Dýralíf í vanda vegna loftslagsbreytinga

Lögmál nátt­úru­vals ræður ferð­inni í dýra­rík­inu þar sem teg­undir standa í lífs­bar­áttu vegna lofts­lags­breyt­inga.

Býflugur lifa stuttu en mikilvægu lífi fyrir vistkerfið. Vegna hlýnunar jarðar hefur vorið verið sífellt fyrr á ferðinni undanfarna áratugi og býflugurnar vakna úr vetrardvala á vitlausum tímum.
Býflugur lifa stuttu en mik­il­vægu lífi fyrir vist­kerfið. Vegna hlýn­unar jarðar hefur vorið verið sífellt fyrr á ferð­inni und­an­farna ára­tugi og býfl­ug­urnar vakna úr vetr­ar­dvala á vit­lausum tímum.

Lofts­lags­breyt­ingar gætu haft alvar­legar afleið­ingar fyrir býfl­ugur í Evrópu og hlýnun jarðar eykur kynja­halla meðal skjald­baka í Atl­ants­haf­inu.

Þetta eru nið­ur­stöður tveggja óskyldra rann­sókna á áhrifum lofts­lags­breyt­inga á ein­staka þætti líf­rík­is­ins. Greint er frá nið­ur­stöð­unum á vef Climate News Network.

Rann­sak­endur við háskólan í Würzburg í Þýska­landi rann­sök­uðu afkomu býflugna við mis­mun­andi aðstæður. Í rann­sókn­inni var líkt eftir vor­kom­unni og býfl­ugur látnar vakna úr vetr­ar­dvala. Vegna hlýn­unar jarðar hefur vorið verið sífellt fyrr á ferð­inni í Evrópu und­an­farna ára­tugi.

Líf flugn­anna er stutt en afskap­lega mik­il­vægt fyrir umhverfið og gróð­ur­inn. Tilgátan var sú að ef flug­urnar vakna úr dvala of snemma – það er að segja áður en fæða úr plöntum er til taks – munu þær ekki lifa af.

Nið­ur­stöð­urnar benda til þess að aðeins nokk­urra daga tíma­skekkja geti haft gríð­ar­lega alvar­leg áhrif á líf býflugn­anna. Þær flugur sem fóru á stjá of snemma áttu minni mögu­leika á að lifa af eða afköst­uðu mun minna en þær sem höfðu strax aðgang að fæðu.

Heilt yfir voru nið­ur­stöð­urnar að vond tíma­setn­ing væri slæm fyrir flug­urnar. Og plönt­urnar sem reiða sig á býfl­ugur til frjóvg­unar bíða eflaust skaða af.

Lífríki í Evrópu þrífst nú hærra yfir sjáv­ar­máli en áður, enda er kald­ara þeim mun ofar sem farið er. Vist- og líf­fræð­ingar eru farnir að skrá­setja útdauða plantna og dýra­teg­unda vegna þessa. Fjöl­breytni þeirra teg­unda sem lifa af er tak­mark­aðra en áður.

Fleiri kvendýr vegna hlýnunar

Í Atl­ants­haf­inu eru stór­vaxnar skjald­bökur í vanda vegna hlýn­unar. Þær eru ein þeirra teg­unda þar sem kyn afkvæm­is­ins ræðst af hita­stigi þess á með­göng­unni. Vegna hlýn­unar jarðar verða nú til fleiri kven­dýr en karl­dýr, og mun fleiri afkvæmi deyja vegna of mik­ils hita.

Það voru rann­sak­endur við háskól­ann í Swansea í Bret­landi sem fylgd­ust með hita­stigi í sandi útung­un­ar­stöðva sjáv­ar­skjald­baka við Cape Verde í sex ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár