Háskólanemar leigja með eldri borgurum

Reykja­vík­ur­borg aug­lýsir eftir nemum í til­raun­ar­verk­efni sem snýst um að leigja íbúð í þjón­ustu­kjarna fyrir aldr­aða, starfa með þeim og stuðla að vellíðan og lífs­á­nægju íbúa.

Reykja­vík­ur­borg hefur aug­lýst eftir háskóla­nemum sem vilja leigja íbúðir í þjón­ustu­kjörnum fyrir aldr­aða. Í aug­lýs­ingu frá vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar kemur fram að íbúðum fylgi starf sem gangi út á að stuðla að vellíðan og lífs­á­nægju íbúa. Nemarnir geta til dæmis kennt íbúum að nota sam­fé­lags­miðla, haldið nám­skeið út frá áhuga­sviði sínu, svo sem á sviði fræða, menn­ingar, hreyf­ingar og list­sköp­unar sem og veitt íbúum ein­stak­lings­mið­aðan félags­legan stuðn­ing.

Regína Ásvalds­dóttir sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs segir í sam­tali við Kjarnann að um sé að ræða tvær íbúðir sem til ráð­stöf­unar eru, ann­ars vegar í Löngu­hlíð og hins vegar Norð­ur­brún.

Gert er ráð fyrir 40 tíma vinnu á mán­uði, þannig að um er að ræða hluta­starf sem greitt yrði fyrir sam­kvæmt hefð­bundnum kjara­samn­ingum. Að sögn Regínu yrði leigan á íbúð­inni á svip­uðum nótum og hjá Félags­stofnun stúd­enta og því reiknað með að hægt verði að sækja um húsa­leigu­bætur á móti.

„Mark­miðið er að blanda saman fólki og hópum, fá meira líf og ráða þannig inn ein­stak­linga sér­stak­lega í þetta félags­lega sam­neyti,“ segir Regína.

Hún segir hug­mynd­ina komna frá Hollandi þar sem sam­bæri­leg verk­efni hafa verið fram­kvæmd með góðum árangri. Regína seg­ist einnig hafa heyrt af verk­efnum í Þýska­landi þar sem nemar hafa lifað og starfað með sam­bæri­legum hætti með fötl­uðum.

Um er að ræða til­rauna­verk­efni sem gert er ráð fyrir að standi yfir frá 1. febr­úar á þessu ári til 1. júlí 2019.

Regína segir við­brögðin hafa verið mikil og fyr­ir­séð að það verði vanda­samt að velja úr þeim sem sækja um. Borgin verður í sam­ráði við not­enda­ráð þeirra eldri borg­ara sem búa á þessum stöðum við val á nem­endum.

„Við ætlum að nýta áhuga­svið ein­stak­ling­anna, sem geta þá miðlað því áfram, stækkað það og gefið af sér,“ segir Regína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár