„Hlustum á 14 ára stelpur“

Til að mæta ófremd­ar­á­standi í 9. bekk Aust­ur­bæj­ar­skóla, þar sem nokkrir drengir, með ólátum og stælum, skildu lítið rými eftir fyrir stelp­urnar, hafa bekkj­ar­systur þeirra myndað hljóm­sveit.

Til að mæta ófremd­ar­á­standi í 9. bekk Aust­ur­bæj­ar­skóla, þar sem nokkrir drengir, með ólátum og stælum, skildu lítið rými eftir fyrir stelp­urnar, hafa bekkj­ar­systur þeirra myndað hljóm­sveit með hjálp Bryn­hildar Karls­dóttur. Hún ákvað að nota tæki­færið sem fólst í þessu ástandi og vinna verk­efni sem snýr að því að vald­efla stelp­urnar.

Í kvöld munu fjórar 14 ára stelpur koma fram í húsi Lista­há­skóla Íslands að Sölv­hóls­götu. Sýningin er loka­verk­efni Bryn­hildar Karls­dóttur nema á öðru ári við skól­ann. Að verk­efn­inu vinnur Bryn­hildur með yngri systur sinni, Álfheiði og bekkja­systrum hennar úr 9. bekk við Aust­ur­bæj­ar­skóla.

Kveikjan að sýn­ing­unni er ástand sem mynd­að­ist í bekknum hennar Álf­heiðar. Móðir Bryn­hildar og Álf­heiðar, Ásdís Olsen, segir frá ástand­inu í skóla dóttir sinnar á Facebook. „Í byrjun vetrar spurð­ist út að ófremd­ar­á­stand ríkti í bekknum og hefði gert í langan tíma, að nem­endur væru með síma í tímum og að nokkrir drengir væru með ólæti og stæla, að and­rúms­loftið væri þrúg­andi, að kenn­arar mættu bekknum með kvíða og kreppta hnefa og að megnið af kennslu­stundum færi í að tjónka við dreng­ina. Stelp­urnar, sem eru aðeins 7 í þessum bekk, hafa van­ist því að taka lítið pláss og fá litla athygli.“

Á öðru ári í Lista­há­skól­anum þurfa nem­endur að skila ein­stak­lings­verk­efni og ákvað Bryn­hildur að vinna verk­efnið með systur sinni. Syst­urnar töl­uðu saman um ástandið í bekknum og varð svo úr að þær buðu bekkj­ar­systrum Álf­hildar að vera með í verk­efn­inu. Í sam­tali við Kjarnann sagði Bryn­hildur verk­efnið snú­ast um að gefa fólki tæki­færi til þess að hlusta á það sem 14 ára stelpur hafa að segja. Verk­efnið snýst um að styrkja stúlk­urnar og var ferlið jafn­vel mik­il­væg­ara heldur en loka­út­koman sjálf.

„Það er alltaf verið að bíða eftir að þetta ástand verði lagað en svo ger­ist það bara ekki.“ segir Bryn­hildur. Ástandið bitnar á stelp­unum sem langar að vera læra í skól­anum og hafa gaman. Verkið vann hún með stelp­unum í gegnum sam­töl og ýmsar æfingar. Bryn­hildur segir stelp­urnar vera mikla femínista með sterka póli­tíska rétt­hugsun, en að það fái ekki rými í þeirra nærum­hverfi.

„Það sem virð­ist ger­ast á ung­lings­ár­unum er að strák­arnir taka vanda­málin sín út og fá ein­hverja útrás. En stelpur fara ein­hvern­vegin inn í sig. Frá mínum bæj­ar­dyrum séð verður skað­inn annar hjá þeim því þær fá ekki að tjá til­finn­ing­arnar sínar og fá ekki að standa upp fyrir því sem þær trúa.“

Þær ræddu vanda­málið og komu með hug­myndir um hvernig væri hægt að leysa það en mark­miðið snýr að því hvernig er hægt að styrkja stúlk­urnar. „Við byrj­uðum að tala mikið um vanda­málið og femín­isma. Við lásum bók um upp­reisnar konur og horfðum á heim­ild­ar­myndir. Síðan fórum við í hópefl­ing­ar­leiki og karókí og vorum að reyna að koma þeim út úr kass­anum.“ segir Bryn­hildur. Hún próf­aði að fara með þær upp í hljóm­sveit­ar­hús­næði og leyfði þeim að prófa sig áfram með hljóð­færin. „Þá ein­hvern­vegin bara gerð­ist ein­hver snilld. Þegar þær voru með raf­magns­gítar og míkra­fón þá fóru þær allt í einu að segja eitt­hvað sem ég hefði ekki getað togað út úr þeim á annan hátt.“ segir Bryn­hildur.

„Og þá fannst mér þetta vera svo brillj­ant að úr þessu verk­efni yrði bara pönk­hljóm­sveit og það yrði ein­hvern veg­inn „statem­entið“.“ Hún segir hljóm­sveit­ina þannig hafa orðið svarið við öllum þeim spurn­ingum sem þær hafi verið að spyrja sig. „Hvernig þær geta tekið pláss og hvernig þær geta tjáð hlut­ina sem þær vilja segja og hvernig þær geta staðið saman og myndað heild.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár