Segir þingmenn ekki geta farið í sumarfrí

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir frum­varp um nýja per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf svo umfangs­mikla að það sé fúsk að ætla að afgreiða frum­varpið á hunda­vað. Slíkt sé full­kom­lega óábyrgt.

Frum­varpi um per­sónu­vernd og vernd per­sónu­upp­lýs­inga, sem beðið hefur verið eftir með nokk­urri eft­ir­vænt­ingu, var útbýtt seinni part­inn í gær á vef Alþingis.

[links]Með frum­varp­inu er vernd per­sónu­upp­lýs­inga koll­varpað. Um er að ræða umfangs­mestu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­inni í tvo ára­tugi sem stað­festa að sá grund­vall­ar­réttur sem felst í vernd per­sónu­upp­lýs­inga ein­stak­linga verði tryggður fyrir alla. Regl­urnar munu einnig efla hinn staf­ræna innri markað Evr­ópu með því að tryggja öryggi í þjón­ustu sem veitt er yfir netið og veita fyr­ir­tækjum rétt­ar­vissu sem bygg­ist á skýrum og sam­ræmdum regl­um.

Frum­varpið byggir á nýrri per­sónu­vernd­ar­reglu­gerð sem tók gildi í Evrópu í síð­ustu viku. Til stóð að setja lög í íslenskan rétt áður en að reglu­gerðin tæki gildi en það náð­ist ekki.

En nú er frum­varpið fram komið, heildar 147 blað­síður að lengd og aðeins fimm þing­fund­ar­dagar eftir með deg­inum í dag. Fyrsta umræða um frum­varpið er fyr­ir­huguð á þing­fundi í dag, verði það leyft í ljósi þess að það er of seint fram komið.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og lög­fræð­ingur, seg­ist í sam­tali við Kjarnann telja að umfang og afleið­ingar þess­arar laga­setn­ingar sé með þeim hætti að þing­inu sé varla stætt á því að taka sér sum­ar­frí.

„Ég fagna því auð­vitað að þetta frum­varp sé fram komið. Ég vildi líka að við gætum fryst tím­ann. En það er glóru­laust að leggja fram við­líka lög á þessum tíma­punkti og full­kom­lega óábyrgt,“ segir Helga Vala.

Hún segir um að ræða svo víð­tæk lög, sem varði grund­vall­ar­rétt ein­stak­linga, almenn­ings á per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga í gengum allt kerfið. „Það er verið að gjör­breyta öllu kerf­inu hjá opin­berum stofn­unum og fyr­ir­tækjum, að við­lagðri refsi­á­byrgð. Það er gerð ákveðin krafa um skýr­leika laga sem mér sýn­ist þetta frum­varp til dæmis ekki upp­fylla.“

Helga Vala seg­ist ekki sjá hvernig þingið eigi að ná að klára að afgreiða lögin „nema við bara sleppum því alveg að fara í sum­ar­frí og það er þá bara fínt. Þá þarf bara að ákveða það núna og vera ekki með þessa blekk­ingu. Ég ætla ekki að vera að stuðla að svona hráka­smíð og hleypa svona hráka­smíð í gengum þingið.“

Hún segir að Björg Thoraren­sen, pró­fessor í lög­fræði við Háskóla Íslands og stjórn­ar­for­maður Per­sónu­verndar, hafi talað um að það þurfi að minnsta kosti að fjór­falda starfs­manna­fjöld­ann hjá Per­sónu­vernd til að halda utan um allt það sem breyt­ist með gild­is­töku lag­anna, eft­ir­lit og annað.

Meðal þess sem kveðið er á um í frum­varp­inu er heim­ild Per­sónu­verndar til að leggja dag­sektir allt að 200 þús­und krónur, sem og stjórn­valds­sektir á ábyrgðar- eða vinnslu­að­ila frá 100 þús­und krónum upp í 2,4 millj­arða eða allt að 4 pró­sentum af árlegri heild­ar­veltu fyr­ir­tæk­is­ins á heims­vísu ef brotið er gegn ákveðnum ákvæðum lag­anna.

„Ætlar þingið í alvöru að afgreiða svona refsi­heim­ildir á korteri núna fyrir þing­lok,“ spyr Helga Vala. Hún segir raun­veru­lega ástæðu fyrir því að reglur þings­ins kveði á um að mál eigi að ber­ast fyrir 1. apríl. Það sé gert til að tryggja að ekki sé farið með lög í gegn á hunda­vaði. Afbrigði séu veit til að leyfa minni­háttar breyt­ingar. „Þetta eru ekki ein­hverjar ein­faldar laga­breyt­ingar. Þetta eru grund­vall­ar­breyt­ingar á öllu kerf­inu.“

Helga Vala spyr um ábyrgð þing­manna. „Ætla þing­menn í alvöru að bera ábyrgð á svona fúski? Ætla þing­menn í alvöru að bera ábyrgð á því að leggja 2,4 millj­arða króna sektir á lög­að­ila með svona vinnu­brögðum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár