Þingmaður Miðflokksins hagnast verulega á lækkun veiðigjalda

Svarar því ekki skýrt, hvort hann telji sig van­hæfan.

Sigurður Páll Jónsson, þing­maður Mið­flokks­ins, er einn flutn­ings­manna frum­varps um að lækka veiði­gjöld, en hann hefur sjálfur veru­legra hags­muna að gæta, að því er fram kemur í Frétta­blað­inu í dag.

Hann er eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins Kári ehf., sem á afla­hlut­deild að verð­mæti 106 millj­ónir króna. Frum­varpið, sem Sigurður er flutn­ings­maður að, mun skila fyr­ir­tæki hans um milljón króna afslætti á veiði­gjöldum, segir í Frétta­blað­inu.

Frum­varpið veitir stærstu útgerð­unum hlut­falls­lega mestan afslátt en einnig þeim minni.

Í Frétta­blað­inu er Sigurður Páll spurður að því, hvort hann telji sig ekki van­hæfan til að fjalla um þessi mál í þing­inu, sem snúa að lækkun veiði­gjalda, í ljósi beinna hags­muna hans sjálfs. „Þá eru nú ansi margir van­hæfir. Eru þá ekki bændur van­hæfir að ræða búvöru­samn­inga?“ spyr Sigurður Páll á móti, í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár