Iceland Travel og Allrahanda sameinuð

Icelandair mun eiga 70 pró­sent í sam­ein­uðu fyr­ir­tæki en hlut­hafar Allra­handa, sem er leyf­is­hafi Gray Line Worldwide á Íslandi, 30 pró­sent.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group. Mynd: Kjarninn.

Sam­komu­lag hefur náðst um sam­ein­ingu Iceland Travel ehf., sem er að fullu í eigu Icelandair Group, og Allra­handa GL ehf. sem er leyf­is­hafi Gray Line Worldwide á Íslandi og er í eigu stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og Akurs fjár­fest­inga slhf. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands, en Icelandair er skráð á markað. Gert er ráð fyrir að heild­ar­velta sam­ein­aðs félags á árinu 2017 verði um 18 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ing­unni segir að eftir sam­ein­ingu muni Icelandair Group eiga 70 pró­sent hluta­fjár í sam­ein­uðu félagi og eig­endur Allra­handa GL ehf. muni eiga 30 pró­sent hlut. „Markmið sam­ein­ing­ar­innar er að bæta enn frekar þjón­ustu við við­skipta­vini og jafn­framt að ná fram hag­ræð­ingu í rekstri. Yfir­stjórn og rekstur félag­anna verða sam­einuð en þjón­usta áfram veitt undir sömu vöru­merkjum og áður. Sam­ein­ingin er gerð með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leikakann­ana og sam­þykki eft­ir­lits­að­ila[...]Fyr­ir­tækin hafa átt gott sam­starf um ára­bil en hafa sér­hæft sig með mis­mun­andi hætti innan ferða­þjón­ust­unnar.“

Þar er haft eftir Björgólfi Jóhanns­syni, for­stjóra Icelandair Group og stjórn­ar­for­manni Iceland Travel, að sam­ein­ingin sé jákvætt skref sem styrki rekst­ur­inn til lengri tíma litið. „Bæði fyr­ir­tæki eru í fremstu röð í íslenskri ferða­þjón­ustu og sam­ein­ingin gerir þeim kleift að veita við­skipta­vinum enn betri þjón­ustu. Sam­keppnin á mark­aðnum er mikil og Ísland og íslensk fyr­ir­tæki eiga í harðri alþjóð­legri sam­keppni. Það er því afar mik­il­vægt að rekstr­ar­ein­ingar séu hag­kvæmar og að fyr­ir­tækin leiti allra leiða til að straum­línu­laga rekstur sinn. Sameinað félag nær sem heild yfir stærri hluta af virð­is­keðj­unni í ferða­þjón­ustu en félögin sem ein­ingar gerðu áður. Því fylgja áhuga­verð tæki­færi til áfram­hald­andi þró­unar, enda víða spenn­andi hlutir að ger­ast í íslenskri ferða­þjón­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár