Vilja kanna stöðu barna 10 árum eftir hrun

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að kanna stöðu barna 10 ár eftir hrun hefur verið lögð fram af öllum flokkum. Barna­rétt­ar­nefnd SÞ segir að nota þurfi vænk­andi hag rík­is­sjóðs til að leið­rétta nið­ur­skurð­inn sem var á vel­ferð­ar­kerf­inu í kjöl­far hruns­ins.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Vinstri grænna lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í síð­ustu viku þar sem lagt er til að Alþingi feli rík­is­stjórn­inni að skipa starfs­hóp til þess að kanna með heild­rænum hætti stöðu barna á Íslandi tíu árum eftir hrun. Rósa Björk var fyrsti flutn­ings­maður en ásamt henni voru flutn­ings­menn úr öllum þing­flokkum.

Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni skal starfs­hóp­ur­inn hafa sam­ráð við umboðs­mann barna, Barna­vernd­ar­stofu, UNICEF á Íslandi, Vel­ferð­ar­vakt­ina, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og önnur félaga­sam­tök og stofn­anir sem mál­efnið snertir. Starfs­hóp­ur­inn á að skila inn skýrslu til rík­is­stjórn­ar­innar innan sex mán­aða frá skipun starfs­hóps­ins en skýrslan skal vera kynnt Alþingi eigi síðar en fyrir lok 149. lög­gjaf­ar­þings.

Mikið var rætt í upp­hafi hruns­ins um mögu­leg lang­tíma­á­hrif þess á börn. Í grein­ar­gerð til­lög­unnar kemur fram að þess vegna sé talin full ástæða til þess að skoða stöðu barna á þessu tíu ára tíma­bili, 2008 til 2018, og meta áhrif hruns­ins á stöðu þeirra og líðan. Skoða þurfi stöðu út frá félags­legum, sál­rænum og efna­hags­legum áhrifum, sem og hvar þjón­usta við börn hafi verið skorin niður og hvort úrbætur hafi átt sér stað á þessu sviði. Slík könnun nái jafn­framt til víð­tækra þátta og þurfi sér­stak­lega að hafa í huga ýmsar breytur, svo sem kyn, upp­runa, fötlun, efna­hags­lega stöðu, búsetu, fjöl­skyldu­mynstur o.s.frv.

Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að í athuga­semdum barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna er meðal ann­ars komið inn á áhrif efna­hags­hruns­ins á börn og fjöl­skyldur þeirra, sér­stak­lega efna­minni fjöl­skyldur. Enn fremur er í athuga­semd­unum lögð áhersla á mik­il­vægi þess að með vænk­andi hag rík­is­sjóðs yrði leið­réttur sá nið­ur­skurður sem var á sviði vel­ferðar-, heil­brigðis- og mennta­mála í kjöl­far hruns­ins.

Staða barna þremur árum eftir hrun

Í sept­em­ber 2012 voru birtar nið­ur­stöður úr könnun sem gerð var 2011 um stöðu barna í áhættu­hópum á Íslandi sem Vel­ferð­ar­vaktin hafði for­göngu um. Vel­ferð­ar­vaktin á rætur að rekja til árs­byrj­unar 2009 þegar þáver­andi rík­is­stjórn sam­þykkti að stofna sér­staka vel­ferð­ar­vakt sem ætlað var að fylgj­ast með félags- og fjár­hags­legum afleið­ingum banka­hruns­ins.

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kom fram að börn sem stóðu illa fyrir kreppu stóðu enn verr árið 2011, en spurðir voru starfs­menn í heilsu­gæslu­stöðvum, grunn­skólum og barna­vernd­ar­nefndum um land allt. Samkvæmt könn­un­inni birt­ist verri staða einna helst í auk­inni fátækt, ýmsum skerð­ingum á þjón­ustu, minna fjár­magni til íþrótta­iðk­unar, í því að börn hætta í mat­ar­á­skrift í skólum, minni sál­fræði­að­stoð og miklum skuldum heim­il­anna. 

Afleið­ingar þess að búa við þröngan fjár­hag og óvissu geta sam­kvæmt könn­unni verið félag­leg ein­angrun og lík­am­leg van­líðan sem á sér and­legar orsakir. Því var bent á í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar hversu mik­il­vægt það er að aðgengi að sál- og geð­heil­brigð­is­þjón­ustu sé greiður. Enn fremur kom fram að staða fjöl­skyldna, þar sem for­eldrar eru af erlendum upp­runa eða ein­stæðir, virð­ist vera sér­stak­lega við­kvæm í þessu sam­hengi.

Aukið álag á barnaverndarnefndir

Samkvæmt Hag­stof­unni höfðu barna­vernd­ar­nefndir árið 2007 afskipti af 3.852 börnum sem nemur 4,2 pró­sent af heild­ar­fjölda barna 18 ára og yngri. Árið 2016 hafði barna­vernd afskipti af 6,2 pró­sent barna á sama ald­urs­bili, eða sem nam 5.260 börnum. Yfir sama tíma­bil jókst einnig fjöldi barna sem voru vistuð utan heim­ilis. Árið 2005 voru alls 349 börn vistuð utan heim­ilis en árið 2016 voru í heild­ina 401 barn vistað utan heim­ilis.

Eftir hrun var fjöldi atvinnu­lausra á aldr­inum 15 til 19 ára fjór­falt meiri en fyrir hrun bank­anna. Í jan­úar 2011 voru rúm­lega 400 börn á þessum aldri án atvinnu. Árið 2017 störf­uðu 19.804 eða 25 pró­sent barna á íslenskum vinnu­mark­aði. Hins vegar hefur heild­ar­fjöldi starf­andi barna á vinnu­mark­aði dreg­ist nokkuð saman frá árinu 2007 þegar hann var 30 pró­sent.

Bætt staða heimila

Heimilum sem fá greidda fjár­hags­að­stoð hefur fækkað frá árinu 2013 eftir að hafa fjölgað mikið eftir 2007, sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar. Árið 2017 fengu 5.142 heim­ili fjár­hags­að­stoð sveit­ar­fé­laga og hafði heim­ilum sem þáðu slíkar greiðslur fækkað um 12,2 pró­sent frá árinu áður. Breyting í fjölda heim­ila sem fá fjár­hags­að­stoð hefur hald­ist í hendur við þróun atvinnu­leysis eins og kemur fram í graf­inu hér að neðan.

Frá árinu 2016 til 2017 lækk­uðu útgjöld sveit­ar­fé­lag­anna vegna fjár­hags­að­stoðar um 504 millj­ónir króna eða 13,6 pró­sent. Af þeim heim­ilum sem fengu mesta fjár­hags­að­stoð árið 2017 voru heim­ili ein­stæðra barn­lausra karla 43,5 pró­sent, síðan heim­ili ein­stæðra kvenna með börn 23,4 pró­sent og heim­ili ein­stæðra barn­lausra kvenna 22,1 pró­sent.

Vantar heildstætt mat

Í grein­ar­gerð fyrr­nefndar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu kemur fram að nú þegar tíu ár eru liðin frá efna­hags­hrun­inu þá sé ástæða til að kanna hvort börn hafi fengið og notið bætts efna­hags­á­stands lands­ins. Til séu ýmsar rann­sóknir og grein­ingar sem gerðar hafa verið á stöðu og líðan barna á und­an­förnum árum, en þó virð­ist aldrei hafa verið lagt heild­stætt mat á með þeim hætti sem þings­á­lykt­un­ar­til­lagan leggur til. „Þá má þess geta að barna­rétt­ar­nefndin hefur ítrekað bent á að það skorti heild­stætt kerfi um söfnun, vinnslu og grein­ingu gagna um stöðu barna hér á landi, enda er slík gagna­söfnun for­senda þess að raun­veru­lega sé hægt að vinna að auknu jafn­ræði meðal barna á Íslandi,“ segir í til­lög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár