Já.is má ekki birta myndir af heimilum fólks

Per­sónu­vernd hefur úrskurðað að Já.is verði að fjar­lægja teng­ingar milli skrán­ingar í síma­skrá og mynd­birt­ingar af heim­ilum fólks.

Skrifstofur Kjarnans eru við Laugaveg 3. Ef skráningu Kjarnans er flett upp á vef Já birtist mynd af húsakynnum fyrirtækisins. Það sama á við um einstaklinga. Myndbirtingar af heimilum með skráningum einstaklinga eru nú óheimilar.
Skrif­stofur Kjarnans eru við Laugaveg 3. Ef skrán­ingu Kjarnans er flett upp á vef Já birt­ist mynd af húsa­kynnum fyr­ir­tæk­is­ins. Það sama á við um ein­stak­linga. Mynd­birt­ingar af heim­ilum með skrán­ingum ein­stak­linga eru nú óheim­ilar. Mynd: Samsett mynd

Per­sónu­vernd hefur úrskurðað að síma­skrár- og upp­lýs­inga­vef­ur­inn Já.is má ekki birta myndir af heim­ilum fólks með skrán­ingum á vefnum. Já.is mun aftengja mynd­irnar á næstu dögum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Per­sónu­vernd hóf frum­kvæð­is­at­hugun á birt­ingum mynd­anna í nóv­em­ber í fyrra. Margrét Gunn­laugs­dóttir, vöru- og við­skipta­þró­un­ar­stjóri Já, segir fyr­ir­tækið alltaf hafa átt í góðu sam­starfi við Per­sónu­vernd í tengslum við götu­mynda­safn sitt. Það verk­efni hófst árið 2013.

„Mynd­irnar verða teknar út strax á næstu dögum,“ segir Margrét og bendir á að úrskurður Per­sónu­verndar snú­ist um ákveðið birt­ing­ar­form mynd­anna. Myndunum verður ekki eytt úr gagna­grunn­inum heldur verður klippt á teng­ing­una á milli þeirra og ein­stakra skrán­inga.

Úrskurður Per­sónu­verndar nær aðeins yfir skrán­ingar ein­stak­linga á vefnum en ekki fyr­ir­tækja eða félaga. Þess vegna mun áfram birt­ast mynd af höf­uð­stöðvum Kjarnans við Laugaveg 3 á Já.is

Í athuga­semdum Já.is við athugun Per­sónu­verndar segir að þessi götu­mynd­ar­þjón­usta eigi sér mál­efna­legan til­gang og sé í eðli sínu nátengd kjarna­starf­semi Já hf., fyr­ir­tæk­is­ins sem rekur vef­inn. „Atvinnu- og sam­keppn­is­hags­munir telj­ist ótví­rætt til lög­mætra hags­muna, en Já hf. sé til dæmis í sam­keppni við Google á þessu sviði.“

[adspot]

Í götu­sjá Já.is eru öll and­lit, skrán­ing­ar­númer öku­tækja og þess háttar gerð ógrein­an­leg. Svipaða þjón­ustu má sækja á vef­inn Google Maps og skoða götu­mynd stærstu þétt­býl­is­svæða á Íslandi. Munurinn á þjón­ustu Já.is og Google er hins vegar sá að götu­mynd Já.is er bein­tengd upp­lýs­ingum í síma­skránni.

Já.is bendir á að sam­kvæmt könn­unum sem fyr­ir­tækið hafi látið gera hafi lang flestir þeir sem skráðir voru á vef­inn sagst vita að mynd af heim­ili þeirra hafi verið tengt skrán­ingu þeirra á vefnum. Í öllum til­vikum hafi fyr­ir­tækið orðið við beiðnum um að mynd­irnar séu fjar­lægðar og aftengdar skrán­ing­unni. Slíkar beiðnir væru hins vegar sjald­gæfar, í mesta lagi fimm á mán­uði.

Nið­ur­staða Per­sónu­verndar byggir á því að per­sónu­upp­lýs­ingar sem skráðar eru „í prent­uðum og raf­rænum skrám og í upp­lýs­inga­þjón­ustu um síma­númer skuli tak­markast við þær upp­lýs­ingar sem þarf til að bera kennsl á áskrif­anda nema áskrif­and­inn hafi veitt ótví­ræða heim­ild til ann­ars. Myndir af heim­ilum ein­stak­linga telj­ast, að mati Per­sónu­verndar, ekki til slíkra upp­lýs­inga.“

Allir sem skráðir eru í gagna­grunn Já.is verða jafn­framt að hafa veitt ótví­rætt sam­þykki fyrir að vinna megi per­sónu­grein­an­leg gögn um sig og birta þau á vefnum, sam­kvæmt úrskurð­inum.

Öll vinnsla per­sónu­upp­lýs­inga verður jafn­framt að full­nægja þeim grunn­kröfum sem nefndar eru í lögum. Í úrskurð­inum segir að vinnsla per­sónu­upp­lýs­ing­anna geti „vart talist sann­gjörn nema hinn skráði geti fengið vit­neskju um hana og eigi kost á full­nægj­andi upp­lýs­ingum um vinnu­brögð, vinnu­ferli og annað er lýtur að vinnsl­unni. Per­sónu­vernd telur að með vísan til þessa hafi Já.is borið að upp­lýsa hina skráðu og fræða þá um vinnsl­una, þ.e. birt­ingu mynda af heim­ilum þeirra, áður en hún fór fram.“

Já.is hefur frest til 19. júní næst­kom­andi til þess að lýsa fyrir Per­sónu­vernd hvernig félagið hygg­ist tryggja að birt­ing þess­ara per­sónu­upp­lýs­inga fari ekki í bága við lög um per­sónu­vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár