Kastljósið á Íslandi í FIFA-leikjasamfélaginu

Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir er yfir­fram­leið­andi FIFA tölvu­leiks­ins og starfar í Vancouver. Hún segir Ísland njóta góðs af því gríð­ar­lega stóra fót­bolta­sam­fé­lagi sem leik­ur­inn er, og það teygir sig um allan heim, allan sól­ar­hring­inn.

„Já, nú er Ísland bara með jafn mikla athygli á sér í leiknum, og önnur lands­lið. Það er auð­vitað virki­lega gaman,“ segir Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir (Lína), yfir­fram­leið­andi FIFA tölvu­leiks­ins, hjá EA fyr­ir­tæk­inu, sem gefur leik­inn út.

Hún sinnir starfi sínu frá Vancouver í Kanada en starfs­mannateymið hjá FIFA leiknum er einnig með starfs­stöð í Rúmeníu.

Fótboltasamfélag í tölvuheiminum

Mörg hund­ruð starfs­menn vinna við að halda þessu stærsta fót­bolta­sam­fé­lagi í tölvu­leikja­heim­inum, sem fyrir finnst, gang­andi. Það getur verið flókið, enda þús­undir manna að spila leik­inn á öllum tímum. „Við gefum ekki út opin­berar tölur um fjölda spil­ara, en fjöld­inn er mik­ill, eins og fólk getur getið sér til um,“ segir Lína.

Hún segir mik­inn áhuga vera á Íslandi og það sé gaman að finna fyrir því, en íslenska lands­liðið kom nýtt inn í leik­inn í FIFA 18 útgáf­unni.

Lína hefur unnið um skeið hjá EA og sinnti áður yfir­manna­stöðu hjá Star Wars Battlefront tölvu­leiknum og starf­aði í Stokk­hólmi í Svíþjóð. „Þegar ég hitti fólk úr FIFA teym­inu á ráð­stefnum og á fundum, þá nefndi ég nú oft við þau að það væri gaman að sjá Ísland í leiknum. Í fyrstu var hlegið að því, en síðan kom þetta nú bara eftir því sem meira kast­ljós kom á Ísland og árang­ur­inn var betri,“ segir Lína.

Öll flóra mannlífsins

Hún segir að margir geri sér ekki grein fyrir hversu gríð­ar­lega mikið umfang sé á öllu mark­aðs­starfi sem fylgi tölvu­leik eins og FIFA, og að allur heim­ur­inn sé undir, og það í lif­andi heimi allan sól­ar­hring­inn. „Tölvu­leikja­iðn­að­ur­inn er nú þegar kom­inn fram úr kvik­mynda­iðn­aði og ég hef alltaf litið á tölvu­leiki sem einn miðil í boði er. Svipað og bækur eða annað þar sem upp­lýs­ingum er miðlað. Þetta er lif­andi heimur og það er mik­ill mis­skiln­ingur að þeir sem spili tölvu­leiki séu fyrst og fremst strákar og karl­menn á aldr­inum 18 til 35 ára. Tölvu­leikir eru farnir að ná til allra hópa,“ segir Lína.

Hún segir það líka ánægju­legt, að konur séu sífellt að fá meiri athygli í íþrótta­leikjum. Í FIFA eru kvenna­lands­lið þegar komin til leiks, og það sama má segja um NBA Live þar sem WNBA lið eru meðal þeirra sem not­endur geta stýrt. „Þetta er ánægju­legt, hefur fengið góðar við­tökur og á eftir að aukast enn frekar, geri ég ráð fyrir,“ segir Lína.

Í nýj­ustu útgáfu leiks­ins, sér­stakri við­hafnar­út­gáfu vegna HM í Rúss­landi, er íslenska liðið mætt til leiks í nýjum bún­ingum. Vík­inga­klappið er komið á sinn stað, en margir sökn­uðu þess að það hefði ekki fylgt með inn í leik­inn þegar íslenska liðið var loks­ins komið í leik­inn. „Það var nú ekki hægt að sleppa því,“ segir Lína.

HÚH!

Þegar spil­aðir eru leikir með Íslandi í leiknum, og það vinnur, þá fagna leik­menn með áhorf­endum, með Aron Einar Gunn­ars­son fyr­ir­liða í broddi fylk­ingar, og taka vík­inga­klappið víð­fræga. Sann­ar­lega skemmti­legt að sjá hverstu djúpt þessi fögn­uður - sem fór eins og eldur í sinu um heim­inn frá EM í Frakk­landi 2016 - náð í sam­fé­lögum víða. Ímynd Íslands er bein­línis orðin bein­tengd klapp­inu.

Lína stóð á svið­inu á einni stærstu leikja­ráð­stefnu sem fram fer árlega í heim­inum, Electronic Enterta­in­ment Expo í Los Angeles, og kynnti þar nýj­ungar í FIFA tölvu­leiknum. EA heldur við­burða­dag­skrá sína í vik­unni áður en ráð­stefnan sjálf hefst, og var marg­menni á henni.

Stærstu tíð­indin í þetta skiptið voru þau, að nú er Meist­ara­deild Evrópu komin inn í tölvu­leik­inn og verður hluti af nýjum leik, FIFA 19, sem kemur út 28. sept­em­ber næst­kom­andi. „Notendur leiks­ins höfðu kallað eftir því að fá Meist­ara­deild­ina inn og nú er hún að koma inn,“ segir Lína.

Hlutabréfin hafa rokið upp

EA er stórt fyr­ir­tæki í tölvu­leikja­heim­inum, og nemur mark­aðsvirði þess 42,7 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 5 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur um átt­földu virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins.

Gengi bréfa félags­ins hefur rokið upp að und­an­förnu, er nú í kringum 140, en í des­em­ber síð­ast­liðnum var það um 100.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár