Tíu staðreyndir um málefni kjararáðs

Ákvarð­anir kjara­ráðs um að hækka laun æðstu emb­ætt­is­manna langt umfram við­mið í land­inu hafa valdið því að stétt­ar­fé­lög lands­ins telja for­sendur kjara­samn­inga brostnar. Og við blasir stríðs­á­stand á vinnu­mark­aði.

Ákvarðanir kjararáðs hafa sett kjarasamninga í uppnám og verkalýðs- og stéttarfélög fara fram á sambærilegar launahækkanir fyrir sína skjólstæðinga og embættismenn hafa fengið.
Ákvarð­anir kjara­ráðs hafa sett kjara­samn­inga í upp­nám og verka­lýðs- og stétt­ar­fé­lög fara fram á sam­bæri­legar launa­hækk­anir fyrir sína skjól­stæð­inga og emb­ætt­is­menn hafa fengið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

1. Ákveða laun og starfskjör æðstu embættismanna

Kjararáð er sjálf­stætt ráð sem er falið það verk­efni að ákveða laun og starfs­kjör æðstu emb­ætt­is­manna rík­is­ins. Kjararáð er skipað fimm ráðs­mönnum og fimm til vara. Þrír eru kosnir af Alþingi, Hæsti­réttur skipar einn og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra einn.Kjara­ráðs­menn eru skip­aðir til fjög­urra ára í senn.

2. Skipaðir af þeim sem þeir úrskurða um

Í kjara­ráði sitja Jónas Þór Guð­munds­son, for­maður kos­inn af Alþingi, Óskar Bergsson, vara­for­maður kos­inn af Alþingi, Svan­hildur Kaaber, kosin af Alþingi, Jakob R. Möller, skip­aður af Hæsta­rétti, og Hulda Árna­dóttir, skipuð af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

3. Aðstoðarmenn ráðherra og skrifstofustjórar hækkaðir

Sumarið 2016 voru laun skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum hækkuð um allt að 35 pró­sent. Eftir þá hækkun eru laun aðstoð­­ar­­manna, sem miða við þau laun, um 1,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Sú ákvörðun vakti mikla úlfúð í sam­fé­lag­inu.

4. Laun þingmanna hækkuð um 44,3 prósent

Í októ­ber 2016, sama dag og kosið var til Alþingis, tók kjara­ráð ákvörðun um að hækka laun for­­­seta Íslands, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna og laun ráð­herra. Sam­­­kvæmt úrskurði kjara­ráðs urðu laun for­­­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­­­ar­­­kaup alþing­is­­­manna 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­­­sæt­is­ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi varð 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­­­arra ráð­herra að með­­­­­töldu þing­far­­­ar­­­kaupi urðu 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun þing­­­­manna hækk­­­­uðu hlut­­­­falls­­­­lega mest við ákvörðun Kjara­ráðs, eða um 44,3 pró­­­­sent.

5. Biskup hækkaður

Í des­em­ber 2017 hækk­aði kjara­ráð svo laun bisk­­­ups, Agn­­­esar Sig­­­urð­­­ar­dótt­­­ur, um tugi pró­­­senta. Í úrskurð­i vegna þessa kom fram að biskup skuli hafa tæp­­­lega 1,2 millj­­­ónir í mán­að­­­ar­­­laun auk 40 fastra yfir­­­vinn­u­ein­inga. Ein ein­ing er 9.572 krónur og laun bisk­­­ups því eftir hækkun alls 1.553.359 krónur á mán­uði. Hækk­­­unin var aft­­­ur­­­virk til 1. jan­úar 2017.

6. Lagt til að kjararáð verði lagt niður

Starfs­hópur sem skip­aður var af for­sæt­is­ráð­herra til að fjalla um mál­efni kjara­ráðs í lok jan­úar á þessu ári var sam­mála um að kjara­ráð hafi í ákvörð­unum sínum um kjör æðstu stjórn­enda rík­is­ins farið langt umfram við­mið ramma­sam­komu­lags aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda frá árinu 2015, ákvarð­anir þess verið óskýr­ar, ógagn­sæjar og ekki sam­ræmst fyr­ir­mælum í lögum um störf ráðs­ins. Lagði starfs­hóp­ur­inn til að kjara­ráð yrði lagt niður og útaf­keyrsla þess yrði leið­rétt.

7. Ekki sátt um leiðréttingu á útafkeyrslu

Ekki náð­ist hins vegar sátt í hópnum um með hvaða hætti útaf­keyrslan yrði leið­rétt. Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) vildi að það yrði gert strax, með lækkun launa. Meiri­hluti starfs­hóps­ins vildi hins vegar ekki fram­kalla lækk­un­ina strax heldur „frysta“ laun þeirra þar til þau nái við­miðum ramma­sam­komu­lags­.

ASÍ taldi að með því að frysta haldi þessi hópur ekki ein­asta „of­greiddum laun­um“ heldur fái áfram­hald­andi ofgreiðslur þar til fryst­ing­unni lýk­ur. Þegar upp væri staðið myndi útaf­keyrsla kjara­ráðs kosta rík­is­sjóð um 1,3 millj­arða. Verka­lýðs- og stétt­ar­fé­lög hafa mörg hver vísað í ákvarð­anir kjara­ráðs um laun æðstu emb­ætt­is­manna sem meg­in­á­stæðu þess að þau telji for­sendur kjara­samn­inga brostnar.

8. Pólitísk ákvörðun um lagabreytingu

Lögum um kjara­ráð var breytt undir lok árs 2016 og tóku þær breyt­ingar gildi um mitt síð­asta ár. Um var að ræða frum­varp sem for­menn sex flokka á Alþingi stóðu að. Eini flokk­ur­inn sem þá átti sæti á þingi og var ekki með á frum­varp­inu voru Pírat­ar. Þing­menn flokks­ins greiddu hins vegar atkvæði með lög­unum þegar þau voru sam­þykkt í atkvæða­greiðslu 22. des­em­ber 2016.

9. Launaákvörðunarvald fært til opinberra stjórna

Til­gangur frum­varps­ins var að fækka veru­lega þeim sem kjara­ráð ákveður laun og önnur starfs­kjör og færa ákvarð­anir um slíkt ann­að. Á meðal þeirra sem flutt­ust þá undan kjara­ráði voru fjöl­margir for­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu. Þau áttu því að vinda ofan af breyt­ingum á lögum um kjara­ráð sem tóku gildi sum­­­arið 2009 og gerðu það að verkum að rík­­is­­for­­stjórar máttu ekki vera með hærri grunn­­laun en for­­sæt­is­ráð­herra.

Með þess­ari breyt­ingu færð­ist launa­á­kvörð­un­ar­vald frá kjara­ráð­i til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Stjórnir flesta stærstu fyr­ir­tækj­anna í rík­i­s­eigu huns­uðu til­mæli frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um að stilla launa­hækk­unum í hóf og hækk­uðu laun for­stjóra sinna langt umfram almenna launa­þró­un.

10. Bað sjálf um hækkun og fékk

Kjarninn greindi frá því í byrjun mars að kjara­ráð hafi ekki ein­ungis hækkað laun þeirra sem það úrskurðar um, heldur hafi ráðið einnig sóst eftir, með bréfi sem var sent í sept­em­ber 2017, að hækka eigin laun með vísun í hækkun á launa­vísi­tölu Hagstofu Íslands, sem hafði hafði m.a. hækkað vegna ákvarð­ana kjara­ráðs. Sex dögum eftir að sitj­andi rík­is­stjórn tók við völdum var fall­ist á til­lög­una um launa­hækkun kjara­ráðs og að hún myndi gilda frá 1. ágúst 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár