Hefur bakteríuflóran áhrif á hversu kvefuð við verðum?

Rit­stjóri Hvatans veltir því fyrir sér hvort bakt­er­íuflóran hafi áhrif á hversu kvefuð við verðum en sam­kvæmt rann­sóknum er að hægt að skipta fólki gróft upp í sex hópa, byggt á örveruflóru þeirra.

Hefur bakt­er­íuflóran áhrif á hversu kvefuð við verðum? Hvatinn fær ekki nóg af því að dásama örveruflór­una. Það er ein­hvern veg­inn allt sam­hang­andi með þessum utan­að­kom­andi frumum sem við hýsum í lík­ama okkar. Rann­sóknir þess eðlis eru alltaf að verða fleiri og fleiri, okkur til mik­illar gleði.

Eins og les­endur okkar gætu hafa gert sér grein fyrir þá er bakt­er­íur að finna alls staðar, líka í nef­inu á okkur. Nýleg rann­sókn bendir til þess að sam­setn­ing örver­anna þar hafi einmitt áhrif á hversu alvar­leg kvef ein­kenni við þróum með okkur þegar við smit­umst af kvefi.

Kvef er veiru­sýk­ing sem lýsir sér með hori, hósta og almennum slapp­leika. Þær eru nokkrar veir­urnar sem geta valdið þessum kvilla og hafa margir haldið að það sé ástæða þess að kvefið leggst misilla í okkur. Rann­sókn­ar­hópur við Uni­versity of Virginia Health System, skoð­aði hvort fylgni væri á milli örveruflór­unnar í nef­inu og þess hversu slæmt kvef við fáum.

Í ljós kom að hægt er að skipta fólki gróft upp í sex hópa, byggt á örveruflóru þeirra. Þó þessir sömu hópar smit­ist allir af sömu kvef­veirunni, er hægt að spá fyrir um alvar­leika veik­ind­anna með teg­unda­flór­una í hönd­unum. Þeir sem hafa t.d. hátt hlut­fall staphylococcus fá yfir­leitt verra kvef.

Alvar­leiki kve­fein­kenn­anna ræðst ekki af veiru­stofn­inum en fjöldi veir­anna virð­ist ráða ein­hverju þar um. En veiru­magnið var einmitt mis­mun­andi milli hópana sex sem hafa mis­mun­andi örveruflóru, þ.e. veiru­magnið fylgir af bakt­er­íuflór­unni.

Hvort hér sé um að ræða fylgni eða orsaka­sam­hengi skal ósagt látið. Mögulega er það þriðji þátt­ur­inn sem ræður hvoru­tveggja. Hér voru 152 ein­stak­lingar skoð­aðir, bæði fyrir og eftir smit með sama veiru­stofn­inum. En þó er frek­ari rann­sókna þörf til að skera úr um hver hinn raun­veru­legi orsaka­valdur er.

Greinin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár