Í þá tíð… Lífshættuleg árás í þingsal í Washington

Charles Sumner, öld­unga­deild­ar­þing­maður og stækur and­stæð­ingur þræla­halds var bar­inn nærri til ólífis í sal öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings. Árás­armað­ur­inn var úr hópi Suð­ur­ríkja­manna sem þótti að sér og sínum vegið í harð­orðri ræðu Sumners.

Þessi mynd átti að sýna árásina í þingsalnum, en dregur greinilega taum Sumners.
Þessi mynd átti að sýna árás­ina í þingsalnum, en dregur greini­lega taum Sumners.

Mikið er rætt og ritað um póli­tíska mis­klíð þessi miss­erin. Engu máli skiptir hver litið er; alls staðar blasa við harðar deilur, meiri öfgar og meiri klofn­ingur milli fylk­inga. Óvíða í hinum vest­ræna heimi er ástandið þó eins slæmt um þessar mundir og í Banda­ríkj­unum þar sem gjáin milli repúblik­ana og demókrata virð­ist gliðna dag frá degi.

Ýmsar skýr­ingar liggja þar að baki. Banda­ríkin eru gríð­ar­stórt og fjöl­breytt land þar sem tveggja flokka kerfi hefur verið við lýði, meira eða minna frá lokum nítj­ándu aldar, með mis­mun­andi for­merkjum þó. Frá stofnun Repúblikana­flokks­ins árið 1854 hafa liðs­menn hans att kappi við Demókra­ta­flokk­inn og þeir, und­an­tekn­inga­lítið, skipt með sér emb­ættum á öllum stigum, allt frá bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum upp í for­seta­emb­ættið.

Kosn­inga­kerfið er enda hannað til þess arna, þar sem kosið er í ein­menn­ings­kjör­dæmum, sem gerir fram­bjóð­endum ann­arra flokka erfitt um vik að kom­ast að, hvað þá í nægi­legum fjölda kjör­dæma til að gera sig gild­andi að nokkru marki á nokkru stigi.

Lengi vel framan af tutt­ug­ustu kynntu báðir flokkar sig sem „Big Tent“-flokka – flokka sem teygðu sig báðir yfir á miðj­una þar sem hinir fjöl­breytt­ustu hópar þjóð­fé­lags­ins gátu fundið eitt­hvað fyrir sig og mun­ur­inn milli manna á lands­vísu lá frekar í heima­ríki en flokki. Til dæmis vildi svo til að demókratar í Suð­ur­ríkj­unum börð­ust margir harka­lega gegn mann­rétt­inda­bar­áttu þeldökkra upp úr miðri öld­inni, en það var í for­seta­tíð demókratans Lyndons B. Johnson sem stærstu skrefin voru tekin í þá átt með sam­þykkt Civil Rights Act árið 1964.

Ekki þarf að fara mörgum orðum um stöð­una á Banda­ríkja­þingi í dag þar sem þykir algjör goðgá að „teygja sig yfir gang­inn“, eða vinna með þing­mönnum hins flokks­ins. Margt liggur þar að baki, en ekki síst end­ur­röðun kjör­dæma sem hefur dregið úr mik­il­vægi miðj­unnar í póli­tískri orð­ræðu og þar af leið­andi skerpt skilin milli flokka, en þar kemur líka til stór­auk­inn fjár­austur hags­muna­að­ila í vasa stjórn­mála­fólks, sem veit hvað til síns friðar heyrir ef það vill halda áfram að maka krók­inn.

Þótt köp­ur­yrði, sví­virð­ingar og full­komið vilja­leysi til sam­starfs, jafn­vel (og raunar einna hæst og ófyr­ir­leitn­ast) úr æðsta emb­ætti lands­ins, sé normið frekar en und­an­tekn­ingin má segja núver­andi þing­mönnum á Banda­ríkja­þingi eitt til varnar: Þeir hafa ekki (enn) reynt að myrða kollega sína í þing­sal eins og gerð­ist árið 1856 þegar full­trú­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn Preston Brooks gerði sér ferð í sal öld­unga­deild­ar­innar þar sem hann tók til að kag­hýða öld­unga­deild­ar­þing­mann­inn Charles Sumner með göngustaf og linnti ekki látum fyrr en hann var dreg­inn af fórn­ar­lamb­inu, sem var nær dauða en lífi.

Deilan um þrælahald

Fyrstu ára­tug­ina eftir að Banda­ríkin fengu sjálf­stæðir lá brota­línan í stjórn­mála­um­ræð­unni fyrst og fremst um það sem áhrærir hlut­verk alrík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart ríkj­unum. Með tíð og tíma umverpt­ist sú umræða og fór að snú­ast að miklu leyti um þræla­hald sem við­gekkst, sér­stak­lega í Suð­ur­ríkj­unum þar sem það var grund­völlur iðn­aðar og efna­hags, en var sem eitur í æðum margra í norð­ur­ríkj­unum.

Framan af nítj­ándu öld­inni var með­vitað reynt að búa svo um hnút­ana að þegar ný ríki voru tekin inn í Banda­ríkin myndi ekki raskast það jafn­vægi sem var milli þræla­hald­ara­ríkja og frjálsra ríkja. Væri eitt ríkið tekið inn úr öðrum hópnum skildi annað tekið sem fyrst úr hinum.

Árið 1848 voru hlut­föllin jöfn; fimmtán ríki leyfðu þræla­hald og fimmtán bönn­uðu slíkt, líkt og evr­ópsk ríki höfðu þegar gert (innan eigin landamæra að minnsta kosti).

Engum duld­ist þá að fram­haldið gæti skipt sköpum og var tek­ist sví­virði­lega á um hvernig fyr­ir­komu­lagið ætti að vera í næstu ríkjum sem tekin yrðu inn.

Kali­fornía kom inn sem frjálst ríki árið 1850 (en þó var annar öld­unga­deild­ar­maður rík­is­ins stuðn­ing­maður þræla­halds) og mikil spenna ríkti um afdrif Kansas og Nebraska sem voru næst í röð­inni. Árið 1854 voru sam­þykkt lög (Kansas-Nebraska Act) sem kváðu á um að íbúar Kansas skyldu kjósa um hvort ríkið kæmi inn sem þræla­ríki eða ekki. Það gerði ríkið að brenni­punkti í deilum milli afnáms­sinna og þræla­halds­sinna og olli nær stríði innan rík­is­ins þar sem hags­muna­að­ilar úr röðum beggja streymdu þangað til að hafa áhrif á nið­ur­stöður kosn­ing­anna.

Svo fór að Kansas fór inn sem frjálst ríki árið 1861, en áður höfðu Minnesota (1858) og Oregon (1859) farið inn sem frjáls ríki og þannig breytt var­an­lega valda­hlut­föllum innan þings­ins, afnáms­sinnum í hag, sem varð til þess að ell­efu ríki þræla­hald­ara sögðu sig úr lögum við Banda­ríkin, árið 1861, vegna meints ofríkis alrík­is­stjórn­ar­innar.

Upp úr því braust borg­ara­styrj­öldin sem geys­aði allt til 1865 þegar Banda­ríkja­her vann fulln­að­ar­sigur á upp­reisn­ar­liði Suð­ur­ríkj­anna.

En ég er kom­inn langt, langt fram úr mér… Við snúum aftur til árs­ins 1856 þar sem deilan um mál­efni Kansas stendur enn sem hæst í þingsölum í Washington DC.

Stór orð, sem segja svo margt

Dagana 19. og 20. maí árið 1856 steig öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Charles Sumner í pontu í þing­sal. Sumner var frá Massachusetts, 45 ára gam­all full­trúi hins nýstofn­aða Repúblikana­flokks, sem var andsnú­inn þræla­haldi. Hann var ann­ál­aður ræðu­maður og bar­áttu­maður fyrir mann­rétt­indum um ára­bil.

Í ræðu sinni um ástandið í Kansas, sem var síðar gefin út undir yfir­skrift­inni „Crime Against Kansas“, fór Sumner meðal ann­ars ófögrum orðum um tvo nafn­greinda demókrata í öld­unga­deild­inni og fylg­is­menn þræla­halds, þá Stephen Douglas frá Illinois, sem var annar höf­unda hins áður­nefnda Kansas-Nebraska Act og Andrew Butler frá Suður Karólínu.

Ádrepa Sumners var afar per­sónu­leg, sér­stak­lega hvað sneri að Butler.

„Senator­inn frá Suður-Karólínu hefir lesið margar bækur um ridd­ara­mennsku og telur sig sjálf­sagt slíkan ridd­ara sem hafi til að bera heiður og hug­rekki. Vita­skuld hefur hann lagt lag sitt við hjá­konu eina, sem er íðil­fögur í hans augum þó öðrum finn­ist hún ófríð, og þrátt fyrir að aðrir sjái hana sem sauruga er hún honum dyggðum prýdd – þessi drós er þræla­haldið sjálft.“

Í ofaná­lag sneiddi Sumner að mál­helti Butlers sem orsak­að­ist af nýlegu heila­blóð­falli.

Sumner sló ekk­ert af og lét vaða á súðum, en á meðan ræð­unni stóð lét Stephen Douglas þau orð víst falla að „þetta fjand­ans fífl á eftir að láta eitt­hvað annað fífl drepa sig“.

Blóðbað í þingsal

Það var þó ekki fyrr en nokkrum dögum seinna sem dró til tíð­inda. Ræða Sumners hafði reitt marga til reiði, enda var þar ekki tekið sér­stakt til­lit til til­finn­inga þeirra sem um var rætt.

Á meðal þeirra sem tóku ræð­una nærri sér var full­trúa­deild­ar­þing­mað­ur­inn Preston Brooks, náfrændi Andrews Butler og sveit­ungi frá Suður-Karólínu. Hann var átta árum yngri en Sumner og mik­ill bar­áttu­maður fyrir þræla­haldi og sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétti ríkj­anna til að við­halda þræla­haldi.

Brooks hugð­ist fyrst skora Sumner á hólm, en hann og félagar hans álitu að Sumner hefði með níði sínu sannað hann væri eng­inn herra­maður og ætti ekki skilið neitt skárra en að vera lam­inn fyrir allra augliti.

Síðdegis hinn 22. maí var Sumner nið­ur­sokk­inn í vinnu við skrif­borð sitt í sal öld­unga­deild­ar­innar, að búa afrit af ræð­unni alræmdu til dreif­ingar, þegar Brooks steig inn í sal­inn, og með honum voru tveir aðrir þing­menn, Laurence M. Keitt og Henry A. Edmund­son.

Brooks gekk upp að Sumner og sagði lágri röddu: „Herra Sumner, ég hefi lesið ræðu þína vand­lega í tvígang. Hún felur í sér níð í garð Suður-Karólínu og herra Butlers, sem er ætt­ingi minn.“

Þegar Sumner hugð­ist rísa upp sló Brooks hann leift­ur­snöggt í höf­uðið með gylltum hnúði göngustafs sem hann hafði með sér. Sumner féll strax í gólfið undir skrif­borðið sitt. Brooks lét höggin dynja á honum hvað eftir annað. Sumner reyndi að skjögra á fætur og bera hendur fyrir höfuð sér, en það var til lít­ils. Það var eins og æði rynni á árás­armann­inn sem sló hann hvað eftir annað í höfuð and­lit og axlir af öllu afli. Í öllum lát­unum hrökk staf­ur­inn í tvennt, en Brooks greip þann hlut­ann með hnúðnum og hélt áfram að berja hvað eftir annað. Sumner féll í gólfið milli sætar­aða, en Brooks lét ekki segj­ast heldur reif hann upp á jakka­boð­ungnum og hélt yfir­haln­ing­unni áfram.

Ekki voru margir þing­menn við­staddir, en þegar nokkrir þeirra ætl­uðu að sker­ast í leik­inn dró Laurence Keitt upp skamm­byssu og skip­aði þeim að halda sig frá.

Loksins náðu tveir þing­menn að draga Brooks af Sumner og lét hann þá loks af árásinni og lét sig hverfa orða­laust úr salnum ásamt þeim Keitt og Edmund­son.

Sumner var komið fram í for­dyri þing­húss­ins þar sem hann fékk aðhlynn­ingu, nær rænu­laus, og var svo settur á vagn heim til sín þar sem hann fékk lækn­is­með­ferð. Hann hafði hlotið mikil höf­uð­meiðsl og blætt mikið, og sneri ekki aftur til starfa í þing­inu fyrr en um þremur árum síðar.

Svo ein­kenni­lega vildi til að þó að Brooks hafi verið ákærður og dæmdur sekur fyrir árás­ina, þurfti hann ekki að fara í fang­elsi, heldur ein­ungis að greiða sekt og var ekki einu sinni vísað frá störfum á þing­inu. Sér til varnar sagð­ist hann hvorki hafa ætlað að drepa Sumner, enda hefði hann þá valið sér hent­ugra árás­artól, né heldur van­virða þingið. Hann sagði þó af sér til að leggja stöðu sína í dóm kjós­enda sem kusu hann snar­lega aftur á þing í auka­kosn­ingum og svo aftur í reglu­bundnum kosn­ingum árið eftir.

Við­brögðin við árásinni létu ekki á sér standa og voru nokkuð fyr­ir­sjá­an­leg. Í Norð­ur­ríkj­unum brást fólk við með hryll­ingi, en sunn­an­menn töldu margir að árásin hafi verið rétt­læt­an­leg, enda hafi hann þar verið að verja heiður ætt­ingja síns og heima­ríkis.

Ólík afdrif árásarmanns og fórnarlambs

Örlög þeirra tveggja, Brooks og Sumners voru ólík.

Brooks lést árið eftir, úr önd­un­ar­færa­sjúk­dómi, 38 ára að aldri, en hafði fyrir það stutt inn­göngu Kansas í Banda­ríkin hvort sem þræla­hald yrði leyft þar eða ekki.

Eins og áður sagði var Sumner lengi að ná sér og sneri ekki til starfa fyrr en þremur árum síðar. Hann þjáð­ist alla tíð síðan af afleið­ingum árás­ar­innar, en náði þó að láta til sín taka í þing­inu um ára­bil. Hann var meðal hörð­ustu tals­manna þess að þræla­hald yrði gert ólög­legt í öllum ríkjum, og þrýsti mjög á Abraham Lincoln, sem tók við for­seta­emb­ætt­inu árið 1861, í þeim málum. Lincoln var hins vegar tals­vert hóf­sam­ari í stefnu sinni og lagði meiri áherslu á að halda ríkja­sam­band­inu saman.

Eftir stríð var Sumner með harð­ari mönnum í að láta Suð­ur­ríkin gjalda fyrir upp­reisn­ina, en lagði mesta áherslu á bar­áttu fyrir auknum mann­rétt­indum blökku­fólks. Hann var auk þess einn af helstu tals­mönnum þess að Andrew Johnson, sem tók við for­seta­emb­ætt­inu eftir að Lincoln var myrtur, yrði settur úr emb­ætti (impeached).

Sumner lést úr hjarta­á­falli árið 1874, 63ja ára að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár