Línur skýrast hjá WOW Air í vikunni

Flug­fé­lag Skúla Mogensen leitar fjár­magns með lið­sinni norska verð­bréfa­fyr­ir­tæk­is­ins Pareto Securities.

Flug­fé­lagið WOW Air reiknar með að ljúka skulda­bréfa­út­gáfu upp á 6 til 12 millj­arða íslenskra króna í þess­ari viku, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Reiknað er með að loka­nið­ur­staða í útboð­inu, sem form­lega hófst í lok síð­ustu viku, liggi þá fyrir, en mark­miðið er að fjár­magna félagið til næstu 18 til 24 mán­aða fyrir skrán­ingu þess á markað, fjár­magna starf­sem­ina á nýjan leik og halda áfram vexti félags­ins, sem hefur verið ævin­týri lík­astur á und­an­förnum árum.

Stjórn­völd hafa fylgst náið með gangi mála, eins og greint hefur verið frá í frétta­skýr­ingum Kjarnans, enda er litið svo að rekstur flug­fé­lag­anna beggja, WOW Air og Icelandair, hafi kerf­is­lægt mik­il­vægi fyrir hag­kerfið og að fall félag­anna eða miklir erf­ið­leikar, geti haft keðju­verk­andi nei­kvæð áhrif fyrir ferða­þjón­ust­una.

Í fjár­festa­kynn­ingu WOW Air kemur fram að hlut­deild félags­ins á Kefla­vík­ur­flug­velli hafi verið 37 pró­sent í fyrra, en heild­ar­fjöldi erlendra ferða­manna hér á landi á síð­asta ári var um 2,7 millj­ónir manna.

Skil­málar í skulda­bréfa­út­gáfu WOW Air hafa breyst nokkuð frá upp­haf­legri kynn­ingu fyrir fjár­festa, og er gert ráð fyrir að fjár­festar geti eign­ast hlut í félag­inu, og fái 20 pró­sent afslátt á hlutafé í félag­inu við skrán­ingu á markað.

Fjár­festar fá kaup­rétt að hlutafé í WOW air á 20 pró­senta afslætti þegar félagið fer á markað, miðað við skrán­ing­ar­gengi á þeim tíma sem fyr­ir­huguð skrán­ing mun fara fram. Afsláttur verður 20 pró­sent ef skrán­ingin verður innan tveggja ára en 25 pró­sent ef hún fer fram eftir þann tíma.

Mats Hegg Møllerop, einn starfs­manna Pareto sem hefur yfir­um­sjón með útgáf­unni, sendi fjár­festum upp­lýs­ingar um upp­færða skil­mála útgáf­unnar, snemma morg­uns 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Áfram­hald hefur síðan verið á kynn­ingum fyrir fjár­festum, en erlendir fjár­festar hafa þegar sýnt útgáf­unni áhuga og hafa ein­hverjir skuld­bundið sig til þátt­töku.

Íslenskir fjár­festar, líf­eyr­is­sjóðir, sjóð­stýr­ing­ar­fé­lög, bankar og einka­fjár­festar, hafa einnig fengið kynn­ingar, eins og greint hefur verið frá, en áhugi hefur ekki verið mik­ill úr þeim ranni.

Rekstur WOW Air hefur gengið erf­ið­lega und­an­fari miss­eri og var tap félags­ins 2,3 millj­arðar í fyrra, og um 45 millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 5 millj­arða króna, á tólf mán­aða tíma­bili frá júní í fyrra til júní á þessu ári.

Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var komið undir 5 pró­sent í júní, en frá þeim tíma hefur hluta­féð verið aukið með umbreyt­ingu á kröfum í hluta­fé. Fjár­mögnun félags­ins nú er því lífs­nauð­syn­leg félag­inu.

Skúli Mogensen er bæði eig­andi félags­ins og for­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár