Katrín ætlar ekki að gera kröfu um afsögn Sigríðar

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist taka nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Lands­rétt­ar­mál­inu mjög alvar­lega. Í mál­inu komst dóm­stóll­inn að því að dóms­mála­ráð­herra hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum. Katrín mun þó ekki gera kröfu um að Sigríður Á. Andersen víki úr rík­is­stjórn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ætlar ekki að gera kröfu um að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra segi af sér vegna Lands­rétt­ar­máls­ins. Hún seg­ist ekki hafa gert kröfu um afsögn Sigríðar í umræðum um málið á þingi í vor og það geri hún heldur ekki núna. Katrín seg­ist hins vegar taka nið­ur­stöðu Hæsta­réttar mjög alvar­lega.

Þetta kemur fram í svari hennar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[links]Hæsti­réttur birti í gær nið­ur­stöðu sína í máli sem tveir umsækj­endur um stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara höfðu höfðað gegn íslenska rík­inu. Í dómnum kemur fram að Sigríður hafi brotið gegn ­stjórn­sýslu­lögum þegar hún vék frá hæfn­is­mati dóm­nefndar um skipun 15 dóm­ara í Lands­rétt.

Í dómi hans segir enn fremur að Sig­ríður hafi að lág­marki átt að gera sam­an­burð á hæfni ann­ars vegar fjög­urra umsækj­enda sem dóm­nefndin hafði metið á meðal 15 hæf­ustu en Sig­ríður ákvað að gera ekki til­lögu um að yrðu skip­að­ir, og þeirra fjög­urra sem hún ákvað frekar að skipa. Það hafi hún ekki gert og gögn máls­ins bentu ekki til þess að nein slík rann­sókn hefði farið fram af hálfu Sig­ríð­ar.

Í dómnum seg­ir: „Sam­kvæmt því hefði máls­með­ferð hans verið and­stæð 10. gr. stjórn­sýslu­laga og af því leiddi að það sama ætti við um með­ferð Alþingis á til­lögu ráð­herra þar sem ekki hefði verið bætt úr þeim ann­mörkum sem máls­með­ferð ráð­herra var hald­in.“

Aðstoð­ar­maður Sigríðar sagði í gær í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að dóms­mála­ráð­herra myndi ekki segja af sér emb­ætti í kjöl­far dóms Hæsta­réttar.

Katrín, sem þá sat í stjórn­ar­and­stöðu, gagn­rýndi máls­með­ferð­ina mjög í vor þegar hún var til umræðu á Alþingi. Þá flutti hún meðal ann­ars álit minni hluta stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í mál­inu.

Í dag er hún for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks þar sem Sigríður Á. Andersen er dóms­mála­ráð­herra.

[adspot]Katrín segir að hún hafi ekki gert kröfu um afsögn Sigríðar í vor og það geri hún heldur ekki nú, þótt hún taki nið­ur­stöðu Hæsta­réttar mjög alvar­lega. „Nið­ur­staða Hæsta­réttar stað­festir það sem kom fram í nefnd­ar­á­liti minni­hlut­ans, sem ég stóð að ásamt fleirum, við með­ferð máls­ins á Alþingi. Það er að ráð­herra hafi ekki sinnt rann­sókn­ar­skyldu með eðli­legum hætti og því hafi máls­með­ferð ekki verið hafin yfir vafa. Þrátt fyrir þessar athuga­semdir ákvað meiri­hluti Alþingis að stað­festa til­lögu ráð­herra. Í þessu sam­bandi má þó líta til þess, óháð nið­ur­stöðu Hæsta­réttar, að þau sjón­ar­mið sem ráð­herra lagði til grund­vallar voru ann­ars vegar jafn­rétt­is­sjón­ar­mið sem var í takt við fyrri umræðu á Alþingi og hins vegar dóm­ara­reynsla sem í for­sendum Hér­aðs­dóms kemur fram að hafi verið mál­efna­legt í sjálfu sér. Meðal ann­ars á þessum grund­velli stað­festi meiri­hluti Alþingis á sínum tíma til­lögu ráð­herra en um aðkomu Alþingis er einnig fjallað í dómi Hæsta­réttar.“

Hún telur að það verði að gaum­gæfa nið­ur­stöð­una. „Það er fullt til­efni til þess að Alþingi end­ur­skoði gild­andi ákvæði laga um skipan dóm­ara og skýri máls­með­ferð­ar­reglur og heim­ildir ráð­herra til að víkja frá áliti dóm­nefndar sem eru í gild­andi lögum. Við eigum að læra af þess­ari nið­ur­stöðu til að svona mál end­ur­taki sig ekki.“

Kjarn­inn birti ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið í gær. Hana má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár