Ríkið fengið rúmlega 130 milljarða í arð frá Landsbanknum á 5 árum

Óhætt er að segja að rík­is­sjóður hafi fengið mikil verð­mæti út úr eign­ar­hlut sínum í Lands­bank­anum á síð­ustu fimm árum.

Aðal­fundur Lands­bank­ans sam­þykkti í dag að bank­inn greiði sam­tals út arð að fjár­hæð 24,8 millj­arðar króna á árinu 2018.

Annars vegar er um að ræða 15.3 millj­arða króna arð vegna rekstr­ar­árs­ins 2017, sem sam­svarar um 78% af hagn­aði árs­ins, og hins vegar sér­stakan arð til hlut­hafa að fjár­hæð 9.4 millj­arða króna. Alls munu arð­greiðslur bank­ans á árunum 2013-2018 því nema um 131,7 millj­örðum króna.

Íslenska ríkið á ríf­lega 98 pró­sent hlut í bank­anum, og hefur því hagn­ast veru­lega á eign­ar­hlut sínum í bank­anum, en hann var stofn­aður á grunni inn­lendra eigna hinns fallna gamla Lands­banka, eftir hrunið í októ­ber 2008.

Í stjórn Lands­bank­ans sitja nú Helga Björk Eiríks­dóttir (for­maður), Berglind Svav­ars­dóttir, Einar Þór Bjarna­son, Hersir Sig­ur­geirs­son, Jón Guðmann Pét­urs­son, Samúel Guð­munds­son, og Sigríður Bene­dikts­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár