Hver svo sem ýtti á takkann þegar myndband af Jóhannesi Stefánssyni var sent á netið, þá er ljóst að einhverjir samherjar voru þar að verki. Og tilgangurinn er sorglega augljós:
Að kasta rýrð á manninn sem birtir upplýsingar er sýna fram á meintar mútur og peningaþvætti Samherja.
Í myndbandinu, sem er nokkurra ára gamalt, ku hann tala mjög óviðurkvæmilega við fyrrum eiginkonu sína. Ég veit ekki annað en það sem stendur í fréttum vegna þess að ég hef ekki horft á myndbandið.
Og ég ætla ekki að gera það.
Jóhannes sjálfur hefur lýst því hreinskilnislega að myndbandið sé frá tíma þegar hann var staddur á slæmum stað í lífinu, eins og það má orða. Hann bað konu sína fyrrverandi og aðra hlutaðeigandi afsökunar og hún féllst á afsökunarbeiðnina og þau sættust og eru í góðu sambandi í dag.
Það hefur komið fram að hún setti myndbandið ekki á netið og vildi ekki að það væri gert.
Af þessum sökum kemur það okkur ekki við hvað Jóhannes kann að segja á þessu myndbandi.
Allra síst í samhengi Samherjamálsins.
Bara alls ekki.
Ég hef sagt það áður en ítreka það þá bara:
Jafnvel þó svo Jóhannes Stefánsson væri versti skúrkur, þá breytir það NÁKVÆMLEGA ENGU um þær alvarlegu sakir á hendur Samherjamönnum er koma fram í gögnum þeim sem hann veitti Wikileaks og fleirum aðgang að.
En þótt hann eigi kannski erfiða tíma að baki og sé enginn hvítþveginn engill, eins og hann hefur svo fúslega viðurkennt sjálfur af mikilli hreinskilni, þá sýnist mér augljóst að siðferðiskennd Jóhannesar sé á ólíkt hærra plani en þeirra samherja sem nú hafa sett þetta myndband á netið.
Manndómur hans er greinilega meiri en nokkurs þeirra sem hingað til hafa tekið til varna fyrir Samherja.
Og sérstaklega þeirra sem settu þetta myndband á netið.
Í augljósri, ömurlegri, lágkúrulegri og reyndar viðbjóðslegri tilraun til að kasta rýrð á uppljóstrarann.
Mig setur eiginlega hljóðan þegar ég reyni að sjá fyrir mér þá samherja Samherja sem ákváðu að setja þetta á netið.
Héldu þeir virkilega að ÞETTA myndi á einhvern hátt bjarga andliti Samherja? Áttu nú Þorsteinn Már og Björgólfur Jóhannsson að geta gengið um keikir?
Eða var þetta bara hefnd af því þeir fundu að Jóhannes kom vel út í sjónvarpinu í gærkvöldi?
Átti bara að reyna að koma í veg fyrir að uppljóstrarinn yrði kosinn maður ársins á einhverri útvarpsstöð?
Átti Samherji að hugga sig við að komið hefði verið í veg fyrir það?
Jesús minn!
Hvílík lágkúra, hvílík botnlaus lágkúra, hvílík dómadags ömurleg lágkúra!
Ekki veit ég hvort það voru Samherjamenn sjálfir eða einhverjir samherjar þeirra í örvæntingarfullri vörninni sem tóku lokaákvörðun um að senda þetta myndband út, en ljóst er að eftir höfðinu dansa limirnir og nú hafa þeir allir sagt sig úr lögum við siðað samfélag.
Athugasemdir