Lagaumhverfi leigubifreiðamarkaðarins samkeppnishamlandi

Sami fjöldi leigu­bif­reiða starf­andi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum og var fyrir ell­efu árum síðan, þrátt fyrir mikla fólks­fjölgun og spreng­ingu í komu ferða­manna. Sam­kepp­ins­eft­ir­litið segir tak­mörkun á fjölda hafa aug­ljós nei­kvæð áhrif á sam­keppni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir lagaum­hverfi leigu­bif­reiða­mark­að­ar­ins sam­keppn­is­hamlandi. Það hefur ítrekað mælst til þess að lagaum­gjörð rekstrar leigu­bif­reiða verði end­ur­skoðuð og hinar opin­beru hömlur afnumdar. Þetta kemur fram í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Við­reisnar og Pírata um frelsi á leigu­bif­reiða­mark­aði.

Í til­lög­unni er mælst til þess að Alþingi feli sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra að afnema hámarks­fjölda atvinnu­leyfa til leigu­bif­reiða­akst­urs, fækka kvöðum fyrir veit­ingu þeirra og opna íslenskan leigu­bif­reiða­markað fyrir auk­inni sam­keppni.

Eft­ir­litið segir að tak­mörkun á fjölda leigu­bif­reiða hafi aug­ljós nei­kvæð áhrif á sam­keppni. Fjöldi leigu­bif­reiða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum sé þannig svip­aður og þegar Sam­keppn­is­eft­ir­litið skrif­aði álit til sam­göngu­ráð­herra fyrir 11 árum síðan, þrátt fyrir mikla fólks­fjölgun og spreng­ingu í komu ferða­manna til lands­ins. Mælist Sam­keppn­is­eft­ir­litið til þess að þetta ákvæði lag­anna verði end­ur­skoðað.

Einnig ákvæði um bann við að veita fleiri en eitt atvinnu­leyfi til hvers aðila. Það komi í veg fyrir að hægt sé að stofna leigu­bif­reiða­stöðvar með því að kaupa öku­tæki, afla starfs­leyfis og ráða öku­menn í vinnu. Áskiln­aður um að akstur leigu­bif­reiðar sé aðal­at­vinna þeirra sem stunda akst­ur­inn ætti líka að vera afnum­inn.

„Á tak­mörk­un­ar­svæði sem nær til höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Suð­ur­nesja eru, skv. upp­lýs­ingum frá Sam­göngu­stofu, í gildi 547 virk leyfi til leigu­bif­reiða­akst­urs og leyfi í tíma­bund­inni inn­lögn 48 tals­ins. Starfa nú sex leigu­bíla­stöðvar á svæð­inu. Tak­mörk­un­ar­svæðið er kallað svo af því að aðgangur nýrra bif­reiða­stjóra er tak­mark­aður og að öðru jöfnu óheim­ill nema þegar ein­hver þeirra bif­reiða­stjóra sem fyrir voru hafi hætt störfum, og þá aðeins að upp­fylltum til­teknum skil­yrðum. Á svæð­inu geta að hámarki til­tek­inn fjöldi atvinnu­bíl­stjórar starfað á hverjum tíma. Núna eru virk útistand­andi leyfi 547 tals­ins og hefur þeim frekar fækkað en fjölgað að und­an­förnu,“ segir í umsögn­inni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir enn fremur að það hafi á liðnum árum birt stjórn­völdum umsagnir í til­efni af vinnu á þeirra vegum sem hafi haft að mark­miði að end­ur­skoða reglu­verð um leigu­bif­reiða­akstur. Að auki hafi það beint form­legum álitum til ráð­herra, síð­ast í des­em­ber síð­ast­liðnum vegna vinnu starfs­hóps um heild­ar­yf­ir­ferð reglu­verks um leigu­bif­reiða­akstur. Það hafi lagt áherslu á að kraftar sam­keppn­innar fái notið sín á þessum mark­aði eins og öðrum, en með virkri sam­keppni sé almennt stuðlað að lægra verði til neyt­enda og betri þjón­ustu við þá.

Bæði Neyenda­sam­tökin og Félag atvinnu­rek­enda hafa lagt inn umsagnir um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una og taka í sama streng.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leigubílar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár