Sviðslistanemendur LHÍ fara í skólagjaldaverkfall

Nemendur sviðs­lista­deildar Lista­há­skóla Íslands ætla ekki að greiða skóla­gjöld vor­annar í ár vegna bágrar aðstöðu og þjón­ustu. Myglað, lek­andi og óein­angrað hús­næði meðal umkvört­un­ar­efna.

Fríða Björk Ingvarsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands.
Fríða Björk Ingv­ars­dóttir er rektor Lista­há­skóla Íslands. Mynd: Flickr.

Nemendur sviðs­lista­deildar Lista­há­skóla Íslands ætla ekki að greiða skóla­gjöld vor­annar 2018. Í til­kynn­ingu frá nem­end­unum kemur fram að slæm aðstaða deild­ar­innar og síversn­andi þjón­usta við nem­endur hennar komi í veg fyrir að þau geti stundað nám í list­greinum sínum eins og lagt var upp með þegar skóla­ganga þeirra við Lista­há­skóla Íslands hófst.

„Við teljum okkur hafa verið svikin um þá þjón­ustu og aðstöðu til náms sem okkur var lofað. Þessi aðgerð er því ekki aðeins gerð í mót­mæla­skyni til að hreyfa við stjórn og stjórn­endum skól­ans, heldur á grund­velli þess að algjör for­sendu­brestur hafi orðið í við­skipta­sam­bandi okkar við skól­ann,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þau segj­ast árum saman hafa kvartað yfir slæmum aðbún­aði og þjón­ustu við sig án þess að komið hafi verið til móts við þau með full­nægj­andi hætti. Þvert á móti hafa aðstæður nem­enda deild­ar­innar versnað sam­hliða því að skóla­gjöld hækka með hverju ári sem líður.

„Þol­in­mæði okkar er á þrotum. Okkur er því sá einn kostur fær að halda eftir skóla­gjöldum þess­arar annar enda um alvar­legan for­sendu­brest að ræða af hálfu skól­ans.“

Þau hyggj­ast auk þess ganga út úr skól­anum eftir hádegi á afhend­ing­ar­degi bréfs­ins, í dag, og mæta ekki í skól­ann eftir hádegi í mót­mæla­skyni. Biðja þau stjórn skól­ans að taka afstöðu til kröf­unnar og birta rök­studda ákvörðun sína fyrir mánu­dag­inn 5. febr­úar.

Í for­sendu­brest­inum felst meðal ann­ars að hús­næði Lista­há­skól­ans við Sölv­hóls­götu 13 henti hvorki til rekst­urs háskóla né iðk­unar sviðs­lista. Þar sé ekki aðgengi fyrir fatl­aða sem er brot á lögum, hús­næðið sé sýkt af myglu sem og í nið­ur­níðslu. Svo dæmi sé tekið sé það dag­legt brauð að leki úr skólprörum og úr lofti í rýmum skól­ans. Engin les- eða vinnu­að­staða sé til staðar, ekk­ert mötu­neyti né bóka­safn og önnur rými sem nem­endur hafa til notk­unar í list­sköpun sinni henta ekki við iðkun sviðs­lista. Sem dæmi um þetta er að dans­stúdíó skól­ans er óein­angr­aður skúr.

Nem­end­urnir kvarta einnig yfir því að utan­að­kom­andi aðilar fái ítrekað aðgang að rýmum sem þau eigi að hafa til umráða og greiði fyrir með skóla­gjöldum sínum. Þá sé aðeins einn tækni­maður við störf sem þjón­ustar tæp­lega 50 nem­endur deild­ar­innar sem eru allir að vinna að sýn­ingum á sama tíma, auk ann­arra umkvört­un­ar­efna.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni hér.

Þau segja sig hafa verið svikin um bæði þjón­ustu og aðstöðu til náms sem þeim var lofað. Öll hafi þau ástríðu fyrir námi sínu og vilji gera allt til að stunda það af metn­aði, en óvið­un­andi aðstæður geri þeim það nær ómögu­legt. „Lista­há­skól­inn er eini skól­inn á Íslandi sem kennir sviðs­listir á háskóla­stigi og hafa metn­að­ar­fullir nem­endur því neyðst til að stætta sig við aðstæð­urnar allt of lengi.“

Nem­end­urnir segj­ast inna af hendi greiðslu skóla­gjalda gegn því að háskóla­stofn­unin upp­fylli skil­yrði til náms sam­kvæmt 3. grein laga um háskóla. Núver­andi ástandi verði ekki lýst með þeim hætti að LHÍ hafi staðið við skuld­bind­ingu sam­kvæmt slíkum samn­ingi sam­kvæmt lög­unum.

Undir til­kynn­ing­una rita allir nem­endur sviðs­lista­deildar, auk þess sem nem­endur ann­arra deilda skól­ans leggja stuðn­ing sinn við bréfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skólamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár