Topp 10: Kvikmyndir eftir teiknimyndasögum

Teikni­mynda­sögur hafa fært okkar margar frá­bærar kvik­myndir.

Síðustu 15 ár eða svo hafa Marvel, DC Comics og Dark Horse Comics pumpað út eins mikið af ofur­hetju­kvik­myndum, byggðum á teikni­mynda­sögum, eins og þeir mögu­lega geta. Flestar eru þær áþekkar og ein­kenn­ast fremur af gróða­sjón­ar­miðum heldur en list­rænni sköpun. Árið 2017 er engin und­an­tekn­ing og mun m.a. gefa okkur þriðju Thor-mynd­ina, sjöttu Spider-Man mynd­ina, tíundu X-Men mynd­ina og tvær myndir um Wonder Woman. En þó að formið sé gróf­lega ofnotað þá er það ekki alsæmt og fjöl­margar frá­bærar kvik­myndir hafa verið gerðar sem byggðar eru á teikni­mynda­sögum.

10. Kick-Ass (2010)

Teikni­mynda­sög­urnar um Kick-Ass birt­ust fyrst á prenti í febr­úar árið 2008 og pen­inga­menn­irnir hjá Marvel gátu ekki beðið því þremur mán­uðum seinna var haf­ist handa við að skrifa kvik­mynda­hand­rit um hetj­una. Kick-Ass er nokk­urs konar satíra á ofur­hetju­formið því að einu eig­in­legu “ofur­kraft­arnir” sem hann hefur er að vera nógu tauga­skadd­aður til að finna ekki fyrir sárs­auka. Ofan á það er bún­ing­ur­inn hans einn sá ljót­asti sem til er og lítur út eins og of stór kaf­ara­bún­ingur. Flestar per­són­urnar eru börn eða ung­lingar og myndin er aug­ljós­lega stíluð inn á þann hóp líkt og Spider-Man á sínum tíma. Inter­netið spilar stóra rullu sem og skóla­lífið. Bestu karakt­erar mynd­ar­innar eru feðginin Hit-Girl og Big Daddy sem eru alvöru ofur­hetjur en til að und­ir­strika satíruna er Big Daddy leik­inn af Nicolas Cage sem er fyrir löngu búinn að brenna allar brýr að baki sér sem alvar­legur leik­ari og er nú eins konar inter­net-brand­ari. Kick-Ass minnir nokkuð á Mystery Men (1999) í sínu góð­lát­lega háði á aðrar ofur­hetjur, og það tekst ein­stak­lega vel.

9. From Hell (2001)

From Hell er byggð á seríu sem Alan Moore skrif­aði á árunum 1989 til 1996 og fjallar um leit­ina að raðmorð­ingj­anum Kobba kviðristu (Jack the Ripper). Morðin áttu sér stað í Lundúnum á árunum 1888 til 1891 og eru enn óleyst. Mýmargar kenn­ingar eru til um hver Kobbi var, þar á meðal sú sem sett er fram í From Hell. Teikni­mynda­ser­ían og kvik­myndin eru mjög ólík, bæði hvað varðar sögu­þráð og and­rúms­loft. Í teikni­mynda­sög­unni er strax sagt hver morð­ing­inn er, þ.e. læknir kon­ungs­fjöl­skyld­unnar William Gull, og fylgst er náið með honum og sál­ar­lífi hans. Í mynd­inni er því haldið leyndu en fremur fylgst með yfir­skil­vit­lega rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum Frederick Abberline, leiknum af sjar­matröll­inu Johnny Depp. Sagn­fræði­lega eru bæði teikni­mynda­sagan og kvik­myndin vafa­samar í besta falli (sér­stak­lega varð­andi frí­múr­ara­regl­una), en sem lista­verk og glæpa­saga standa þær fyrir sínu. From Hell er spenn­andi, hroll­vekj­andi, ein­stak­lega vel kvik­mynduð og vel gerð í alla staði.

8. Ghost World (2001)

Ung­lings­stúlkur víða um heim lásu Ghost World upp til agna um miðjan tíunda ára­tug­inn og þegar sam­nefnd kvik­mynd kom út varð hún sam­stundis költ­ari. Vin­kon­urnar Enid (Thora Birch) og Rebecca (Scarlet Johans­son) eru nýút­skrif­aðar úr menntó og vita ekk­ert hvað þær ætla að gera við líf sitt. Þær fyr­ir­líta umhverfi sitt og tala nær ein­göngu í kald­hæðni. Skarð kemur í vin­átt­una þegar Enid verður hrifin af skrítnum eldri ein­fara (Steve Buscemi) á meðan Rebecca full­orðn­ast og finnur sig í nýrri vinnu. Handrit mynd­ar­innar er ekki skrifað beint eftir sögu­þræði teikni­mynda­sög­unnar en vakti engu að síður mikla lukku. Boð­skap­ur­inn skil­aði sér alveg jafn vel og ungt fólk átti auð­velt með að tengja sig við vin­kon­urnar tvær og aðstæður þeirra. Því að þrátt fyrir að vera ótrú­lega nið­ur­drep­andi og nei­kvæðar eru þær heill­andi og fyndnar á sinn hátt. Þrátt fyrir góða gagn­rýni fékk myndin mjög litla dreif­ingu og er í dag tal­inn fal­inn gim­steinn.

7. The Addams Family (1991)

Charles Addams teikn­aði Addams fjöl­skyld­una fyrir tíma­ritið The New Yorker í hálfa öld, frá 1938 til 1988, og gaf út bækur með sam­an­teknu efni. Fjöl­skyldan skugga­lega birt­ist einnig í þekktum sjón­varps­þáttum á sjö­unda og átt­unda ára­tugnum. Árið 1991 tók kvik­mynda­töku­mað­ur­inn Barry Sonn­en­feld það að sér að leik­stýra fyrstu kvik­mynd­inni við góðar und­ir­tektir áhorf­enda en skelfi­legar und­ir­tekir gagn­rýnenda. Handrit mynd­ar­innar er ekki merki­legt og húmor­inn oft á tíðum kjána­legur. En per­sónur mynd­ar­innar eru eft­ir­minni­legar og ein­stak­lega vel leiknar á sinn ýkta hátt. Hin 10 ára gamla Christina Ricci varð sam­stundis stjarna eftir að hafa túlkað Wednesday, til­finn­inga­laust raðmorð­ingja­barn, og Raul Julia skein sem hinn blóð­heiti og akró­bat­íski fjöl­skyldu­faðir Gomez. Christopher Lloyd á þó mynd­ina skuld­laust sem hinn snar­rugl­aði Fester frændi, enda snýst myndin að mestu leyti um hann. Brellur mynd­ar­innar voru langt á undan sinni sam­tíð og got­neska leik­myndin á pari við bestu verk Tim Burton.

6. Sin City (2005)

Frank Miller leik­stýrði Sin City ásamt Robert Rodriguez, sögu sem hann skrif­aði sjálfur í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins. Sjónrænt séð er kvik­myndin eins og teikni­mynda­saga vakin til lífs. Hún var öll tekin upp í kvik­mynda­veri með grænskjá, svart­hvít með ein­staka lita­slettum hér og þar. Þessi aðferð dregur fram ein­stakt and­rúms­loft teikni­mynda­sög­unnar sem sam­einar bæði glæpa­sagna­hefð film noir tím­ans og hömlu­laust ofbeldi. Talið í mynd­inni er einnig að miklu leyti tekið beint upp úr sög­unum enda er hún stút­full af ein­lín­ungum. Líkt og teikni­mynda­sög­urnar er kvik­myndin safn smá­sagna sem ger­ast þó á sama stað og á sama tíma. Myndin er prýdd stór­stjörnum á borð við Bruce Willis, Jessicu Alba, Elijah Wood, Clive Owen og Benicio Del Toro. Uppáhald flestra er þó Mickey Rourke sem leikur ber­serkjatröll­karl­inn Marv. Sin City er virki­lega sér­stök reynsla og vakti athygli gagn­rýnenda og bíó­gesta. Aðdá­endur vildu vita­skuld fram­hald, en þegar Rodriguez og Miller færðu þeim það loks­ins 9 árum seinna féll það í mjög grýttan jarð­veg.

5. La Vie d´Adéle – Chapitres 1 &2 (2013)

Líf Adéle, kafli 1 & 2 er þekkt á ensku sem Blue Is the Warmest Colour sem er bein þýð­ing á titli teikni­mynda­sög­unnar sem hún er byggð á, Le bleu est une couleur chaude. Julie Maroh skrif­aði sög­una árið 2010 og líkt og Maroh sjálf eru tvær aðal­sögu­per­són­urnar, Adéle og Emma, sam­kyn­hneigðar. Myndin er ást­ar­saga sem ger­ist yfir langan tíma og myndin sjálf er næstum þrír klukku­tímar á lengd. Adéle og Emma eru í mynd allan tím­ann og því kynn­ist maður þeim og sam­bandi þeirra mjög vel og þá sér­stak­lega Adéle sem kemur út úr skápnum á skóla­ár­unum. Myndin inni­heldur grófar kyn­lífs­senur sem sumir myndu segja óþarfar en þær voru einnig til staðar í teikni­mynda­sög­unni. Leikkon­urnar Adéle Exarchopolous og Léa Seydoux eru báðar óað­finn­an­legar í hlut­verkum sínum og voru stór þáttur í því að mynd­inni var veittur Gullpálm­inn á Cannes kvik­mynda­há­tíð­inni vorið 2013.

4. Deadpool (2016)

Wade Wilson, eða Deadpool, er ein af seinni tíma ofur­hetj­unum úr Marvel heim­inum, skap­aður árið 1991. Upp­runa­lega var hann býsna óáhuga­verður karakter en hann sprakk út eftir að hann öðl­að­ist með­vit­und um að hann væri teikni­mynda­per­sóna. Vin­sæld­irnar skýrð­ust einnig á hversu klúr, fynd­inn og mann­legur hann er. Eftir að Marvel byrj­uðu að dæla út ofur­hetju­myndum upp úr alda­mótum var því ein­ungis tíma­spurs­mál hvenær Deadpool kæm­ist á hvíta tjaldið því hann er full­kom­inn fyrir þann miðil. Margir efuð­ust hins vegar þegar til­kynnt var að Ryan Reynolds myndi leika hann því að Reynolds hafði áður leikið Grænu Luktina í skelfi­lega mis­heppn­aðri mynd árið 2011. Hér sló hann hins vegar í gegn. Sögu­þráður mynd­ar­innar Deadpool er hræó­merki­legur en hann skiptir í raun engu máli. Það er per­sónan Deadpool og húmor­inn gerir mynd­ina ógleym­an­lega enda var hún hátt skrifuð hjá gagn­rýnendum og fyllti öll kvik­mynda­hús.

3. Batman (1989)

Teikni­mynda­sög­urnar um Batman komu fyrst út árið 1939 og þró­uð­ust á ýmsa vegu í gegnum ára­tug­ina. Almenn­ingur þekkti hins vegar Batman fyrst og fremst úr súrum grín­þáttum frá sjö­unda ára­tugnum með Adam West í aðal­hlut­verki. Hin dökka og alvar­lega Batman leik­stjór­ans Tim Burton breytti því alger­lega. Michael Keaton, sem jafnan er þekktur fyrir líf­leg gam­an­hlut­verk, er svo stífur að það varla hreyf­ist í honum blóðið nema þá rétt til að lúskra aðeins á fjendum sínum. And­stæðan við hann er hinn vit­firrti, afmynd­aði en umfram allt líf­legi Jóker sem er jafn­framt senu­þjófur mynd­ar­innar. Jack Nicholson skap­aði ill­menni sem engum hefur enn tek­ist að skáka þrátt fyrir urmul ofur­hetju­mynda. Þrjár mis­heppn­aðar fram­halds­myndir fylgdu í kjöl­farið á tíunda ára­tugnum áður en Christopher Nolan tók ser­í­una upp á sína arma árið 2005 og gerði hana enn drunga­legri og ofbeld­is­fyllri við góðar und­ir­tektir.

2. 300 (2006)

300 er byggð á sam­nefndri teikni­mynda­sögu Frank Miller frá árinu 1998 og segir af orr­ust­unni um Thermopylae milli Grikkja og Persa og goð­sögn­inni um hina 300 Spart­verja. Þó hún sé sagn­fræði­lega vafasöm þá er hún alger­lega sönn bók Millers, ramma fyrir ramma. Líkt og teikni­mynda­sagan er 300 sjón­rænt ferða­lag. Myndin hefur rauð­brúnan tón og kvik­mynda­takan byggir á vel tíma­settum hraða­breyt­ingum. Bún­ing­arnir og leik­myndin eru ýkt, bar­dag­arnir ótrú­verð­ugir og per­sónu­sköp­unin er nákvæm­lega engin. Annars lagið bregður fyrir skrímslum og afmynd­uðu fólki líkt og um fornan sirkus sé að ræða. En þannig er líka bók Millers og 300 er því ekki að þykj­ast vera neitt annað en hún er. Það verður að segj­ast eins og er að leik­ar­anum Gerard Butler tekst full­kom­lega að skapa tölvu­leikja­út­gáfu af Spörtu­kóngnum Leonidas I og í leið­inni varð til eitt þekktasta inter­net-meme sam­tím­ans: THIS IS SPARTA!!!

1. Road to Perdition (2002)

Road to Perdition var gerð eftir fyrstu bók­inni í sam­nefndri seríu eftir Max Allan Collins. Myndin ger­ist í Chicago og nágrenni á fjórða ára­tugnum og fjallar um írsku og ítölsku glæpa­gengin. Svik og hefnd er meg­in­þema mynd­ar­innar en einnig sam­band feðra og sona. Stór­leik­ar­arnir Tom Hanks og Paul Newman bera mynd­ina uppi og sá síð­ar­nefndi var til­nefndur til ósk­arsverð­launa fyrir vikið. Þá spilar Jude Law einnig stóra rullu sem fyr­ir­lit­legur flugu­maður. Myndin er ein­mana­leg, hrá­slaga­leg og ofbeld­is­full líkt og teikni­mynda­sagan. En tveir helstu kost­irnir við hana eru áhrifa­mikil tón­list Thomas Newman og ein­stök kvik­mynda­taka Conrad L. Hall. Hall nýtti ramma úr mynda­sög­unni að miklu leyti við tökur sem og ýmis mál­verk sem gerð voru á þessum tíma í Chicago. Það sem ein­kennir töku mynd­ar­innar eru þó hin fjöl­mörgu löngu skot sem eru eins og lista­verk í sjálfu sér. Hall fékk ósk­arsverð­laun fyrir Road to Perdition en því miður lést hann skömmu áður en hann gat tekið við þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár