Baráttukona bjartsýn á myrkum tímum

Helga Brekkan hitti Olgu Romanova blaða- og bar­áttu­konu og spjöll­uðu þær saman um mann­rétt­inda­bar­áttu hennar en hún stofn­aði hjálp­ar­sam­tökin „Rússland í fang­elsi“ eftir að hún kynnt­ist spill­ing­unni, ofbeld­inu og grimmd­inni þar í landi.

Olga Romanova blaða- og baráttukona.
Olga Romanova blaða- og bar­áttu­kona. Mynd: Mynd úr einkasafni

Rússland er í raun mjög frjálst land tæki­færa. Þú getur náð hárri stöðu, grætt pen­inga og orðið fræg en með einu skil­yrði. Þú mátt ekki skipta þér af stjórn­málum. Þá ert þú góð­borg­ari Pútín­lands. En ef þú ferð að kvarta yfir slæmum loft­gæðum eða að yfir­völd sleppi eitri í ána sem rennur gegnum bæinn. Eða ef þér finnst ekki rétt að þús­undir hunda og katta séu skotnir úti á götum fyrir HM í fót­bolta. Þá ertu komin út á hálan ís og getur ekki lengur treyst á vel­gengni. Það versnar ef þú heldur áfram og spyrð hvers vegna verða vinir Pútíns bara rík­ari og rík­ari? Þá spyrja yfir­völd enn hærra til­baka hvað sé eig­in­lega að þér og hvaðan hefur þú fengið pen­inga til að reka hjálp­ar­sam­tök?

Þetta segir blaða- og mann­rétt­inda­bar­áttu­konan Olga Romanova á nýju heim­ili sínu í Berlín.

Nú hef ég búið í Berlín síðan í sept­em­ber 2017 og veit ekki hvenær ég get snúið aftur til Moskvu. Auðvitað vil ég það, ég er rúss­nesk og þar á ég og fjöl­skylda mín heima.

Hvað gerð­ist í Moskvu í júní 2017?

Snemma morg­uns birt­ust þeir með hús­leit­ar­heim­ildir á skrif­stofu okkar. Ástæðan var sögð grunur um mis­notkun á opin­beru fé, sem við höfum aldrei fengið. Við erum góð­gerða­sam­tök og einnig í stjórn­ar­and­stöðu, hvaðan ættum við að hafa fengið opin­bert fé? Auk þess stóð ein­hver summa á blað­inu í doll­urum, ef fé er greitt í Rúss­landi þá er það í rúblum.

Ég spurði emb­ætt­is­menn­ina og fékk bara svarið: „Já, þú skilur þetta.“

Og auð­vitað geri ég það. Ég er góð í við­skiptum. Að ásaka mig um mis­notkun á fé er bara afsökun.

Vildu þeir að þú yfir­gæfir landið?

Nei, þeir vildu loka mig inni í fang­elsi. Til þess að skaða mig og einnig að skemma fyrir sam­tök­unum sem njóta mik­illar virð­ingar. Þeir hata mig.

Olga Romanova varð þekkt sem sjón­varps­frétta­kona í Moskvu á tíunda ára­tugnum og hefur unnið til fjölda verð­launa. Þar á meðal „Free Press of Eastern Europe“ og tvisvar TEFI verð­launin. Hún lét af störfum í sjón­varpi árið 2005 eftir kröfur um rit­skoðun og starf­aði eftir það á blöðum og tíma­ritum.

Þessir miðlar voru smám saman lagðir niður eða rit­skoð­aðir. Ég hætti að vinna sem blaða­maður og hóf mann­rétt­inda­bar­áttu þegar mað­ur­inn minn Alexey Kozlov var hand­tek­inn árið 2008 og bor­inn röngum sökum. Við­skipta­fé­lagi hans Vladimir Slutsker fyrr­ver­andi þing­maður og vel tengdur vald­höfum reyndi að koma honum á kné.

Etir hand­töku eig­in­manns­ins fór Olga að skrifa „blogg eig­in­konu fanga“ og hjálp­aði fólki í við­skiptum við að takast á við svip­aða erf­ið­leika.

Sem blaða­maður hélt ég að ég þekkti Rússland. En gerði mér grein fyrir því að svo var ekki. Fang­elsin eru hinn stóri ósýni­legi hluti þessa víð­feðma lands þar sem hund­ruðir þús­unda sitja inni. Síðan eru það börn fanga og vinir, varð­menn og dóm­arar, sak­sókn­arar og fleiri.

Ég hafði lesið bækur um rúss­nesk fang­elsi og hélt að ég þekkti þetta. Þegar ég sjálf komst í snert­ingu við þennan heim skildi ég einnig að eng­inn annar mundi hjálpa mér.

Ég stofn­aði hjálp­ar­sam­tökin „Rússland í fang­elsi“, eftir að ég kynnt­ist spill­ing­unni, ofbeld­inu og grimmd­inni. Það sem ég lærði af bar­átt­unni fyrir Alexey og aðra nýt­ist mér í starfi sam­tak­anna.

Á meðan Alexey sat í fang­elsi frá 2008 var gerð heim­ilda­myndin „Frelsum ást­ina“ um þau Olgu og fleiri pör þar sem annað sat í fang­elsi. Olga skrif­aði einnig pistla í Novaya Gazeta um bar­áttu sína við fang­els­is­yf­ir­völd. Blogg hennar og Alexeys varð seinna bókin „Bútirka“ en það er nafnið á fang­els­inu þar sem hann sat fyrst mán­uðum saman í yfir­fullum klefa.

Fyrst var Alexey dæmdur í átta ára fang­elsi en sá dómur var lækk­aður í fimm árið 2011.

Á meðan Olga barð­ist í rétt­ar­sölum tók hún einnig þátt í stofnun sam­taka gegn kosn­inga­svindli og spill­ingu. Með henni voru rit­höf­und­ur­inn Boris Akunin og sjón­varps­mað­ur­inn Leonid Parfyonov. Þau skipu­lögðu fundi með stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov árið 2011 og 2012.

Þúsundir mót­mæltu kosn­inga­svindli og spill­ingu á götum Moskvu og um allt Rússland. Olga var einnig í fram­boði í Moskvu en ákvað að helga sig í stað­inn bar­átt­unni fyrir Alexey og öðrum föngum.

Alexey var síðan sleppt úr fang­els­inu í vinnu­búðum Perm árið 2013. Hann hafði þá setið sak­laus í fang­elsi í tæp fimm ár. Vinna sam­tak­anna „Rússland í fang­elsi“ bar árangur en það er mjög margt eftir ógert. Við bendum stöðugt á vanda­málin undir stjórn fang­els­is­yf­ir­valda FSIN. Þar sitja fyrr­ver­andi starfs­menn leyni­þjón­ust­unnar FSB við stjórn. Auðvitað vilja þeir losna við mig og loka sam­tök­unum.

Hvernig eru tengsl þín við sam­tökin núna?

Starf mitt fyrir sam­tökin heldur áfram eins og venju­lega. Á morgn­ana opnum við spjallið hjá „Rúss­landi í fang­elsi“ bjóðum góðan dag og vinnan hefst. Nú á dögum þarf maður jú ekki að vera lík­am­lega á staðnum. Vinnan heldur ein­fald­lega áfram.

En fyrir sam­starfs­fólk þitt í Moskvu er staðan ekki hættu­leg fyrir þau?

Jú, á vegum skrif­stof­unnar í Moskvu starfa 18 manns. Við erum með skrif­stofu í Nowosibirsk og opnum á þessu ári í St. Pét­urs­borg og Jaroslawl. Allt starfs­fólk sam­tak­anna hefur setið í fang­elsi. Ég hef oft grín­ast með það að ég sé öðru­vísi að því leyti, en nú slapp ég með skrekk­inn frá því að lenda þar sjálf. Auðvitað hafa þau áhyggjur en þau þekkja fang­els­is­heim­inn vel. Við höfum aðstoðað fólk árum saman og getum einnig hjálpað okkur sjálfum.

Hvernig fer starfið fram?

Við hjálpum um 3000 fjöl­skyldum á ári þar sem fjöl­skyldu­með­limur situr í fang­elsi. Ef ein­hver situr inni sak­laus, í Rúss­landi er það um þriðj­ungur fanga, reynum við að skapa mikla umræðu og varpa ljósi á það. Við hjálpum þeim sem þurfa á hjálp að halda. Fjöl­skyld­urnar eiga um sárt að binda og oft er það fyr­ir­vinnan sem hverfur. Við greiðum lög­fræð­ingum, aðstoðum konur og börn. Og ef ein­hver er pynt­aður eða veikur í fang­elsi þá aðstoðum við hann, sama hvaða glæp við­kom­andi kann að hafa framið. Ef hægt er bregð­ast við laga­lega þá gerum við það. Það er sjald­gæft því dóm­arar lesa ekki kvart­anir sem þeim ber­ast. Hins vegar má senda fax til Hæsta­réttar og spyrja óþægi­legra spurn­inga til dæmis um for­tíð yfir­dóm­ar­ans. Við sláum ekki fanga­verði með kylfum eða hengjum þá upp á hand­járnum eins og þeir gera. En við vekjum athygli á þannig fram­komu.

Við höfum einnig skrif­aði víð­tæka skýrslu um það hvernig hægt er að end­ur­bæta rúss­neska fang­els­is­kerfið. Það hefur ekki verið gert síðan 1953 og er svo sann­ar­lega kom­inn tími til.

Olga Romanova hefur kynnt sér fang­elsi í mörgum löndum og ég spyr hana hvar eru bestu fang­elsin að hennar mati.

Í Noregi þar er allt til fyr­ir­myndar. En við verðum nátt­úru­lega að vera raunsæ og reyna að breyta því sem við getum. Í Rúss­landi þurfa fang­elsin á ákveðnum fjölda fanga að halda til að fá fjár­magn frá yfir­völdum. Spilling og ofbeldi er því sam­ofið kerf­inu. Því fleiri rétt­ar­höld og fangar því meiri pen­ingar fyrir sak­sókn­ara og lög­fræð­inga. Þetta fjallar bara um pen­inga fyrir suma.

Hvaðan koma pen­ing­arnir til að reka sam­tökin ykkar?

„Rússland í fang­elsi“ sam­anstendur af þremur hlutum. Eitt eru félaga­sam­tök, eitt hjálp­ar­sam­tök sem eru skráð hjá hinum opin­bera og eitt er fyr­ir­tæki. Ég er skráður yfir­maður allra þriggja. Fyr­ir­tækið rann­sakar mis­mun­andi hliðar rúss­neska fang­els­is­kerf­is­ins og hefur m.a. Skrifað betr­un­ar­til­lögur. Það verk­efni kom frá fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Alexej Kudrin og fyr­ir­tækið fékk eina milljón rúblna til þess. (1.8 millj iskr.) Þessa pen­inga tók ég inn og færði áfram í hjálp­ar­sjóð­inn. Eig­in­lega áfram til mín. Auk þess hefur fyr­ir­tæki mitt einnig fengið verk­efni frá Lewada- Centrum til að fram­kvæma skoð­ana­könnun á gyð­inga­hatri í rúss­neskum fang­elsum. Það sem við fáum til að fram kvæma pöntuð verk­efni er um það bil 5% af fjár­hags­á­ætlun okkar. 70% kemur frá sex vel­gjörð­ar­mönnum. Afgang­ur­inn frá fjár­söfn­unum. Eitt sem hefur breyst hvað mig varðar í Berlín: Ég sá um að safna þessu fé þegar ég var í Rúss­landi. Það geri ég nú frá Þýska­landi.

En opin­bert rúss­neskt fé höfum við aldrei fengið og ekki heldur fjár­mögnun frá útlöndum. Reyndar vorum við nú að fá skrán­ingu hjá ESB og munum því innan skamms setja upp Evr­ópu­fána á skrif­stofum okkar.

Verða sam­tökin þá ekki að skrá sig sem "erlenda aðila" eins og mörg óháð sam­tök í Rúss­landi?

Jú auð­vitað, en við ætlum ekki að skrá okkur sjálf. Ef þeir vilja gera það þá gott og vel. Þá gerum við eins og Memorial, þau skrifa að þau séu sam­kvæmt fyr­ir­mælum Dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins erlendur aðili.

Olga stendur upp og þurrkar með fingrinum ofan af skáp, skoðar hvort þar sé ryk.

Í næstu viku kemur móðir mín frá Moskvu hingað til Berlínar í heim­sókn. Hún er á átt­ræð­is­aldri og hefur aldrei ferð­ast frá Rúss­landi hvað þá með flug­vél. Ég er búin að bóka miða á söng­leik fyrir okkur og hlakka til að sýna henni borg­ina.

Næst þegar ég hitti Olgu í Berlín er það á sjón­varps­stöð­inni Ost-West þar sem hún vinnur sem pistla­höf­undur. Pistill dags­ins fjallar um elds­voð­ann sem geis­aði dag­inn áður í versl­un­ar­mið­stöð í Kemerovo í Síberíu. Hún lýsir samúð sinni með aðstand­endum þeirra 64 sem létu lífið. Síðan segir hún að þetta sé því miður aðeins eitt af mörgum dæmum um áhrif spill­ingar í Rúss­landi. Þar sem bruna­ör­yggi er fórnað fyrir snöggan gróða. Frammi bíður Alexey eig­in­maður Olgu sem er í heim­sókn frá Moskvu. Ljúfur maður sem er greini­lega glaður að hitta eig­in­kon­una aftur.

„Olga er alltaf dug­leg og bjart­sýn. Það var hún sem hélt alltaf bjart­sýn­inni og bar­áttu­and­anum þegar ég sat í fang­elsi,“ segir hann.

Daginn eftir ætla hjónin saman í stutt frí. Síðan fer hann aftur heim til Moskvu þar sem hann heldur m.a. áfram að vinna fyrir sam­tökin „Rússland í fang­elsi“.

Ég vil fara heim ... en ég veit ekki hvenær það verður mögu­legt. Reyndar þá finnst mér ég vera eins og í öðrum hluta Moskvu. Ég hitti mikið af vinum og kunn­ingjum. Blaða­menn, lista­menn og rit­höf­undar sem hafa þurft að yfir­gefa Rússland. Annað dýr­mætt sem ég upp­lifi hér er að ég hitti og vinn með mörgum frá Úkraínu. Það er óhugs­andi í Rúss­landi í dag. Ég hef engan áhuga á því lengur að stöðugt þurfa að lýsa því yfir að ég sé á móti her­nám­inu á Krím­skaga og gegn stríð­inu í Úkraínu. Hér í Berlín þarf ég þess ekki þó það séu margir rússar í Þýska­landi sem styðja Pútín.

Í Þýska­landi búa um 3 millj­ónir rússa og fjöldi þeirra horfir á rúss­neskt rík­is­sjón­varp. Ost-West er til­raun til þess að spyrna við áróðri frá Kreml og veita upp­lýs­ingar á rúss­nesku um Þýska­land og Rússland, stjórn­mál og menn­ingu. Stöðin er með 100.000 áskrif­endur á net­inu.

Þann 26. apríl kynnti Olga nýja bók eftir sig í beinni útsend­ingu á Ost-West að við­stöddum blaða­mönnum. Bókin sem ber nafn sam­tak­anna „Rússland í fang­elsi“ byggir á sögum sem hún hefur heyrt og safnað frá því að hún stofn­aði sam­tökin. Fyrsta prentun bók­ar­inn seld­ist strax upp í Rúss­landi. Mynd­skreyt­ingar eru eftir Oleg Navalny bróður Alexey Navalnys stjórn­ar­and­stæð­ings. Oleg situr í fang­elsi en mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur úrskurðað þann dóm rangan.

Sögurnar í bók­inni bera þess merki að fang­els­is­heim­ur­inn er heimur kvenna.

Konur í fang­elsi fá engar heim­sóknir frá karl­mönnum en aftur á móti standa konur í bið­röðum fyrir utan fang­elsin með nauð­synja­vörur handa eig­in­mönnum, feðrum eða sonum sínum. Ef þar stendur karl­maður þá er hann örugg­lega að heim­sækja föður eða son sem situr inni. Konur í Rúss­landi lifa erf­iðu lífi og stefna stjórn­valda bætir ekki stöðu þeirra.

Af hverju skrif­aðir þú þessa bók?

Þegar ég skrif­aði bók­ina ótt­að­ist ég að hafa gleymt. Að gleyma ein­hverju af öllu því mik­il­væga sem ég hef lært af kynnum mínum og fang­els­is­sögum und­an­farin tíu ár. Ég breytti sumum nöfnum og stað­ar­háttum. Eða sam­ein­aði nokkrar per­sónur í eina. Sumar sögur fór ég vand­lega yfir í sam­ræmi við vitn­is­burði og dóms­skjöl. Því er ein sagan um óhefð­bundið líf frægs dóm­ara í Moskvu. Auðvitað fjar­lægi ég nöfnin, þó að per­sónan virð­ist auð­þekkj­an­leg.

Oftast ef ein­stæð móðir fer í fang­elsi fara börnin á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili. Þá er eng­inn til þess að fara með þau í heim­sókn til móð­ur­innar sem situr kannski í hund­ruða kíló­metra fjar­lægð. Ein sagan fjallar um þannig ferða­lag barns á Ark­hang­elsk svæð­inu. Barn sem er í áfalli bæði af löngu ferða­lagi með ókunn­ugum og síðan að hitta konu sem kallar sig mömmu og býr á hræði­legum stað.

Eru þetta hræði­legar sögur?

Reyndar held ég að bókin mín sé ekki hræði­leg. Þó margir atburðir séu það. Hún fjallar líka um ást sam­kennd og það hvernig fólk hjálpar hvert öðru við hræði­legar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár