Lífeyrisþegar fengu 3,4 milljarða í ofgreitt frá Tryggingastofnun

57 þús­und líf­eyr­is­þegar fengu alls 86,5 millj­arða króna í tekju­tengdar greiðslur í fyrra. 43 pró­sent fékk of lítið greitt en 44 pró­sent fékk ofgreitt.

Alls eiga 43 pró­sent þeirra 57 þús­und líf­eyr­is­þega sem fengu greitt tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins rétt á inn­eign upp á sam­tals tvo millj­arða króna vegna van­á­ætl­aðra greiðslna á síð­asta ári. 44 pró­sent þeirra sem fengu greiðslur fengu hins vegar ofgreitt, sam­tals 3,4 millj­arða króna. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu Trygg­inga­stofn­unar.

Þar segir að til að tryggja að líf­eyr­is­þegar fái réttar greiðslur í sam­ræmi við raun­veru­legar tekjur þeirra á árinu 2016 séu greiðslur end­ur­reikn­aðar miðað við tekju­upp­lýs­ingar í stað­festum skatt­fram­tölum.

Samtals var end­ur­reiknað fyrir 57 þús­und líf­eyr­is­þega sem fengu greidda 86,5 millj­arða króna í tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári. Þar af voru 36 þús­und elli­líf­eyr­is­þegar og 21 þús­und örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þegar. Í frétt­inni segir: „nið­ur­staða end­ur­reikn­ings­ins leiðir í ljós að 43% þeirra sem fengu tekju­tengdar greiðslur á síð­asta ári eiga inn­eign hjá TR upp á sam­tals 2 millj­arða króna en 44% hafa fengið ofgreitt, sam­tals 3,4 millj­arða króna. Með­al­upp­hæð inn­eigna sem líf­eyr­is­þegar eiga hjá TR er 84 þús­und krónur en með­al­skuld þeirra sem hafa fengið ofgreitt er 135 þús­und krónur.“

Trygg­inga­stofnun segir að hún muni gera upp við þá líf­eyr­is­þega sem eiga inn­eign með ein­greiðslu þann 1. júlí næst­kom­andi. „Inn­heimta skulda sem orðið hafa til vegna ofgreiðslu á síð­asta ári hefst hins vegar þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Miðað er við að skuldin verði greidd á 12 mán­uðum en ef það reyn­ist líf­eyr­is­þegum íþyngj­andi er hægt að semja um lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár