Ríkisbankarnir hafa greitt 207 milljarða í arð á fimm árum

Heild­ar­eignir Íslands­banka, Lands­bank­ans og Íbúða­lána­sjóðs nema nú tæp­lega 3 þús­und millj­örðum króna.

Samþykkt var á aðal­fundi Íslands­banka í dag að 13 millj­arðar króna af hagn­aði árs­ins 2017 yrðu greiddir í arð til hlut­hafa Íslands­banka, sem er íslenska ríkið, en bank­inn hefur þá greitt um 76 millj­arða króna til hlut­hafa í arð frá árinu 2013.

Aðal­fundur Lands­bank­ans sam­þykkti í dag að bank­inn greiði sam­tals út arð að fjár­hæð 24,8 millj­arðar króna á árinu 2018.

Ann­ars vegar er um að ræða 15.3 millj­arða króna arð vegna rekstr­ar­árs­ins 2017, sem sam­svarar um 78% af hagn­aði árs­ins, og hins vegar sér­stakan arð til hlut­hafa að fjár­hæð 9.4 millj­arða króna. Alls munu arð­greiðslur bank­ans á árunum 2013-2018 því nema um 131,7 millj­örðum króna.

Sam­an­lagt nema arð­greiðslur þess­ara tveggja rík­is­banka því um 207 millj­örðum króna á síð­ustu fimm árum. Ríkið eign­að­ist Íslands­banka að fullu í byrjun árs 2016.

Heildar eignir Íslands­banka voru 1.036 millj­arðar króna. Útlán til við­skipta­vina og lausa­fjár­safn bank­ans voru sam­tals 92% af stærð efna­hags­reikn­ings við lok tíma­bils­ins.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans námu á sama tíma 1.192 millj­örðum króna. Heild­ar­eignir bank­anna tveggja námu 2.228 millj­örðum í lok árs. Ríkið er eig­andi þeirra beggja, eins og áður segir, og á auk þess Íbúða­lána­sjóðs að öllu leyti. Heild­ar­eignir Íbúða­lána­sjóðs nema 762 millj­örðum króna. Á heild­ina litið nema eignir þess­ara þriggja lána­stofn­anna því 2.990 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár