Árið 1967 – Mikilvægasta ár poppsins

Borgþór Arn­gríms­son skrifar um hið merka ár 1967, og sumar af þeim þekktu plötum sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa komið út þetta ár.

Síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, 1. júní, voru fimm­tíu ár síðan vín­yl­platan „Sgt Peppers Lonely Hearts Club Band“ kom út. Þetta var átt­unda plata The Beatles, Bítlanna, sem voru, að öðrum ólöst­uðum, lang­þekktasta popp­hljóm­sveit heims. En það gerð­ist fleira í tón­list­inni þetta sama ár sem sumir tón­list­ar­fræð­ingar segja mik­il­væg­asta ár í sögu dæg­ur­tón­listar. Hér verða nefnd nokkur lög frá árinu 1967 og rétt að taka fram að list­inn er ekki tæm­andi.

Poppplata varð meira en popp, hún var list

Fjór­menn­ing­arnir frá Liverpool, George Harrison, John Lennon, Paul McCartney og Ringo Starr höfðu verið heims­þekktir í nokkur ár þegar „Sgt Peppers“, eins og platan er iðu­lega kölluð, kom út. Heims­frægðin kom til þeirra árið 1963 og þótt lagið „She loves you“ væri ekki það fyrsta sem þeir sendu frá sér varð við­lagið „she loves you, yeah, yeah yeah“ eins­konar slag­orð bítla­kyn­slóð­ar­innar. Eldra fólk kall­aði þetta gjarnan „bítl“.

[links]„Sgt Peppers“ var allt öðru­vísi en allt það sem Bítl­arnir höfðu áður gert. Vin­sæld­irnar sem þeir höfðu skapað sér gerðu þeim kleift að feta nýjar brautir í tón­list­inni. Upp­tök­urnar tóku sam­tals 700 klukku­tíma þar sem fjöl­margir tón­list­ar­menn komu við sögu. Til sam­an­burðar má nefna að fyrsta stóra plata Bítlanna „Please Please me“ var tekin upp á einum sól­ar­hring.

Text­arnir við lögin á „Sgt. Peppers“ fylgdu með í albú­m­inu, sem var nýlunda, og umslagið sem Peter Blake gerði var öðru­vísi en flest það sem áður hafði sést og hefur margoft verið valið merki­leg­asta plötu­albúm sem gert hefur verið. Lögin á „Sgt Peppers“ eru mis­jöfn að gæðum og þótt fjór­menn­ing­arnir hefðu hugsað plöt­una sem eins­konar sam­hang­andi sögu (concept) varð sú ekki raunin. Þótt flest lögin á plöt­unni væru ekki jafn gríp­andi og auð­lærð og það sem Bítl­arnir höfðu áður gert seld­ist platan í millj­ón­a­tali fyrstu mán­uð­ina eftir að hún kom út, og er ein mest selda hljóm­plata sög­unnar.

Purple Haze og Hey Joe

Meðal þeirra sem kræktu sér í „Sgt Peppers“ plöt­una dag­inn sem hún kom í búðir var banda­rískur gít­ar­leik­ari, sem þá var búsettur í London, Jimi Hendrix. Fyrsta lagið á tón­leikum hans í London, fjórum dögum eftir að hann keypti plötu Bítlanna, var hans eigin útsetn­ing á upp­haf­slagi „Sgt Peppers“. Á fremsta bekk á þessum tón­leikum sat Paul McCartney. Bítl­arnir þekktu ágæt­lega til Jimi Hendrix en 17. mars þetta sama ár hafði hann sent frá sér lagið „Purple Haze“ og í byrjun árs­ins lagið „Hey Joe“. Gít­ar­leikur Jimi Hendrix var jafn langt frá hinum tæra hljómi Hank Marwin og The Shadows og hugs­ast gat og tón­arnir sem hann gat galdrað út úr gít­arnum voru öðru­vísi en áður hafði heyrst.

[adspot]

Pink Floyd og „See Emily Play“

Árið 1967 var ár breyt­inga í upp­töku­tækni. Tveggja rása upp­tök­urnar sem not­ast hafði verið við heyrðu nú sög­unni til, fjög­urra og seinna átta rása hljóð­spor buðu upp á nýja og stór­aukna mögu­leika.

16. júní sendi breska hljóm­sveitin Pink Floyd frá sér lagið „See Emily Play“. Hljóm­sveitin hafði starfað frá árinu 1962 en ekki náð að slá almenni­lega í gegn. „See Emily Play“ braut ísinn ef svo má að orði kom­ast og hljóm­sveitin er ein sú þekktasta í sög­unni. Allt tón­list­ar­á­huga­fólk þekkir „Dark Side of the Moon“ og „The Wall“.

Monterey og blómin í hárinu

16. – 18. júní 1967 var efnt til tón­list­ar­há­tíðar í bænum Monterey í Kali­forníu. Þótt ekki hafi hátíð þessi kannski verið sú fyrsta sinnar teg­undar er hún þó iðu­lega, á vissan hátt, talin marka upp­haf slíkra við­burða. Um 200 þús­und manns sóttu þessa hátíð og þótt Bítl­arnir, Rolling Stones og Beach Boys hafi ekki tekið þátt voru þar margir frægir. Grateful Dead, Jeffer­son Airplane, John Phillips ásamt The Mamas & The Papas, The Who og The Animals voru meðal þeirra sem tróðu upp. John Phillips hafði nýlega samið lagið „San Francisco (Be sure to wear flowers in your hair) fyrir félaga sinn Scott McKenzie, þetta lag varð eins konar ein­kenn­islag Monterey hátíð­ar­innar og blóma­barna­kyn­slóð­ar­innar svo­nefndu.

Á hátíð­inni kom líka fram hljóm­sveitin Big Brother and the hold­ing company ásamt söng­kon­unni Janis Joplin. Hún var ekki að byrja fer­il­inn en hátíðin í Monterey var upp­haf frægð­ar­fer­ils hennar, sem stóð stutt en hún lést 1970. Söngv­ar­inn Otis Redding kom fram á Monterey hátíð­inni en hann lést síðar á árinu, hafði þá nýlokið við að semja og hljóð­rita „The Dock Of The Bay“. Loks er rétt að nefna Jimi Hendrix sem lauk flutn­ingi sínum með því að kveikja í gít­arnum. Áhrifa­mikið atriði, sem jafn­framt kom í veg fyrir að hann gæti tekið fleiri auka­lög, var ekki með fleiri hljóð­færi með sér.

The Doors, Ed Sullivan og Rolling Stones

Ed Sullivan var um ára­bil einn vin­sæl­asti sjón­varps­maður vest­an­hafs og þáttur hans „The Ed Sullivan Show“ var á skjánum á hverju sunnu­dags­kvöldi í 23 ár, frá 1948 til 1971. Það þótti mjög eft­ir­sókn­ar­vert að fá að koma fram í þætti Ed Sullivan og Rolling Stones, sem þá voru orðnir frægir, létu sig hafa það að breyta text­anum „Let’s spend the night together“ í „Let’s spend some time together“ til að kom­ast í gegnum banda­ríska nál­ar­augað. Lagið höfðu þeir Mick Jagger og Keith Richards samið skömmu áður en þeir komu fram í þætti Ed Sullivan árið 1967. 17. sept­em­ber þetta sama ár bauð Ed Sullivan ungri og upp­renn­nandi hljóm­sveit, The Doors, í þátt­inn. Sveitin hafði í árs­byrjun sent frá sér lagið „Ligh my fire“ sem varð geysi­vin­sælt. Sjón­varps­stöðin krafð­ist þess að setn­ing­unni „girl, we couldn’t get much hig­her“ yrði breytt í „girl, we couldn’t get much better. Jim Morrison lét þetta sem vind um eyru þjóta og var til­kynnt eftir á að hljóm­sveitin kæmi aldrei aftur fram í „The Ed Sullivan Show“.

Van Morrison, Eric Clapton, Procol Harum, Leonard Cohen og Aretha Franklin

Í júní­mán­uði 1967 kom út lítil plata hjá banda­ríska útgáfu­fyr­ir­tæk­inu Bang Records. Höfundur og flytj­andi lags­ins var lítt þekktur Íri, Van Morrison að nafni. Lagið hét „Brown Eyed Girl“ og vakti athygli í Banda­ríkj­unum. Van Morrison hefur sjálfur sagt að þetta lag hafi verið það sem fyllti hann sjálfs­ör­yggi, sem tón­skáld og flytj­anda. Hann er einn afkasta­mesti og vin­sæl­asti tón­list­ar­maður síð­ustu ára­tuga, hefur sent frá sér 35 stórar plötur og er enn að. Sömu sögu er að segja af Eric Clapton, sem að margra dómi er einn allra besti gít­ar­leik­ari sög­unnar. Þótt hann hefði verið í „brans­anum“ í nokkur ár var það vera hans í hljóm­sveit­inni Cream sem gerði hann frægan. Cream var tríó sem í voru, auk Claptons, trommar­inn Ginger Baker og bassa­leik­ar­inn Jack Bruce. Hljóm­sveitin starf­aði ein­ungis í tvö ár, þre­menn­ing­arnir voru ekki ein­ungis í fremstu röð sem tón­list­ar­menn, þeir voru líka umtal­aðir skap­hundar og end­an­lega sauð uppúr árið 1968. Ári fyrr sendu þeir frá sér plöt­una Disraeli Gears, á henni er meðal ann­ars að finna lagið „Sunshine of your love“ sem margir telja besta lag hljóm­sveit­ar­innar. Orðið „súpergrúppa“ var fyrst notað um Cream.

Eitt allra vin­sælasta lag popp­sög­unnar (mest spil­aða lag sög­unnar í Bret­landi) er „A Whiter Shade of Pale“ sem hljóm­sveitin Procol Harum hljóð­rit­aði vorið 1967 og kom út á lít­illi plötu 12. maí það ár.

Tón­list­ar­fræð­ingar segja gjarna að það sé samið undir áhrifum frá Johanni Sebast­ian Bach. Ekki skal um það dæmt hér en org­el­leikur setur sterkan svip á það. Það hefur stundum verið sagt að Procol Harum sé eins lags hljóm­sveit. Ekki er það alls kostar rétt þótt vissu­lega sé „A Whiter Shade of Pale“ lang­þekktasta lag sveit­ar­innar sem er enn að undir styrkri stjórn Gary Brooker.

Ekki er hægt að renna yfir tón­list­ar­árið 1967 án þess að minn­ast á Leonard Cohen. Þessi hæg­láti Kanada­maður hafði getið sér gott orð sem ljóð­skáld þegar hann, árið 1967, sendi frá sér plöt­una Songs of Leonard Cohen. Meðal laga á þess­ari plötu voru „Suzanne“ og „So Long Marianne“ sem voru í allt öðrum dúr en margt af því sem mest fór fyrir á þessum árum. Kanadíska ljóð­skáldið varð nán­ast á auga­bragði heims­frægur tón­list­ar­maður.

Ein­hverra hluta vegna eru konur mun minna áber­andi þegar litið er yfir tón­list­ar­sög­una. Áður var minnst á Janis Joplin en hér er rétt að nefna Arethu Franklin. Árið 1967 hljóð­rit­aði hún lagið „Respect“ sem Otis Redding samdi. Á lista tón­list­ar­tíma­rits­ins Rolling Stone yfir merk­ustu dæg­ur­lög allra tíma er „Respect“ númer fimm. Fjöl­margir hafa spreytt sig á þessu þekkta lagi sem Aretha Franklin gerði frægt.

Og er 1967 mikilvægasta árið í sögu dægurtónlistar?

Þessari spurn­ingu er ekki auðsvarað. Það gerð­ist margt merki­legt í tón­list­inni árið 1967, margt fleira en hér hefur verið nefnt. Það gildir líka um mörg önnur ár. Enginn deilir hins­vegar um það að platan „Sgt Peppers Lonely Hearts Club Band“ sem kom út 1. júní þetta ár, og var kveikja þessa pistils, er ein þekktasta plata í sögu dæg­ur­tón­list­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár