Miðflokkurinn og Flokkur fólksins brutu lög með SMS-sendingum fyrir kosningar

Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að tveir stjórn­mála­flokkar sem sendu tug­þús­undum manna SMS í aðdrag­anda, án þess að við­kom­andi hafi veitt sam­þykki fyrir þeim, hafi brotið gegn fjar­skipta­lögum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins brutu fjar­skipta­lög þegar þeir sendu fjölda far­síma­not­enda smá­skila­boð í aðdrag­anda kosn­inga til Alþingis sem fram fóru í lok októ­ber. Þetta er nið­ur­staða Póst- og fjar­skipta­stofn­unar, sem birti í dag tvær ákvarð­anir þess efnis.

Í frétt á vef stofn­un­ar­innar segir að henni hafi borist tugir kvart­ana í kringum kosn­ing­arnar sem fram fóru í haust vegna SMS skila­boða sem send voru í nafni flokk­ana og inni­héldu hvatn­ingu til þess að kjósa við­kom­andi flokk. Í ljós kom síðar að báðir flokk­arnir höfðu fengið fyr­ir­tækið 1819 – Nýr val­kostur ehf. til þess að senda skila­boð til tuga þús­unda far­síma­not­enda.

Mið­flokk­ur­inn fékk 1819 til að senda SMS til alls 57.682 ein­stak­linga í eitt skipti fyrir sig í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Póst- og fjar­skipta­stofnun taldi aug­ljóst miðað við efni skila­boð­anna að til­gangur þeirra hafi verið að hvetja við­tak­endur til þess að kjósa Mið­flokk­inn.

Í til­felli Flokks fólks­ins voru send skila­boð til 80.763 við­tak­enda og telur stofn­unin aug­ljóst að til­gang­ur­inn hafi verið að hvetja við­tak­endur til þess að kjósa Flokk fólks­ins.

Báðir flokkar náðu góðum árangri í kosn­ing­unum. Mið­flokk­ur­inn fékk 10,9 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn kjörna. Flokkur fólks­ins fékk 6,9 pró­sent atkvæða og fjóra þing­menn kjörna.

Meðal þess sem fram kemur í ákvörð­unum PFS sem birtar voru í dag er „að skila­boð sem þessi, frá stjórn­mála­flokkum, telj­ast mark­aðs­setn­ing í skiln­ingi 1. mgr. 46. gr. laga um fjar­skipti. Þar er kveðið á um að „notkun sjálf­virkra upp­kalls­kerfa, símbréfa eða tölvu­pósts, þ.m.t. hvers konar raf­rænna skila­boða (SMS og MMS), fyrir beina mark­aðs­setn­ingu er ein­ungis heimil þegar áskrif­andi hefur veitt sam­þykki sitt fyrir fram. “

Eins og fram kemur í ákvæð­inu þarf að afla sér­staks sam­þykkis frá hverjum við­tak­anda fyrir sig áður en honum eru send raf­ræn skila­boð sem inni­halda beina mark­aðs­setn­ingu. Það telst ekki sam­þykki fyrir mót­töku slíkra skila­boða að hafa síma­númer sitt skráð í síma­skrá án bann­merk­ingar.“

Þá kemur fram í ákvörð­unum stofn­un­ar­innar að það sé sá aðili sem verið er að mark­aðs­setja fyrir sem ber ábyrgð á að fram­kvæmd sé í sam­ræmi við lög. Það að láta þjón­ustu­fyr­ir­tæki ann­ast útsend­ingar skila­boða fyrir sig firrir slíkan aðila ekki ábyrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár