Úr mestu hækkun í heimi í snögga kólnun

Verulega hefur hægt á verð­hækk­unum á hús­næði að und­an­förnu. Verð­lækkun mæld­ist í ágúst. Þrátt fyrir það vantar ennþá þús­undir íbúða inn á markað til að mæta fram­boði, einkum litlar og með­al­stórar íbúðir.

Fast­eigna­verð hefur hækkað um 4,1 pró­sent á und­an­förnum 12 mán­uðum en verð­lækkun mæld­ist í ágúst frá því í sama mán­uði í fyrra. Þetta er minnsta árlega hækkun sem mælst hefur á fast­eigna­verði í sjö ár, eða frá því árið 2011.

Fast­eigna­verð hefur svo til ekk­ert hækkað á und­an­förnum sex mán­uðum. Það er mikil breyt­ing frá því sem verið hefur á und­an­förnum árum. Fjölbýli hefur hækkað um 3,2 pró­sent á und­an­förnu ári en ein­býl­is­hús um 6 pró­sent.

Mesta hækkun í heimi

Hækkunin á fast­eigna­verði á und­an­förnum árum hefur verið ævin­týri lík­ust. Ekkert ríki upp­lifði við­líka hækk­anir sam­kvæmt skýrslu grein­ingar- og ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Knight Frank. Ísland hefur á und­an­förnum árum verið með svip­aða þróun fast­eigna­verðs og mestu hávaxt­ar­svæði heims­ins, eins og San Francisco borg í Kali­forníu og Seattle í Washington ríki í Banda­ríkj­unum. Á báðum stöðum er hús­næð­is­skortur mikið vanda­mál. Það land sem kom næst á eftir Íslandi í sam­an­tekt Kinght Frank var Nýja-Sjáland en þar hefur ferða­þjón­usta vaxið hratt á und­an­förnum árum, eins og á Íslandi.

Tvöföldun á þremur árum

Árleg hækkun á Íslandi mæld­ist mest 23,5 pró­sent á vor­mán­uðum í fyrra, en á sama tíma var gengi krón­unnar að styrkj­ast gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Sé mælt í erlendri mynt þá tvölfald­að­ist fast­eigna­verð næstum á innan við þremur árum, frá 2014 til og með 2017.

Eign sem var keypt á 250 þús­und Banda­ríkja­dali árið 2014 á Íslandi var komin upp í ríf­lega 500 þús­und Banda­ríkja­dali árið 2017, sé miðað við með­al­talið. Þrátt fyrir að fast­eigna­verð hafi víða hækkað hratt, einkum á ört vax­andi stór­borg­ar­svæðum, þá er ekk­ert sem toppar þessa miklu hækkun sem varð á fast­eigna­verði á Íslandi á fyrr­nefndu tíma­bili.

Mikil kólnun

Eins og áður segir hefur orðið tölu­vert mikil kólnun á mark­aðnum á und­an­förnu ári. Árs­hækkun hefur farið úr 23,5 pró­sent í 4,1, og eru nú farnar að sjást lækk­anir á milli ára.

Þrátt fyrir það eru nýjar íbúðir að koma inn á markað þessi miss­erin sem eru með hærra fer­metra­verð en eldri íbúðir. Segja má að inn­koma þess­ara nýju íbúða á markað haldi lífi í hækkun fast­eigna­verðs­ins. Sér­stak­lega eru nýjar íbúðir mið­svæðis í Reykja­vík dýrar, og má þar nefna íbúð­irnar á Hafn­ar­torgi þar sem fer­metra­verðið á seldum íbúðum er um 900 þús­und krónur.

Ástæðan fyrir hækk­unum á und­an­förnum árum er marg­þætt, en hefur að mati flestra sér­fræð­inga átt sér rök­réttar skýr­ingar. Nefna má sér­stak­lega nokkur atriði.

Í fyrsta lagi hafa laun hækkað um 20 til 30 pró­sent á und­an­förnum þremur árum, svo til heilt yfir vinnu­mark­að­inn, en fast­eigna­verð hefur sögu­lega oft fylgt launa­þróun. Þá leiddi mikið gjald­eyr­is­inn­streymi frá ferða­mönnum - sam­hliða því að fjár­magns­höft voru fyrir hendi - til þess að krónan styrkt­ist, með til­heyr­andi jákvæðum áhrifum á verð­bólgu og vexti. Verð­bólga mælist nú 2,6 pró­sent, eða 0,1 pró­sentu yfir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands.

Þá hefur almenn upp­sveifla í efna­hags­líf­inu einnig haft mikið að segja. Ævin­týra­legur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar, þar sem árlegum heim­sóknum ferða­manna fjölg­aði úr 450 þús­und árið 2010 í 2,7 millj­ónir í fyrra, hefur þar verið í lyk­il­hlut­verki. Áhrif Airbnb og sam­bæri­legrar gisti­þjón­ustu á inter­net­inu hafa einnig verið mikil, en talið er að yfir 3 þús­und íbúðir hafi verið í útleigu til ferða­manna, mið­svæðis í Reykja­vík, þegar mest var.

Einnig skipti máli að eftir hrunið var lítið sem ekk­ert byggt í þrjú ár, og var því komin upp staða á mark­aðnum þar sem upp­söfnuð þörf var orðin mikil, loks­ins þegar upp­bygg­ing hófst. Um leið og mikil upp­sveifla hófst í ferða­þjónst­unni - með til­heyr­andi ruðn­ings­á­hrifum í hag­kerf­inu - mynd­að­ist því fljótt spenna á fast­eigna­mark­aðnum. Eft­ir­spurn var meiri en fram­boð, og því hækk­aði verðið hratt.

Á und­an­förnum árum hafa lífs­kjör Íslend­inga batnað mikið og hafa raunar aldrei verið betri, sé horft til með­al­tals­ins, eins og Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor, benti á ekki alls fyrir löngu. Skuldir, sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu, hafa farið lækk­andi og kaup­máttur heim­ila auk­ist frá ári til árs.

Óvissuþættir

Erfitt er að segja til um hvernig fast­eigna­mark­að­ur­inn mun þró­ast á næst­unni, en það ætti ekki að koma fólki á óvart að upp­lifa í það minnsta svolitlu kólnun í fast­eigna­verðs­þró­un­inni. Það sem fer jafn hratt upp og fast­eigna­verðið á Íslandi gerði getur komið niður aftur.

Bent hefur verið á það að ennþá vanti þús­undir lít­illa og með­al­stórra íbúða inn á mark­að­inn til að mæta vax­andi eft­ir­spurn og sam­kvæmt því er nokkuð í það, að jafn­vægi skap­ist á mark­aðnum, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fram til árs­ins 2020 vantar um 9 þús­und íbúðir, en nú þegar eru þús­undir íbúða í bygg­ingu.

Kjara­samn­ingar munu vafa­lítið hafa mikil áhrif á það hvernig fast­eigna­mark­að­ur­inn mun þró­ast, enda er það kaup­máttur fólks, og hvað það hefur mikið milli hand­anna, sem ræður miklu um kaup­get­una í fast­eigna­við­skiptum. Aðrir þættir skipta einnig miklu máli, eins og hvort það kemur til nið­ur­sveiflu í ferða­þjón­ustu. Fast­eigna­mark­að­ur­inn er að mörgu leyti stærsti grunn­ur­inn í gang­verki fjár­mála­mark­að­ar­ins og því er verð­þróun næm fyrir öll breyt­ingum sem eiga sér stað í hag­kerf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár