Í þátíð... Fjöldamorðin í My Lai

Banda­rískir her­menn drápu hund­ruð almenna víetnamska borg­ara í einu alræmdasta grimmd­ar­verki hern­að­ar­sögu lands­ins.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti var staddur á fundi Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja í Víetnam á dög­unum þar sem hann býsnað­ist meðal ann­ars yfir því hve Banda­ríkin fara hall­oka í alþjóða­við­skipta­kerf­inu (já í alvöru). Allir vita að saga Banda­ríkj­anna og Víetnam flétt­ast saman í hild­ar­leik stríðs­ins sem Banda­ríkin háðu við Norður-Víetnam á árunum 1965 til 1975. Frá sjón­ar­hóli Banda­ríkj­anna, og okkur hinna Vest­ur­landa­bú­anna sem speglum okkur í þeirra menn­ingu, mark­aði Víetnams­stríðið kafla­skil enda komu þús­undir ungra manna heim úr her­þjón­ustu – þeir sem voru svo heppnir að koma heim yfir höfuð – skemmdir á lík­ama og sál.

Grá­glettin stað­reynd er að Trump sjálfur kom sér undan her­þjón­ustu í Víetnam vegna beinnibbu í fæti, sem lag­að­ast svo til allrar ham­ingju skömmu síðar. Löngu seinna sagði Trump í gríni að hans „per­sónu­lega Víetnam“ hafi falist í því að stunda skemmt­ana­lífið í New York á níunda ára­tugnum þar sem allt grass­er­aði í kyn­sjúk­dómum.

En að því gamni slepptu, var Víetnam­stríðið and­styggi­legur hild­ar­leikur. Einn skelfi­leg­asti atburður stríðs­ins átti sér stað í mars árið 1968 þegar banda­rískir her­menn strá­felldu óvopn­aða borg­ara í hund­raða­tali í þorp­inu My Lai. Í fyrstu var reynt að hylma yfir ódæðið, en eftir að það komst í hámæli árið eftir, kastaði það rýrð á her­inn og stríðs­rekst­ur­inn í heild sinni.

Enn einn vígvöllur Kalda stríðsins

Víetnam nútím­ans var lengi nýlenda Frakk­lands, kallað Franska Indókína. Í seinni heims­styrj­öld­inni réð­ist Japan inn í landið og komm­ún­ista­leið­tog­inn Ho Chi Minh setti á lagg­irnar skæru­liða­sveitir til að berj­ast gegn Japönum, sem og franska nýlendu­hernum. Eftir að Japanir yfir­gáfu landið tóku Ho og hans menn völdin í norð­ur­hluta lands­ins.

Á árunum eftir stríð rann upp sá veru­leiki að heim­inum var að miklu leyti skipt ann­ars vegar í áhrifa­svæði Banda­ríkj­anna og hins vegar Sov­ét­ríkj­anna. Banda­ríkja­menn unnu þá eftir Dom­in­o­kenn­ing­unni svoköll­uðu, sem fól í sér að hvergi mætti láta komm­ún­ista og útþenslu þeirra óáreitta. Annars væri boðið heim hætt­unni á að fleiri ríki fylgdu í kjöl­farið og yrðu komm­ún­isma að bráð.

Banda­ríkja­menn hófu því afskipti af mál­efnum Víetnam strax á sjötta ára­tugnum þar sem þeir studdu stjórn­völd í suð­ur­hluta lands­ins með ráðum og dáð í þeirri við­leitni að sam­eina landið og reka komm­ún­ista á brott.

Eins og oft vill vera, fóru átökin síst dvín­andi með afskiptum utan­að­kom­andi velda og árið 1965 fékk Lyndon B. Johnson Banda­ríkja­for­seti því fram­gengt að banda­rískt her­lið var flutt til Saigon til að aðstoða stjórn Ngo Dinh Diem við að berja á and­spyrnu­hreyf­ingu Viet Cong í Suður-Víetnam.

Skemmst frá að segja varð Banda­ríkja­mönnum lítt ágengt þrátt fyrir ofureflið og linnu­lausar sprengju- og eit­ur­efna­árásir á Viet Cong og Norður-Víetnam, sem naut stuðn­ings hug­mynda­bræðra sinna í Kína og Sov­ét­ríkj­unum.

Sagan heima við var þó á þá leið að Norð­an­menn væru teknir að lýj­ast og brátt hyllti undir sigur. Það var þess vegna mikið áfall þegar her­sveitir Hos gerðu stór­sókn í jan­úar 1968, sem síðar var kölluð Tet-sóknin. Tugir þús­unda her­manna réð­ust suður í leift­ur­sókn og náðu að valda miklum usla þó að þeir hafi ekki náð að halda land­svæð­inu.

Þegar grimmdin tekur öll völd

Það er í þessu sam­hengi sem við­fangs­efni þess­arar greinar ger­ist.

Charlie Company, hópur ungra her­manna, hafði komið til Víetnams í árs­lok 1967 og þó að þeir hefðu ekki lent í beinum átökum þegar komið var fram í mars 1968 höfðu þeir misst 40 manns og þar af voru 28 látnir, vegna jarð­sprengja og ann­ars konar gildra sem Viet Cong hafði komið fyrir.

Mikill kurr var í hópnum sem nú taldi rúm­lega 100 menn og marga þyrsti í að ná fram hefndum fyrir fallna félaga sína.

Um það leyti bár­ust Banda­ríkja­mönnum njósnir af því að hópur óvina sem hafði tekið þátt í Tet-sókn­inni væri nú stað­settur í nágrenni við tvö lítil þorp sem heima­menn köll­uðu saman Son My, en Banda­ríkja­menn köll­uðu My Lai og My Khe. Charlie Company, sem var undir stjórn Ernests Medina höf­uðs­manns, var send á svæðið. Dag­skip­unin var að upp­ræta alla óvini sem gætu falist á svæð­inu og alla stuðn­ings­menn þeirra. Kenn­ingin var sú að um kl. 7 ættu allir almennir bæj­ar­búar að vera farnir á mark­að­inn og því væru allir í þorp­inu skæru­liðar eða stuðn­ings­menn; skot­mörk.

Við sól­ar­upp­rás hinn 16. mars árið 1968 lentu þyrlur í útjaðri þorp­anna og Charlie Company, sótti í þremur hópum (platoon) að áfanga­stað. Tveir hópanna fóru inn í þorpið um klukkan 8 en á leið­inni hófu þeir umsvifa­laust að skjóta og drepa alla þá sem þeir sáu á hrís­grjóna­ökrunum og skóg­inum í kring.

Samkvæmt frá­sögn vitna, aðal­lega við­staddra her­manna, var ástandið fyrst yfir­vegað, eins langt og það nær, en spennu­þrungið. Þorps­búum var safnað saman í hóp í miðju þorps­ins en þá allt í einu brast stíflan.

Einn her­mann­anna stökk til og stakk einn fang­anna með byssu­sting sínum og í kjöl­farið hófust drápin. Annar flokks­for­ingj­anna, William Calley, skip­aði þá sínum mönnum að hefja skot­hríð. Margir voru tregir til, en fyrr en varði var gegnd­ar­laust dráp hafið.

Menn, konur, börn; eng­inn var óhultur.

Hermenn brenndu kofa og myrtu alla þá sem komu hlaup­andi út. Calley og hans menn söfn­uðu saman á milli 70 og 80 þorps­búum og ráku ofan í skurð. Calley byrj­aði að skjóta á hóp­inn og öskr­aði á und­ir­menn sína að gera það sama, sem og þeir og gerðu. Kúlunum rigndi yfir hóp­inn án afláts og einn her­mann­anna sagð­ist hafa notað fjöl­mörg magasín í M-16 byssu sína.

Á sama tíma fóru her­menn um allt og eirðu engu. Konum og stúlkum var nauðgað, búpen­ingur drep­inn, mat­ar­geymslur brenndar og eitri hellt í drykkj­ar­brunna.

Einn her­mann­anna bar síðar að Calley hafi til dæmis, eftir að um hægð­ist við skurð­inn þar sem líkin lágu í hrúgum, hafi skotið og drepið börnin sem höfðu sloppið úr fyrstu skot­hríð­inni og reyndu nú að flýja.

Þriðji flokk­ur­inn hafði beðið átekta utan við þorpið ásamt Medina höf­uðs­manni. Þeir komu síðar á stað­inn og tóku margir þátt í grimmd­inni, jafn­vel Medina sjálfur sem sást mis­þyrma konu og svo skjóta hana til bana.

Einn her­mann­anna sem kom að síðar, Michael Bern­hardt að nafni, lýsti aðkom­unni sem svo að vopna­bræður hans hafi verið að gera ein­kenni­lega hluti. Þeir hafi meðal ann­ars safnað fólki saman í hópa og hent í þau hand­sprengjum. „Þeir skutu líka konur og börn. Það var engin mót­staða og ég sá bara þrjú vopn sem fund­ust og eng­inn okkar særð­ist. Þetta var bara venju­legt víetnam­skt þorp. Gamlir „papa-san“, konur og börn. Ég man satt að segja ekki eftir að hafa séð karl­mann þarna á hern­að­ar­aldri. Hvorki lífs né lið­inn.“

Á meðan þetta stóð sem hæst lenti þyrlu­sveit við fyrr­nefndan skurð og bauð flug­mað­ur­inn Hugh Thompson Jr. fram aðstoð sína og sinna manna við að koma særðum undir lækn­is­hendur. Hann fékk þau svör að eina hjálpin sem fólkið ætti von á væri að þeir ætl­uðu að binda enda á þján­ingar þeirra. Hann spurði Calley hvað væri þarna í gangi, enda voru lík á víð og dreif um allt þorpið. Calley sagð­ist ein­fald­lega vera að hlýða skip­unum.

Thompson tók þar til sinna ráða og steig meðal ann­ars inn á milli her­manna og þorps­búa sem höfðu falið sig inni í kofa einum. Skipaði hann und­ir­mönnum sínum að skjóta á her­menn ef þeir myndu gera árás á kof­ann á meðan hann væri þar inni. Alls björg­uðu Thompson og félagar hátt í tutt­ugu þorps­búum sem þeir fluttu burt í tveimur þyrlu­ferðum.

Þegar þyrlu­sveitin kom aftur á her­stöð­ina til­kynnti Thompson um það sem hann hafði séð og um kl. 11 hafði yfir­stjórn sam­band við Medina og fyr­ir­skip­aði að aðgerð­inni yrði hætt.

Þegar yfir lauk lágu senni­lega rúm­lega fimm­hund­ruð óbreyttir og óvopn­aðir borg­arar My Lai í valnum, þar á meðal 182 konur, 17 með barni, og 173 börn, þar af 56 hvít­voð­ungar. Ekki einu ein­asta skoti hafði verið hleypt af gegn Banda­ríkja­mönn­unum og aðeins þrjár byssur fund­ust í þorp­inu.

Tilraun til hvítþvottar

Sögur um það sem gekk á í My Lai þennan örlaga­ríka dag bár­ust til yfir­stjórnar her­liðs­ins í Víetnam og var skipuð rann­sókn­ar­nefnd til að ganga úr skugga um hvort eitt­hvað hafi gerst þar sem bryti gegn reglum hers­ins.

Skemmst frá að segja var ekk­ert óeðli­legt eða ólög­legt talið hafa átt sér stað þarna. Þvert á móti sögðu fréttir, meðal ann­ars í Stars and Stripes, mál­gagni banda­ríska hers­ins, frá hörðum bar­dögum þar sem 128 skæru­liðar hafi verið drepnir og um 20 almennir borg­arar hafi fallið. Aðgerðin hafi verið vel heppnuð.

Engin stemmn­ing var meðal yfir­manna hers­ins að gera mál úr þessu, enda stóð stríðs­rekst­ur­inn ekki vel, eins og áður sagði.

Það var svo ungur her­maður, Ronald L. Ridenhour, sem tók það upp hjá sjálfum sér að hvetja til þess að málið yrði rann­sakað. Ridenhour var í Víetnam á þessum tíma en tók ekki þátt í aðgerð­inni, heldur frétti af My Lai utan af sér. Þegar heim kom skrif­aði hann bréf til fjöl­margra þing­manna með nöfnum sjón­ar­votta sem voru til­búnir að bera vitni og bað þá um að skoða málið frekar.

Ekkert varð af því, en um það leyti var blaða­maður að nafni Seymor Hersh líka að púsla saman upp­lýs­ingum um málið. Sá komst í sam­band við marga af pilt­unum sem höfði tekið þátt í fjöldamorð­unum og voru komnir heim. Grein sem hann skrif­aði og birt­ist í nóv­em­ber árið 1969, hálfu öðru árið varp­aði ljósi á það sem gerð­ist í My Lai og þá varð ekki aftur snúið.

Önnur rann­sókn var sett af stað og var í nið­ur­stöðum hennar lagt til að 28 her­menn yrðu sóttir til saka fyrir fjöldamorðin. Svo fór þó að aðeins fjórtán menn voru ákærðir og af þeim var ein­ungis einn ein­asti maður sak­felldur, en það var William Calley liðs­for­ingi, sem gekk manna harð­ast fram í morðum og barði und­ir­menn sína áfram. Hann hélt því þó statt og stöðugt fram að hann hafi aðeins verið að fylgja skip­unum og sann­ast sagna – þó ekk­ert afsaki morð og ill­virki af þeirri sort sem um ræðir – hafði Medina höf­uðs­maður gefið giska opnar og óljósar skip­anir fyrir aðgerð­ina. Hann hafði sagt Calley og öðrum for­ingjum að líta á alla í þorp­inu sem óvini, hvort sem þeir flýðu, feldu sig, karla eða konur. Skjóta ætti á allt sem „gengur, skríður eða vex.“

Hvað varð svo til þess að menn­irnir hlýddu þessum skip­unum og gengu einnig ennþá lengra, en þarna hefur inn­ræt­ing verið ansi djúp­stæð, sem og ein­skær hræðsla að ógleymdri hefnd­inni, því að sumir þeirra sem tóku þátt í morð­unum litu á þetta sem hefnd fyrir fallna félaga.

Calley var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir 109 morð, en fyrir ein­hverjar póli­tískar sakir ákvað Richard Nixon for­seti að breyta dómi hans í stofu­fang­elsi og á næstu árum var dómur hans styttur og loks var honum sleppt á skil­orði árið 1974, eftir aðeins rúm þrjú ár í haldi.

Þetta var allt rétt­lætið sem Banda­ríkin deildu út fyrir þær 504 sálir sem létu lífið í My Lai.

Hetjur dags­ins, Thompson og und­ir­menn hans tveir í þyrlu­sveit­inni, voru hins vegar sæmdir heið­urs­merkjum fyrir að sker­ast í leik­inn á ögur­stundu.

Thompson lýsti því síðar að hann hafi verið útskúf­aður úr hópi her­manna fyrir að hafa til­kynnt um fjöldamorðin og borið vitni um það sem gekk þar á. Bárust honum meðal ann­ars líf­láts­hót­anir.

Þeir þrír hlutu svo enn frek­ari við­ur­kenn­ingu árið 1998 þegar þeir voru sæmdir æðstu orðu sem her­inn gefur fyrir afrek sem fela ekki í sér bar­daga við óvini á víg­velli, fyrir að vernda líf almennra borg­ara.

Upp­ljóstr­an­irnar urðu til þess að veikja enn frekar bar­áttu­anda her­manna og kyntu ræki­lega undir and­stöð­unni við stríðið heima við. Þannig fór svo að Banda­ríkin hófu brott­flutn­ing her­manna árið 1973 og stríð­inu lauk með því að Saigon féll í apríl 1975 og Viet Cong og her­lið Ho Chi Min náðu undir sig öllu Víetnam.

Harm­ur­inn lifir hins vegar enn meðal eft­ir­lif­enda og afkom­enda ill­virkja Charlie Company, en sann­leik­ur­inn er sá að My Lai fjöldamorðin voru ekki ein­angr­aður atburður heldur áttu álíka glæpir sér stað víðar á sama tíma þó það hafi ekki verið eins mörg fórn­ar­lömb.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár