Laun útvarpsstjóra hækkuðu um 16 prósent – Með 1,8 milljónir á mánuði

Í nýbirtum árs­reikn­ingi RÚV kemur fram að mán­að­ar­leg heild­ar­laun og þókn­anir Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar hafi hækkað umtals­vert á milli ára. Heild­ar­laun hans voru 22,9 millj­ónir króna.

Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri var með 22,9 millj­ónir króna í heild­ar­laun og þókn­anir á síð­asta ári. Greiðslur til hans hækk­uðu um 5,7 millj­ónir króna í fyrra, eða um 33 pró­sent. Heild­ar­laun og þókn­anir útvarps­stjóra voru 1,9 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali árið 2017. Þetta kemur í árs­reikn­ingi RÚV sem birt­ist í dag.

Kjarn­anum hefur borist árétt­ing frá RÚV þar sem fram kemur að á árinu 2016 hafi útvarps­stjóri tekið fæð­ing­ar­or­lof sem lækk­aði heild­ar­greiðslur launa á því ár. Því gefi sam­an­burður milli launa á árunum 2016 og 2017 ekki rétta mynd af launa­þróun. Stjórn RÚV hafi ákveðið að hækka laun útvarps­stjóra á árinu 2017 úr 1.550 þús­und krónum á mán­uði í 1.800 þús­und krónur, eða um 16 pró­sent.

[links]Laun stjórn­ar­manna í RÚV hækk­uðu um 21 pró­sent á milli ára.

Lögum um kjara­ráð var breytt undir lok árs 2016 og tóku þær breyt­ingar gildi um mitt síð­asta ár. Um var að ræða frum­varp sem for­menn sex flokka á Alþingi stóðu að. For­menn­irnir sex voru Bjarni Bene­dikts­son Sjálf­stæð­is­flokki, sem einnig var fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins, Katrín Jak­obs­dóttir Vinstri græn­um, Logi Ein­ars­son Sam­fylk­ingu, Ótt­arr Proppé Bjartri fram­tíð, Sig­urður Ingi Jóhanns­son Fram­sókn­ar­flokki og og Bene­dikt Jóhann­es­son Við­reisn.

Eini flokk­ur­inn sem þá átti sæti á þingi og var ekki með á frum­varp­inu voru Pírat­ar. Þing­menn flokks­ins greiddu hins vegar atkvæði með lög­unum þegar þau voru sam­þykkt í atkvæða­greiðslu 22. des­em­ber 2016.

Til­gangur frum­varps­ins var að fækka veru­lega þeim sem kjara­ráð ákveður laun og önnur starfs­kjör og færa ákvarð­anir um slíkt ann­að. Á meðal þeirra sem flutt­ust þá undan kjara­ráði voru fjöl­margir for­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu. Einn þeirra er Magnús Geir Þórð­ar­son, útvarps­stjóri.

Hunsuðu tilmæli

Í bréfi sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi stjórnum fyr­ir­tækja í rík­i­s­eigu og Banka­sýslu rík­is­ins í jan­úar 2017 var þeim til­mælum beint til þeirra að stilla öllum launa­hækk­unum for­stjóra í hóf eftir að ákvarð­anir um laun þeirra færð­ust undan kjara­ráði um mitt ár í fyrra. Þar stendur að ástæða hafi verið til þess að „vekja sér­staka athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hafi í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöð­ug­leika á vinnu­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­bandi. Æski­legt er að launa­á­kvarð­anir séu var­kár­ar, að forð­ast sé að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að laun séu hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þró­un.“

[adspot]Af­rit af bréf­inu var sent til allra stjórn­anna dag­inn áður en að ný lög um kjara­ráð, sem færðu launa­á­kvörð­un­ar­vald frá ráð­inu til stjórna opin­beru fyr­ir­tækj­anna, tóku gildi í byrjun júlí 2017. Stjórnir flesta stærstu fyr­ir­tækj­anna í rík­i­s­eigu huns­uðu til­mælin og hækk­uðu laun for­stjóra sinna langt umfram almenna launa­þró­un. Kjarn­inn hefur fengið umrætt bréf afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Hægt er að lesa það hér.

Fleiri ríkisforstjórar hafa hækkað mikið

Um þessar mundir eru flest stærri fyr­ir­tæki lands­ins að birta árs­reikn­inga sína. Þeirra á meðal eru fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins. Áður en ofan­greind breyt­ing á lögum um kjara­ráð tók gildi voru ákvarð­anir um laun æðstu stjórn­enda þeirra tekin af kjara­ráði, en það vald var fært aftur til stjórna þeirra með breyt­ing­unni.

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar kom til að mynda fram að Hörður Arn­ar­son, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, hafi fengið 32 pró­senta launa­hækkun á síð­asta ári þegar leið­rétt hefur verið fyrir geng­is­sveifl­um, en reikn­ingar Lands­virkj­unar eru gerðir upp í Banda­ríkja­dölum þótt laun séu greidd í krón­um. Án slíkrar leið­rétt­ingar nam hækk­unin 45 pró­sent. Mán­að­ar­laun hans fóru úr tveimur milljón krónum á mán­uði í 2,7 millj­ónir króna. Lands­virkjun segir að þetta vegna þess að laun for­stjór­ans hafi verið lækkuð svo mikið árið 2012.

Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­póst, hefur einnig notið góðs af þessum breyt­ing­um. Laun hans hækk­uðu um 17,6 pró­sent á síð­asta ári og mán­að­ar­laun hans eru nú 1,7 millj­ónir króna.

Annar for­stjóri sem færð­ist undan kjara­ráði í fyrra er Guð­mundur Ingi Ásmunds­son, for­stjóri Lands­nets. Laun hans hækk­uðu um tvær millj­ónir króna í fyrra og námu heild­ar­laun hans á árs­grund­velli 21,7 millj­ónum króna, eða um 1,8 millj­ónum króna á mán­uði. Það er hækkun um rúm tíu pró­sent.

Enn eiga ýmis fyr­ir­tæki sem eru að hluta eða öllu leyti í eigu rík­is­ins, og laun for­stjóra þeirra heyrðu áður undir kjara­ráð en eru nú ákvörðuð af stjórn­um, eftir að skila árs­reikn­ing­um. Þar má m.a. nefna Isavia, RARIK og Matís. Því liggja ekki fyrir opin­berar upp­lýs­ingar um launa­þróun for­stjóra eða for­stöðu­manna þeirra á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár