Bókaútgefendur gagnrýna styrkveitingu Alþingis

Átta bóka­út­gef­endur eru ósáttir við fyr­ir­hug­aða 25-30 millj­óna króna styrk­veit­ingu Alþingis til Hins íslenska bók­mennta­fé­lags í til­efni útgáfu tveggja rit­verka.

Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar
Stein­grímur J. Sig­fús­son er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar Mynd: Bára Huld Beck

Átta bóka­út­gef­endur gagn­rýna fyr­ir­hugað sam­starf Alþingis við Hið íslenska bók­mennta­fé­lag um útgáfu tveggja rit­verka í til­efni ald­ar­af­mælis full­veldis Íslands. Útgef­end­urnir segja geð­þótta ráða för þings­ins og vinnu­brögðin eiga að heyra for­tíð­inni til í sam­eig­in­legri grein í Morg­un­blað­inu í morgun.

Sam­starfið var kynnt með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem lögð var fram síð­asta föstu­dag, en kosið verður um hana á Þing­völlum á morgun. Í til­lög­unni, sem leidd er af Stein­grími J. Sig­fús­syni, ályktar Alþingi að ganga til sam­starfs við Hið íslenska bók­mennta­fé­lag um útgáfu tveggja rit­verka, ann­ars vegar verks um Þing­velli í íslenskri mynd­list og hins vegar nýs yfir­lits­verks um sögu íslenskra bók­mennta frá land­námi til 21. aldar.

Áætlað er að kostn­aður Alþingis við sam­starfið muni nema sam­tals um 25-30 millj­ónir króna, sem yrði deild niður í tíu millj­óna króna útgjöld á hvert ár í þrjú ár. Í rök­stuðn­ingi fyrir sam­starf­inu segir í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu það vera „mjög vel við hæfi“ vegna 100 ára full­veld­is­af­mælis á Íslandi í ár.

„Óljós tenging“ við fullveldisafmæli

Í grein bóka­út­gef­enda í Morg­un­blað­inu í dag voru vinnu­brögð Alþingis harð­lega gagn­rýnd, en höf­und­arnir telja að styrkirnir hefðu átt að fara í gegnum Miðstöð íslenskra bók­mennta, sem ann­ast opin­berar styrk­veit­ingar til bóka­út­gáfu. Samkvæmt þeim er 30 millj­óna króna styrk­veit­ing jafnhá upp­hæð og Mið­stöðin fékk á síð­asta ári, en þar dreifð­ist hún yfir á sjötta tug verka.

Bóka­út­gef­end­urnir segja enn fremur teng­ing­una við full­veld­is­af­mælið óljósa og styrk­veit­ing­una minna á Alþingi fyrri tíma þar sem styrkir til bóka­út­gáfu voru að stórum hluta háðir geð­þótta þing­manna og ráð­herra. „Vinnu­brögðin við þessa styrk­veit­ingu eiga hins vegar að heyra for­tíð­inni tryggi­lega til og okkur finnst með ólík­indum að þing­heimur skuli hafa sam­þykkt þetta með einum rómi, enda eigi menn á þeim bæ að vita betur,“ segir í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fullveldi

Leiðari

Fanney Birna Jónsdóttir

Skuggi Piu

Í dag eru 100 ár liðin frá und­ir­ritun samn­inga um sam­bands­lögin svoköll­uðu, milli Íslands og Dan­merkur. Lögin tóku gildi 1. des­em­ber 1918 eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um haustið og varð Ísland þá full­valda ríki. Stór áfangi í sögu íslensku þjóð­ar­innar. Alþingi hélt í dag hátíð­ar­þing­fund á Þing­völlum til að minn­ast 100 ára afmælis full­veld­is­ins. Greint hefur verið frá því að kostn­aður við...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár