Stóra plan Skúla á að skila WOW Air í fyrsta sætið

WOW Air er í þröngri fjár­hags­stöðu og leita nú auk­ins fjár til að geta haldið vexti sínum áfram.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW Air, ætlar sér að gera félagið mark­aðs­leið­andi á Íslandi strax á næsta ári, gangi áætlun hans eftir. Félagið leitar nú að 6 til 12 millj­örðum króna í brú­ar­fjár­mögnun, til að styrkja fjár­hag félags­ins og við­halda miklum vexti félags­ins.

Frá þessu var greint í Morg­u­blað­inu og Frétta­blað­inu í morgun.

Samið hefur verið við norska verð­bréfa­fyr­ir­tækið Pareto Securities um að hafa umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu og á það að klár­ast á allra næstu vikum eða mán­uðum.

Rekstur WOW Air hefur gengið erf­ið­lega und­an­fari miss­eri og var tap félags­ins 2,3 millj­arðar í fyrra, og um 45 millj­ónir Banda­ríkja­dala, jafn­virði um 4,9 millj­arða króna, á tólf mán­aða tíma­bili frá júní í fyrra til júní á þessu ári.

Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var komið undir 5 pró­sent í júní, en frá þeim tíma hefur hluta­féð verið aukið með umbreyt­ingu á kröfum í hlutafé.

Hægt er að skoða fjár­festa­kynn­ing­una, stóra plan Skúla út úr vanda WOW Air, hér í með­fylgj­andi skjali.

WOW Air hefur gegnt mik­il­vægu hlut­verki við fólks­flutn­inga til lands­ins, á gíf­ur­lega miklum vaxt­ar­tíma í íslenskri ferða­þjón­ustu. Til marks um vöxt­inn þá fór fjöldi erlendra ferða­manna úr 450 þús­und árið 2010 í 2,7 millj­ónir í fyrra. Þar hafa WOW Air og Icelandair verið í burð­ar­hlut­verkum, en erlend flug­fé­lög einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár