Ísland langverst Norðurlanda í að vinna gegn ójöfnuði

Ísland er í 12. sæti landa sem leggja sig fram við að vinna gegn ójöfn­uði, sam­kvæmt nýrri skýrslu Oxfam.

Íslenskt skatta- og lagaumhverfi virðist verr í stakk búið til að tækla ójöfnuð en hin Norðurlöndin.
Íslenskt skatta- og lagaum­hverfi virð­ist verr í stakk búið til að tækla ójöfnuð en hin Norð­ur­löndin. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþjóð­legu sam­tökin Oxfam gáfu út skýrslu fyrr í dag þar sem löndum var raðað eftir aðgerðum þeirra gegn ójöfn­uði. Á þeim lista er Ísland í 12. sæti, langneðst allra Norð­ur­landa.

Í frétt Guardian kemur fram að vinna að skýrslu Oxfam hafi tekið ár, en mark­mið hennar er að raða löndum eftir því hversu mikið þau leggja sig fram við að draga úr ójöfn­uði. Rann­sóknin nær til 152 landa og og skoðar 18 atriði yfir þrjá mála­flokka. Fyrsti flokk­ur­inn metur útgjöld til vel­ferð­ar­mála, sér­stak­lega heil­brigðis- og mennta­mála, en þar er Ísland í 24. sæti. Annar flokk­ur­inn mælir upp­bygg­ingu skatt­kerf­is­ins og á hverjum skatt­byrðin lendir, en þar lendum við í 27. sæti. Ísland stendur sig best í þriðja mála­flokknum sem mælir vinnu­mark­aðslög­gjöf gegn ójöfn­uði, en þar vermum við sjö­unda sætið.

[adspot]

Þótt Ísland sé ofar­lega á list­anum er það langneðst allra Norð­ur­landa, sem verma fjögur af sex efstu sæt­unum. Munurinn á Íslandi og hinum Norð­ur­lönd­unum er mestur í upp­bygg­ingu skatt­kerf­is­ins en minnstur í vinnu­mark­aðslög­gjöf.

Oxfam International er banda­lag 13 sam­taka í yfir 100 löndum, en mark­mið þeirra er að vinna gegn fátækt og órétt­læti víða um heim.

Á list­anum hér að neðan má sjá efstu tólf löndin á list­anum. Þar að auki er sæti hvers lands gefið í hverjum mála­flokki.

Efstu tólf löndin á lista Oxfam

Land Útgjöld til
vel­ferð­ar­kerf­is­ins
Upp­bygg­ing
skatt­kerf­is­ins
Vinnu­mark­aðs-
lög­gjöf
Svíþjóð 9 8 8
Belgía 4 3 24
Danmörk 8 9 12
Noregur 20 6 3
Þýska­land 2 17 6
Finnland 3 23 10
Aust­ur­ríki 6 40 1
Frakk­land 5 19 21
Holland 19 13 9
Lúx­em­borg 12 21 11
Japan 7 43 4
Ísland 24 27 7
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár