Laun forstjóra Landsvirkjunnar hækkuðu um 1,2 milljónir

Mán­að­ar­laun for­stjóra Lands­virkj­unar hækk­uðu mun meira á síð­asta ári en talið var, en hækk­unin nam um 58 pró­sentum.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Birgir Þór

Mán­að­ar­laun Harðar Arn­ar­sonar, for­stjóra Lands­virkj­unar, hækk­uðu úr tveimur millj­ónum í 3,2 millj­ónir í júní á síð­asta ári, en hækk­unin átti sér stað þegar ákvörðun um laun hans færð­ist frá Kjara­ráði. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn um laun rík­is­for­stjóra, en Frétta­blaðið greindi fyrst frá.

Kjarninn hefur áður fjallað um launa­hækkun for­stjór­ans, en þá var talið að laun hans hafi hækkað úr 1,7 millj­ónum í 2,5 millj­ónir á mán­uði ef miðað er við allt árið 2017. Samkvæmt svari fjár­mála­ráð­herra er þó rétt­ara að launin hafi hækkað úr tæpri 2,1 milljón upp í tæpar 3,3 millj­ónir þann 1. júlí í fyrra eftir að for­stjór­inn færð­ist undan kjara­ráði.[adspot]

Sex forstjórar hækkuðu, einn lækkaði

Hækkun launa for­stjóra Lands­virkj­unar nemur því um 58 pró­sent, en laun ann­arra for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja hækk­uðu einnig umtals­vert þann 1. júlí í fyrra þegar ákvörðun um laun þeirra færð­ust undan kjara­ráði. Þar má nefna laun for­stjóra Isavia sem hækk­aði úr 1,7 millj­ónum í 2,4 millj­ónir, Íslands­pósts sem hækk­aði úr 1,4 millj­ónum í tæpar 1,8 millj­ónir, Lands­bank­ans sem hækk­aði um 2,1 millj­ónum í 3,3 millj­ónir, Orkubús Vest­fjarða sem hækk­uðu úr 1,77 millj­ónum í 1,8 millj­ónir og Rariks, sem hækk­uðu úr 1,6 millj­ónum í 1,7 millj­ónir á mán­uði. Eini for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins sem lækk­aði í launum við brott­fall kjara­ráðs var for­stjóri Kadeco, en laun hans lækk­uðu úr 1,4 millj­ónum í 1,2 millj­ónir.

Samkvæmt Frétta­blað­inu seg­ist Lands­virkjun aðeins hafa verið að efna ráðn­ing­ar­samn­ing við for­stjór­ann, en laun for­stjór­ans hafi lækkað veru­lega þegar þau voru færð undir kjara­ráð í febr­úar 2010. Stjórnin hafi mót­mælt því og lýst því yfir að hún myndi leið­rétta launa­kjör hans í sam­ræmi við upp­haf­lega ráðn­ing­ar­samn­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár