Áhrif skordýraneyslu á heilsuna

Nið­ur­stöður rann­sókna benda ekki bara til þess að neysla á skor­dýrum sé örugg heldur að hún geti bein­línis haft jákvæð áhrif á heils­una.

Krybba
Krybba Mynd: Hvatinn

Neysla skor­dýra hefur lengi vel verið litin horn­auga ì vest­rænu sam­fé­lagi en fjöl­margir fræði­menn hafa þó bent á kosti þess að snúa sér að skor­dýra­áti. Má þar helst nefna þann kostnað sem umhverfið ber af ræktun dýra. Skordýr eru, ennþá a.m.k., að finna í miklu magni í nátt­úr­unni og fæst þeirra telj­ast í útrým­unga­hættu. Það að auki eru skor­dýr einnig góð upp­spretta prótína og fitu, sem og trefja.

Ofan­talið virð­ast þó ekki vera einu kostir skor­dýra­neyslu, en sam­kvæmt rann­sókn gæti neysla á krybbum einnig haft jákvæð áhrif á örveruflór­una í melt­ing­ar­vegi. Rann­sóknin fór fram í banda­ríska háskól­anum Uni­versity of Wisconsin-Madison og var þar fylgst með 20 heil­brigðum ein­stak­lingum, sem bættu krybbum í fæð­una hjá sér.

Hópnum var skipt í tvennt og fékk helm­ing­ur­inn 25 grömm af krybbu­mjöli út á morg­un­mat­inn sinn, meðan hinn helm­ing­ur­inn fékk sams­konar morg­un­mat, án við­bót­ar­efna. Eftir tveggja vikna með­höndlun var gert hlé í tvær vikur og síðan var hlut­verk­unum snúið við, svo úr feng­ust gögn fyrir báða hópa sem með­höndl­un­ar­hópur og sem við­mið­un­ar­hópur.

Tekin voru saur- og blóð­sýni úr öllum ein­stak­lingum fyrir og eftir með­höndlun, í bæði skiptin. Með blóð­sýn­unum voru heilsu­fars­þættir þátt­tak­enda skoð­aðir, svo sem blóð­sykur og styrkur ákveð­inna bólgu­þátta sem og styrkur ens­íma sem hægt er að nota til að meta starf­semi lifr­ar­innar.

Saur­sýnin voru notuð til að meta sam­setn­ingu bakt­er­íuflór­unnar og var miðað á að skoða bakt­er­íur sem þekktar eru fyrir að hafa jákvæð áhrif á heils­una, það er svo­kall­aðar probiotics. Til slíkra bakt­ería telj­ast meðal ann­ars bakt­er­íur af teg­und­inni Bifidobacterium animalis sem rann­sókn­ar­hóp­ur­inn leit­aði sér­stak­lega eftir.

Eftir neyslu krybbu­mjöls­ins jókst tíðni Bifidobacterium animalis að með­al­tali 5,7 falt í melt­ing­ar­vegi þátt­tak­anda. Á sama tíma minnk­aði styrkur TNF-α í blóði. TNF-α er tengt við bólgu­svar svo minnk­andi magn þess í blóði bendir til minni bólgu­mynd­unar í lík­am­anum. Enginn þátt­tak­anda til­kynnti um nei­kvæðar auka­verk­anir á meðan með­höndlun stóð.

Þessar nið­ur­stöður benda ekki bara til þess að neysla á skor­dýrum er örugg heldur að hún getur bein­línis haft jákvæð áhrif á heils­una. Sér­stak­lega á það við í löndum eins og vestu­löndum þar sem skor­dýra­prótín myndi að miklu leiti leysa af hólmi kjöt sem prótín­upp­sprettu. Mikil neysla á rauðu kjöti hefur nefni­lega verið tengd við aukna áhættu á lífs­stílstengdum sjúk­dómum, meðal ann­ars ýmsa bólgu­sjúk­dóma.

Það er því deg­inum ljós­ara að við ættum að taka okkur saman í and­lit­inu, hætta þessum for­dómum og fá okkur krybbu-koktiel í næsta jóla­boði.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár