Hægt að streyma Bítlunum í fyrsta sinn á vefnum

Bítl­arnir eru komnir á ver­ald­ar­vef­inn því nú er hægt að hlusta á hljóm­sveit­ina vin­sælu á Spotify, Apple Music og öllum helstu tón­list­ar­veitum nets­ins.

Bítlarnir eru löngu orðnir að goðsögnum og um hljómsveitina hafa verið gerð ýmis söfn og sýningar víða um heiminn.
Bítl­arnir eru löngu orðnir að goð­sögnum og um hljóm­sveit­ina hafa verið gerð ýmis söfn og sýn­ingar víða um heim­inn. Mynd: Wikipedia

Besta jóla­gjöf tón­list­arunn­enda er, eins og örugg­lega svo oft áður, Bítl­arnir. Nú má hlusta á Bítlana, vin­sæl­ustu hljóm­sveit 20. ald­ar­innar, á streym­isveitum á vefnum. Spotify, Apple Music, Google Play Music, Tidal og hvar­vetna ann­ar­staðar má hlust á allt Bítla­safnið hafi maður áskrift. Þetta markar nokkur tíma­mót í sögu streym­isveitna þar sem Bítlana hefur ávalt vantað.

Hér er lagið Tomorrow Never Knows sem kom út á plöt­unni Revolver árið 1966. Það er fram­úr­stefnu­legt og gæti vel átt heima á breskri rokk­plötu á 21. öld­inni enda voru Bítl­arnir löngu á undan sinni sam­tíð í mörgu.

Upp­runa­legar plötur sveit­ar­innar eru allar í boði auk safn­platna á borð við Past Masters, 1962 - 1966 og 1967 - 1970. Þar utan má finna nýj­ustu Bítla­út­gáf­una, safn­plöt­una 1 sem geymir bestu lög sveit­ar­innar. 1 var end­ur­hljóð­blönduð og útsett í hljóð­veri Bítlana, Abbey Road, og kom út í ár.

Bítla­safnið var gert aðgengi­legt í nótt. Af því til­efni hefur Spotify útbúið sér­staka Bítla­síðu þar sem fólk getur deilt upp­á­halds Bítla­lag­inu sínu. Harðir aðdá­endur og Bítla­fræð­ingar munu þó taka eftir að fáeina hluti vantar í Bítla­safn ver­ald­ar­vefs­ins. The Verge tók saman aðal­at­riðin sem enn á eftir að vígja á ver­ald­ar­vef­inn. Eru það allt útgáfur sem gerðar voru eftir að hljóm­sveitin lagði upp laupana árið 1970.

Útgáf­urnar eru: The Beatles Ant­hology (1995) , Let It Be… Naked (2003), Live at the BBC (1994), Love (2006) og The Beatles in Mono (2009).

Tveir af með­limum Bítlana eru enn á lífi, þeir Ringo Starr og Paul McCartney. George Harrison og John Lennon eru fallnir frá. Spotify hefur allt frá stofnun staðið í samn­inga­við­ræðum við höf­und­ar­rétt­hafa efnis Bítlana um að fá að dreifa efn­inu en ekki haft erindi sem erf­iði nú. Má gera ráð fyrir að til­koma Apple á markað streym­isveitna á árinu hafi haft nokkuð að segja um þessi tíma­mót enda er það frægt að Steve Jobs, annar stofn­anda Apple, var gríð­ar­legur Bítlafan.

Síðasta platan sem Bítl­arnir gáfu út var Let It Be árið 1970. Hér að neðan má hlusta á Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár