Helmingi færri taka leigubíla

Leigu­bíl­stjórar finna veru­lega fyrir fækkun ferða­manna og minni ferða­lögum Íslend­inga til útlanda. Notkun á leigu­bílum í júlí er aðeins um helm­ingur á við það sem hún var á sama tíma á síð­asta ári.

Ásókn í ferðir leigubíla hrundi þegar Covid-faraldurinn kom en nokkuð hefur glæðst undanfarið eftir að flugferðum fjölgaði.
Ásókn í ferðir leigu­bíla hrundi þegar Covid-far­ald­ur­inn kom en nokkuð hefur glæðst und­an­farið eftir að flug­ferðum fjölg­aði. Mynd: Bára Huld Beck

Sumarið 2020 er sér­stakt fyrir margar starfs­stéttir sem sinna ýmiss konar þjón­ustu, þar á meðal fyrir leigu­bíl­stjóra. Á þessum árs­tíma er vana­lega nóg um túra til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og heil­mikið að gera fyrir leigu­bíl­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sú er ekki raunin þennan júlí­mánuð.

Covid-far­ald­ur­inn hefur haft veru­leg áhrif á ásókn í ferðir með leigu­bílum. „Til að byrja með dróst þetta saman um 80 til 90 pró­sent og hélst þannig fyrstu tvo mán­uð­ina. Svo þegar þjóð­fé­lagið fór að opn­ast þá fór þetta aðeins að lag­ast. Nú erum við með svona 50 til 60 pró­sent af því sem væri vana­lega,” segir Guð­mundur Börkur Thoraren­sen fram­kvæmda­stjóri BSR.

Munar um þá sem komið hafa frá 15. júní

„Við erum að byrja að sjá fleiri útlend­inga og fáum pant­anir frá hót­elum og Kefla­vík­ur­ferðir. Það munar tölu­vert um þessa 60 þús­und manns sem eru búnir að koma hingað síðan 15. júní þegar opn­aði. Það kemur aðeins upp á móti.”

Guð­mundur bendir einnig á að það hafi áhrif að Íslend­ingar séu minna að ferð­ast með leigu­bílum en oft­ast áður í júlí, enda séu margir á ferð og flugi inn­an­lands. „Á meðan fólk er úti á landi er það ekki að nota leigu­bíl í bænum." Þá eru færri ferðir með Íslend­inga til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli af skilj­an­legum ástæðum.

Mestu munar þó um fækkun erlendra ferða­manna en hjá BSR voru þeir um helm­ingur við­skipta­vina leigu­bíl­stjóra á vegum fyr­ir­tæk­is­ins á þessum árs­tíma í fyrra.

Guð­mundur seg­ist frekar bjart­sýnn á haustið og bindur vonir við að fleiri ferða­menn komi til lands­ins.

„Alveg saman hvar ég ætti heima í heim­inum þá myndi mér finn­ast ísland spenn­andi ferða­manna­staður. Það eru ekki eins miklar tak­mark­anir og lok­anir hérna. Sumarið er búið að taka vel á móti okkur og þjóð­fé­lagið er frekar jákvætt og þegar svo er þá er alltaf meira að gera hjá okkur.” 

Alls eru leyfi fyrir 580 leyfum til akst­urs leigu­bif­reiða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Sam­göngu­stofu eru virk leyfi nú 495 tals­ins. Mun fleiri inn­lagnir á leigu­bíla­leyfum hafa verið eftir að Covid-far­ald­ur­inn hófst heldur en áður. Mörg þeirra eru þó aðeins í tíma­bund­inni inn­lögn, sem þýðir að við­kom­andi leigu­bíl­stjórar geta virkjað þau að nýju þegar betur árar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár