Mest lesnu Kjaftæði ársins 2017

Hvað eiga menn sem reyna að byrla nauðg­un­ar­lyfi, aðstoð­ar­maður frá­far­andi ráð­herra, kyn­bund­inn launa­munur, Gísli Gíslason í geim­flaug með Richard Branson og þeir sem skilja ekki #metoo sam­eig­in­legt? Allt eru þetta við­fangs­efni mest lesnu Kjaftæða árs­ins.

5. Pervertar athugið

„Aðrir spyrja: „Má bara ekk­ert leng­ur?” Við þesssa dólga hef ég þetta að segja: Nei. Það bara má ekk­ert leng­ur, alla vega „ekk­ert” sem þú hefur í huga. Þetta er ósköp ein­falt per­vert: Ef þú þarft að spyrja og velta því fyrir þér hvað má og hvað má ekki þá eru góðar líkur á því að þú sért að fara að fara að bjóða annarri mann­eskju upp á eitt­hvað sem hún hefur nákvæm­lega engan áhuga á að taka þátt í. Og það er ekki í boði. Fáðu effing já. Ef þú ert í minnsta vafa um að þú hafir sam­þykki fyrir hegðun þinni, þá er svarið nei. Það má ekk­ert leng­ur. Sættu þig við það. “

Lesið Kjaftæði Láru Bjargar Björns­dóttur í heild sinni hér.

4. 500.000 króna fíllinn í herberginu

„Við gætum öll vaknað í fyrra­málið í Mad Max-veru­leika þar sem vatnið kostar meira en bens­ínið og það eina sem er til að borða er parma­skinka, bog­frymils­smitað nauta­kjöt og fjög­urra kíló­gramma Tobler­o­nestaut­ar. Og það síð­asta sem við sjáum er Gísli Gísla­son að láta skjóta sér í út í geim með Ric­hard Bran­son fyrir alla hvítu Tesla­pen­ing­ana sína. Þá hugsum við með okk­ur: Kannski áttum við öll að standa í röð. Kannski eigum við öll að versla eins og við séum að fylla neð­an­jarð­ar­byrgi.“

Lesið Kjaftæði Hrafns Jónssonar í heild sinni hér.

3. #teamreiði

„Hætt­iði frekar að lemja okkur og/eða byrjið á að hvetja kyn­bræður ykkar til að hætta að lemja okkur ef her­ferð­irnar okkar gegn ofbeldi fara svona fyrir þan­inn brjóst­kass­ann á ykk­ur.

Já, ég er reið. Og vit­iði hvað? Ég ætla bara að halda áfram að vera fokk­ing reið þangað til hlut­irnir fara að breyt­ast hérna á þessu heim­ili sem við köllum sam­fé­lagið okk­ar. Ég hef ekki tíma til að sitja þæg og bíða næstu 500 árin. Og ekki þið held­ur. #team­reiði“

Lesið Kjaftæði Láru Bjargar Björns­dóttur í heild sinni hér.

2. Alvöru vinna

„Kunn­ingi minn er aðstoð­ar­maður (kannski) frá­far­andi ráð­herra. Hann breiddi eitt sinn úr sér við bar eftir að hafa einmitt spurt hvað þessi nýi kær­asti minn gerði og hnus­aði eitt­hvað um hvort það væri ein­hver fram­tíð í því. Fyr­ir­gefðu vin­ur, mér finnst hans aðstoð­ar­manna­störf örlítið göf­ugri en þín. En það er bara ég, launa­umslagið er kannski ósam­mála.“

Lesið Kjaftæði Mar­grétar Erlu Maack í heild sinni hér.

1. Er allt í lagi með þig?

„Að byrla ein­hverjum nauðg­un­ar­lyfi er ekki eitt­hvað stund­ar­brjál­æði, eða mis­skiln­ingur á jái og nei-i. Það krefst skipu­lags, við­bjóðs og svartrar sál­ar. Nauðg­un­ar­lyf, hvað sem það var, hefur verið sett í drykk­inn minn og drykki margra sem ég þekki. Þetta er allt of fokk­ing algengt. Eftir að ég lenti í þessu sjálf legg ég mig fram um að spyrja fólk sem er næstum út úr heim­inum á tjútt­inu hinnar ein­földu spurn­ingar „Er allt í lag­i?“

Lesið Kjaftæði Mar­grétar Erlu Maack í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár