þá er Icelandair Group að vinna að því að bæta tekju­stýr­ing­ar­leiðir sínar og leita leiða til hag­ræð­ingar, svo sem með betri nýt­ingu á starfs­kröftum og auk­inni sjálf­virkni­væð­ingu .

„Afkomu­horfur félags­ins munu ráð­ast að miklu leyti af þróun flug­far­gjalda á næstu mán­uðum. Nánast hver ein­asti for­stjóri flug­fé­lags í Evrópu hefur sagt að far­miða­verð muni hækka en það hefur samt ekki hækkað enn. Jafnan gengur ekki upp. Það má kannski velta því fyrir sér hvort fram­boðið sé of mikið og félög séu hrædd um að verð­hækk­anir muni koma niður á eft­ir­spurn­inni og nýt­ingu,“ segir Sveinn Þór­ar­ins­son, grein­anda í hag­fræði­deild Lands­bank­ans í sam­tali við Mark­að­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár