Störfin sem vélmennin taka

Gervi­greindin er nú þegar farin að hafa víð­tæk áhrif í efna­hags­lífi heims­ins. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í þessa hlið efna­hags­lífs­ins.

„They took our jobs!“ öskr­uðu íbúar South Park þegar tíma­ferða­langar úr fram­tíð­inni gengu í störfin þeirra fyrir lægri laun. Þetta fjall­aði auð­vitað í raun um inn­flytj­endur og við­brögð heima­manna við þeim. En það eru ekki inn­flytj­endur sem munu „stela“ stör­f­unum, heldur vélar og þá helst sjálf­virk vél­menni. Þróunin er þegar hafin og hönn­uðir eru sífellt að prófa sig áfram og færa sig inn á ný svið. Jafnvel ólík­leg­ustu störf eru undir í heimi þar sem mennskan skiptir alltaf minna og minna máli. Hér eru nokkur dæmi um störf sem sjálf­virk vél­menni munu sinna að miklu eða jafn­vel öllu leyti í fram­tíð­inni.

Atvinnubílstjórar

Í fram­tíð­inni munu börnum og ung­lingum finn­ast það bráð­fyndið þegar við segjum þeim að við höfum sjálf keyrt bíl­ana okkar. Sjálf­keyr­andi bílar eru nú þegar mikið í umræð­unni og fyr­ir­tæki á borð við Google og Tesla hafa prófað sig áfram með þá tækni. Ríki eru í óða­önn að laga lög­gjöf sína að þess­ari þróun og auð­séð að hún verður ráð­andi í fram­tíð­inni. Hingað til hefur umræðan að miklu leyti snú­ist um einka­bíla en aug­ljós­lega á þetta einnig við um bíla í atvinnu­skyni. Leigu­bílar undir merkjum Uber eru þegar farnir að vera sjálf­keyr­andi á sumum stöðum. Ekki verður langt þangað til að vöru­bílar, stræt­is­vagnar og far­þeg­ar­útur fylgja í kjöl­farið. Sumir hafa gagn­rýnt þessa þróun í ljósi þess að sjálf­keyr­andi bílar geta valdið slysum. Flest umferð­ar­slys verða þó vegna mann­legra mis­taka. Annað álita­efni sem fram­leið­endur hug­bún­að­ar­ins þurfa að skoða er öryggi, þ.e. að t.d. þjófar eða hryðju­verka­menn geti ekki brot­ist inn í bíl­ana og stýrt þeim annað.

Byggingarverkamenn

Árþús­undum saman hefur mann­fólkið stritað og púlað við hús­bygg­ingar. Þó að tækni­fram­farir hafi auð­veldað verkið í gegnum tíð­ina þá er það ennþá kostn­að­ar­samt og tíma­frekt. Sumarið 2016 prent­aði kín­verski verk­tak­inn HuaShang Tengda tveggja hæða, 400 fer­metra hús á aðeins 45 dögum. Þrí­víddar prent­arar eru þegar komnir í notkun víða og þá aðal­lega til að prenta smærri hluti sem getur sparað mik­inn flutn­ings­kostnað. Þetta kín­verska verk­efni sýnir þó að mögu­leikar þrí­víddar prent­unar eru mun meiri en áður var talið. Húsið er mjög traust en prent­ar­inn risa­vaxni sem not­aður var gat þó ein­ungis prentað ramma þess. Píparar og raf­virkjar geta því verið rólegir……í bili. Kína stækkar hratt og heilu borg­irnar rísa á örfáum árum. Miðað við pen­inga-og tíma­sparn­að­inn sem felst í vél­væð­ing­unni gætum við séð fyrstu prent­uðu borg­ina á kom­andi ára­tugum.

Barnapíur

Tmsuk er lítið jap­anskt fyr­ir­tæki sem fram­leiðir vél­menni til að sinna ýmsum störfum, t.d. fyrir rústa­björg­un­ar­sveitir og tann­lækna­nema. Mesta athygli vöktu þó barna­gæslu-vél­menni sem hönnuð voru fyrir versl­un­ar­mið­stöð árið 2008. T2-5 er til í nokkrum útgáfum, þar á meðal með útlit Hello Kitty, og sér um börnin á meðan for­eldr­arnir versla. Vél­mennið nemur umhverfi sitt og börnin sem merkt eru með strik­a­merkjum. Það fylgir þeim eftir og hefur ofan af fyrir þeim á ýmsa vegu eftir því sem hentar aldri þeirra. T2-5 leggur þrautir fyrir börnin, segir þeim brand­ara, spilar tón­list og varpar myndum og mynd­skeiðum með öðru aug­anu. For­svars­menn Tmsuk sögðu að til­gang­ur­inn með T2-5 væri ekki ein­ungis að hjálpa for­eldrum að eyða pen­ingum í friði heldur að venja börn við nær­veru vél­menna, sem væru fram­tíðin. Fyr­ir­tækið hefur þó ekki fram­leitt fleiri barnapíu-vél­menni að svo stöddu. Aðrir hafa hins vegar tekið upp þráð­inn, t.d. fyri­tækið Avatar Mind sem setti vélp­í­una Ipal á markað fyrir skemmstu.

Kokkar

Moley Robotics er breskt fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í vél­rænu eldhúsi.[http://www.moley.com/] Árið 2018 mun það setja á markað vél­hendur sem elda fyrir fólk með hár­fínum hreyf­ingum. Hug­bún­aður vél­menn­is­ins ræður við 2000 upp­skriftir og hægt verður að panta mat­inn í gegnum snjall­síma eða tölvu. Mark Oleynik, eig­andi Moley Robotics, segir tækn­ina ekki ein­ungis hann­aða til að spara okkur vinnu. Hún geti hjálpað fólki með eigin sköp­un­ar­gleði, þ.e. að við getum lært mat­reiðslu af vél­hönd­unum. Sumt er óvíst varð­andi verk­efni, t.d. hvað varðar aðgang að hrá­efni, blæ­brigði með krydd­jurtir o.fl. En ljóst er að þetta er tækni sem stór eld­hús og fjölda­fram­leið­endur að mat gætu horft til eins og t.d. mötu­neyti stórra fyr­ir­tækja og stofn­ana. Spurn­ingin er hvort að veit­inga­staðir, sér­stak­lega þeir fínni þar sem matseld er talin list­grein, nýti sér slíka tækni.

Heilbrigðisstarfsfólk

Í San Francisco hefur UCSF sjúkra­húsið komið upp tveimur vél­rænum apó­tekum. Þar skammta vél­menni við­skipta­vinum lyfjum og engin mis­tök hafa átt sér stað eins og ger­ist í mennskum apó­tekum. Mannleg mis­tök lyfja­fræð­inga geta haft hræði­legar afleið­ingar. Auk þess tekur afgreiðslu­ferlið mun skemmri tíma í vél­apó­tek­inu. Vélmenni hafa einnig verið notuð við skurð­lækn­ingar um nokk­urt skeið þó að þau séu ekki að fullu sjálf­virk. Talið er að sjálf­virkni muni aukast í þeim geira til muna og að vél­menni muni fram­kvæma margar aðgerðir án nokkurar aðstoðar lækna. Mannleg hönd getur ekki keppt við nákvæmni vél­menn­ana. Því hljóta fleiri störf í heil­brigð­is­geir­anum að vera undir, bæði í lækn­ingum og umönnun. Lækna­mis­tök er orð sem gæti heyrt sög­unni til. Vissu­lega spilar mann­legi þátt­ur­inn stóra rullu á heil­brigð­is­stofn­unum. Því er lík­legt að vél­menna­hönn­uðir taki meira til­lit til þess og geri vél­menn­unum kleyft að takast á við til­finn­ingar sjúk­linga og aðstand­enda.

Kennarar

Pepper er jap­anskt vél­menni með hálf-mennskt útlit sem kom á markað árið 2015. Upp­runa­lega var til­gangur þess að hafa sam­skipti við og skemmta fólki. Hann er vinur og félagi sem getur greint og tek­ist á við til­finn­ingar þess sem hann talar við. Fram­leið­end­urnir Softbank sáu ýmis tæki­færi í vél­menn­inu eins og t.d. upp­lýs­inga­gjöf til við­skipta­vina um vörur fyr­ir­tækja. Í Japan má t.d. finna Pepper á mörgum kaffi­húsum. En skólar í Japan og í Bret­landi eru byrj­aðir að prófa sig áfram með vél­mennið til kennslu, bæði á mennta­skóla og háskóla­stigi. Auðvelt er að sjá hvernig slíkt vél­menni geti nýst við fyr­ir­lestra og við að svara spurn­ingum nem­enda. Það gæti búið til próf upp úr náms­efn­inu á svip­skots­stundu og farið yfir þau jafn­vel enn hraðar. Stóra spurn­ingin varð­andi kennslu er hvort hægt sé að nýta vél­menni við kennslu á yngri stigum þar sem mann­legi þátt­ur­inn skiptir meira máli og ýmis vanda­mál, varð­andi hegðun og fleira, eru til staðar. Þá fyrst reynir virki­legar á getu Pepper til að takast á við til­finn­ing­arnar.

Lögreglumenn

Í Sílíkon-dalnum í Kali­forníu eru hafnar próf­anir á vél­rænum örygg­is­vörðum, K5. Það er fyr­ir­tækið Knightscope Inc. sem stendur fyrir verk­efn­inu og eru alls 24 vél­menni í notkun í nokkrum versl­un­ar­mið­stöðvum og höf­uð­stöðvum fyr­ir­tækja.

Vél­mennin líta út eins og stórar rusla­tunnur, ferð­ast um og vakta umhverfi sitt. Þau nema t.d. hljóð, ljós, hraða og hita og láta yfir­völd vita af öllu grun­sam­legu sem þau finna. Verk­efnið hefur vakið athygli og sumir telja að það geti hjálpað til við almenna lög­gæslu. Nærvera slíkra vél­menna ein og sér gæti hamlað glæpum (líkt og örygg­is­mynda­vélar) jafn­vel þó að beint nota­gildi þeirra væri ekki mikið. Lögregla víðs vegar um heim notar nú þegar vél­menni við ýmis störf, t.d. við umferð­ar­eft­ir­lit, sprengju­leit og dróna af ýmsum toga. Full­kom­lega sjálf­stýrð lög­reglu­vél­menni sem geta gripið inn í atburð­ar­rás og beitt valdi eru þó ennþá fram­tíð­ar­músík. Ef K5, eða önnur sam­bæri­leg vél­menni yrðu notuð við almenna lög­gæslu yrði það samt skref í þá átt.

Hermenn

Hvergi er jafn­mik­ill fjár­austur í tækni­fram­farir og í hern­að­ar­geir­anum, þá sér­stak­lega hjá Banda­ríkja­mönnum og Kín­verjum. Báðar þjóðir eru í óða­önn við að vél­væða heri sína þó að vél­mennin séu ennþá ekki full­kom­lega sjálf­stýrð. Á það þá ekki ein­ungis við um hina mann­lausu dróna sem hafa kom­ist ítrekað í fréttir á und­an­förnum árum. Kín­verjar hafa t.d. fram­leitt sprengju­leit­ar­vél­menni sem lítur út eins og lít­ill hestur. Banda­ríkja­menn hafa fram­leitt bar­daga­vél­menni sem fylgir fót­göngu­liðum, MAARS verk­efnið svo­kall­aða. Vél­mennið sem var kynnt til sög­unnar árið 2015 minnir á lít­inn skrið­dreka sem búinn er bæði hríð­skotariffli og sprengju­vörpu. Hann er búinn alls kyns mögu­leikum og hefur ótrú­lega lagni þrátt fyrir klunna­legt útlit. Vilji stór­veld­anna til að fórna manns­lífum í stríðum verður sífellt minni og því er ekki ólík­legt að vél­menni líkt og MAARS verði alger­lega sjálf­virk í fram­tíð­inni.

Prestar

ærinn Wittenberg er stað­ur­inn þar sem Marteinn Lúther negldi sínar 95 greinar á kirkju­hurð­ina og klauf þar með hinn kristna heim árið 1517. 500 árum síðar má finna þar fyrsta vél­prest heims­ins, BlessU-2. Sókn­ar­börn geta fengið blessun á allt að 5 tungu­málum en vél­mennið fer einnig með Biblíu-vers og varpar ljós­geislum úr hönd­unum. Hægt er að velja um karl­manns-eða kven­manns­rödd og prest­ur­inn getur einnig prentað út bless­un­ina. BlessU-2 á ekki að hafa mikið nota­gildi heldur var hann hann­aður til að skapa umræðu um trú­mál og tækni í ljósi þess að kirkju­sókn fer minnk­andi í Evrópu og prestum fækk­andi. Sumir myndu telja að mennskan sé nauð­syn­legur þáttur í t.d. sálu­hjálp, áfalla­hjálp og fræði­störfum. Aðrar hliðar starfs­ins gætu þó hæg­lega verið unnar af vél­mennum. Má þar nefna athafnir á borð við messur, hjóna­vígslur, skírnir og útfarir. Einnig skriftir og sær­ingar hjá kaþ­ólikkum. Athygl­is­verð­asta spurn­ingin hlýtur samt að vera hvort vél­menni geti orðið dýr­lingur.

Listamenn

Þetta kann að skjóta mörgum skelk í bringu því að list og menn­ing er af mörgum tal­inn sá eig­in­leiki sem aðgreinir okkur frá dýrum og vélum. En vél­menni eru þegar farin að færa sig inn á þetta svið, t.d. með list­málun. Sum mála eftir ákveðnum fyr­ir­myndum, svo sem and­litum eða lands­lagi, en önnur mála abstrakt-myndir. Kanadíska vél­mennið Picassnake (sem lítur út eins og snákur) málar myndir eftir tón­list. NoRAA er ítalskt vél­menni sem fær anda­gift frá umhverfi sínu og túlkar það á striga. Hér vaknar spurn­ingin: „Geta vél­menni verið frum­leg?“ ….og enn­fremur: „Fá ekki allir lista­menn anda­gift sína úr umhverfi sínu og minn­ingum?“ Nú þegar vél­menni eru þegar farnar að skapa mál­verk er hæg­lega hægt að ímynda sér að þau hefji inn­reið sína inn á önnur svið list­anna, s.s. tón­list, ljóð­list, dans, leik­list og rit­list. Við gætum séð heim þar sem vél­menni fær ósk­arsverð­laun eða jafn­vel Nóbels­verð­laun í bók­menntum.

Starfið þitt er ekki öruggt

Listinn er langt því frá tæm­andi og þó að þú hafir ekki séð þína starfs­grein hérna þá máttu búast við því að vél­væð­ing og aukin sjálf­virkni sé handan við hornið. Póst­burð­ar­fólk, end­ur­skoð­endur, afgreiðslu­fólk, gjald­kerar, bændur, sím­sölu­fólk, fyr­ir­sætur, lög­menn, blaða­menn og margar fleiri starfs­greinar eru í skot­línu vél­menn­ana. Vélmenni eru ódýr­ari, áreið­an­legri, hrað­virk­ari og betri kostur en þú. Vélmenni þiggur ekki laun, fer ekki í frí, eign­ast ekki börn, rífst ekki við yfir­menn sína og þarf ekki vinnu­staða­sál­fræð­ing. Það eina sem vél­menni þarf er raf­magn og við­hald (senni­lega unnið af öðrum vél­mennum). Hvað gerum við þá? Jú, þiggjum borg­ara­laun og njótum þess að láta vél­mennin stjana við okkur……á meðan þau leyfa okkur það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár